Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Blaðsíða 20
20 Fréttir Helgarblað 4.–7. júlí 2014
Leyniviðræður í
þágu fyrirtækja
Össur Skarphéðinsson kannast ekki við að málið hafi komið á sitt borð, þvert á tilkynningu ráðuneytisins
Í
tilkynningu utanríkisráðuneyt-
isins um hinar leynilegu TiSA-
viðræður kemur fram að þær
miði að því að vernda hagsmuni
fyrirtækja á þjónustumark-
aði. Hins vegar er hvorki minnst á
hagsmuni neytenda né launafólks.
Fullyrt er að utanríkisráðherra
fyrri ríkisstjórnar, Össur Skarp-
héðinsson, hafi tekið ákvörðun um
það í desember árið 2012 að Ísland
tæki þátt í viðræðunum en hann
kannast ekki við það.
„Þetta mál hefur aldrei yfir mitt
borð farið,“ segir Össur og bætir því
við að hann hafi gert lauslega leit í
tölvupóstum og dagbókum en ekk-
ert fundið. „Þetta virðist heldur
ekki hafa verið rætt í síðustu ríkis-
stjórn.“
Engin leynd?
Ekki hefur verið fjallað um við-
ræðurnar í utanríkismálanefnd. Í
samingsdrögunum sem Wikileaks
birtu á dögunum stendur að skjöl-
in verði ekki gerð opinber fyrr en
fimm árum eftir að samningurinn
tekur gildi. Þrátt fyrir þetta hefur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra fullyrt í viðtölum að engin
leynd hvíldi yfir viðræðunum.
Í tilkynningu ráðuneytisins er
bent á að utanríkisráðherra gerði
grein fyrir stöðu TiSA-viðræðna
á Alþingi í skýrslu sinni um utan-
ríkismál í mars. Í þeim kafla skýr-
slunnar er fjallað með almennum
hætti um mikilvægi þjónustuvið-
skipta, en fram kemur að utanríkis-
ráðuneytið hafi unnið að „ítarlegri
hagsmunagreiningu íslenskra fyr-
irtækja erlendis á sviði þjónustu-
viðskipta í samstarfi við atvinnu-
lífið“.
Einkavæðingarstefna
fest í sessi
Skjölin sem Wikileaks birtu úr við-
ræðunum fjalla um þá hlið samn-
ingsins er snýr að fjármálaþjón-
ustu á alþjóðamörkuðum. Líkt og
fram kemur í fréttatilkynningu
samtakanna sýna drögin að stefnt
er að því að draga úr regluverki á
sviði fjármála.
Alþjóðasamtök opinberra
starfsmanna eru á meðal þeirra
sem gagnrýnt hafa TiSA-viðræð-
urnar harðlega og varað við því að
hendur ríkisstjórna verði bundn-
ar frammi fyrir valdi fjárfesta og
fjármagns. Samtökin benda á að
samkvæmt samningsdrögunum
stendur til að takmarka öryggis-
og umhverfisreglugerðir allveru-
lega auk þess sem þau óttast að
ríkisstjórnum verði gert ókleift að
taka aftur yfir opinberan rekstur ef
einkavæðing hans hefur mistekist.
Riddari gagnsæis
Kristinn Hrafnsson, talsmaður
Wikileaks, hæðist að yfirlýsingum
Gunnars Braga og tilkynningu ut-
anríkisráðuneytisins á Facebook-
síðu sinni. „Rétt er að fagna einlæg-
um yfirlýsingum utanríkisráðherra
um að engin leynd hvíli yfir TISA-
viðræðum sem og birtingu upp-
haflegu samningsmarkmiða Ís-
lands. Eðlilegt er að Gunnar Bragi,
hinn nýslegni riddari sannleika
og gagnsæis, setji fyrir sína samn-
ingamenn að krefjast fullkominnar
opnunar á viðræðuferlinu. Eðlileg-
ast er þá að færa þær inn í ramma
WTO í stað þess að pukrast með
þær undir húsvegg í skuggasundi
fyrir utan“, skrifar hann og bæt-
ir við: „Ég er sérlega imponeraður
yfir því að ráðherra viðurkennir af
Chicagoskólalegri hreinskilni að
markmið TISA sé ekki að vernda
hagsmuni almennra borgara né
einstakra þjóðríkja, heldur hags-
muni stórfyrirtækja.“
Hér vísar Kristinn til þeirrar
hörðu markaðshyggju og einka-
væðingarstefnu sem kennd hefur
verið við Chicago-háskóla í Banda-
ríkjunum. Margir sem gagnrýna
TiSA-viðræðurnar óttast að mark-
mið þeirra sé útbreiðsla og lög-
festing slíkrar hugmyndafræði á
alþjóðavettvangi. Slíkt kunni með-
al annars að bitna á verkafólki og
náttúrunni auk þess sem fjármála-
stöðugleika verði stefnt í hættu. n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Engin leynd Gunnar
Bragi segir að engin
leynd hvíli yfir við-
ræðunum, en gögnin
sem Wikileaks birtu
áttu ekki að vera gerð
opinber fyrr en fimm
árum eftir gildistöku
samningsins.
Mynd SigtRygguR ARi
„Þetta virðist held-
ur ekki hafa verið
rætt í síðustu ríkisstjórn
TiSA?
50 ríki í viðræðum
TiSA-viðræðurnar eru samningaferli
sem miðar að auknu frelsi í þjónustu-
viðskiptum. Um 50 ríki eiga aðild að
viðræðunum, meðal annars aðildarríki
Evrópusambandsins, Bandaríkin, Ástralía,
Kanada, Noregur, Sviss og Japan. Enn
sem komið er falla viðræðurnar ekki undir
kerfi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
og eru þær því leynilegri en venjan er. Á
vef utanríkisráðuneytisins kemur fram
að samningurinn muni þó byggjast á
reglum GATS (General Agreement on
Trade in Service) og fjalla sérstaklega um
sjóflutninga, orkumál, fjármagnsþjónustu,
póstþjónustu, fjarskipti, aðgang þjónustu-
veitenda og rafræn viðskipti. Markmiðið
sé að fækka hindrunum sem standa í vegi
fyrir fyrirtækjum sem starfa á vettvangi
þjónustuviðskipta.
Kannast ekki við málið Össur segist ekki kannast við að hafa átt aðkomu eða frum-
kvæði að þátttöku Íslands í TiSA-viðræðunum.
Leyniskjölum lekið Wikileaks-samtökin birtu leyniskjöl úr viðræðunum. Talsmaður
samtakanna, sem hér má sjá fyrir aftan Julian Assange, forsprakka þeirra, hæðist að utan-
ríkisráðherra vegna tilkynningar á vef ráðuneytisins. Mynd PAuL HAcKEtt / REutERS
Ríkissaksóknari hefur áfrýjað
sýknudómi í Aurum-málinu til
Hæstaréttar á grundvelli þess
að Sverrir Ólafsson, meðdóm-
ari í málinu, hafi verið vanhæf-
ur. Krefst saksóknari þess að
meðferð héraðsdóms verði ógilt.
Sverrir er bróðir Ólafs Ólafssonar
í Samskipum, sem var sem kunn-
ugt er dæmdur í þriggja og hálfs
árs fangelsi í Al-Thani-málinu.
RÚV greinir frá þessari
ákvörðun ríkissaksóknara, en
héraðsdómur, skipaður Sverri og
þeim Guðna St. Marteinssyni og
Arngrími Ísberg héraðsdómur-
um, sýknaði fjórmenninga sem
ákærðir voru í málinu.
Þeir Lárus Welding, fyrrver-
andi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir
Jóhannesson, stærsti óbeini hlut-
hafi bankans fyrir hrun, Magnús
Arnar Arngrímsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
bankans og Bjarni Jóhannesson,
fyrrverandi viðskiptastjóri bank-
ans, voru ákærðir fyrir umboðs-
svik.
Málið snýst um sex milljarða
króna lánveitingu út úr Glitni í
maí 2008, án veðs eða trygginga.
Lánið tengdist viðskiptum með
skartgripaverslanakeðjuna Aur-
um, en ákæruvaldið taldi að við-
skiptin hefðu farið fram svo Jón
Ásgeir gæti hagnast persónulega
á kostnað bankans.
Arngrímur Ísberg skilaði sérá-
liti í málinu og vildi hann sakfella
Lárus og Magnús fyrir umboðs-
svik og Jón Ásgeir fyrir hlutdeild í
umboðssvikum. Guðjón og Sverr-
ir sýknuðu alla fjóra.
Sérstakur saksóknari sagði
eftir að dómur féll að hann hafi
ekki vitað af því að Sverrir væri
bróðir Ólafs. Sagði hann eðlilegt
að embættið hefði fengið að vita
af því áður en dómur féll og hefði
hann mótmælt skipan Sverris
hefði hann vitað af ættartengsl-
unum.
Sverrir var harðorður í svari
sínu, sakaði Ólaf Þ. Hauksson,
sérstakan saksóknara, um „ör-
væntingarfullar og jafnvel
óheiðarlegar aðgerðir“, sem hann
væri að grípa til á „erfiðum tím-
um, þegar trúverðugleiki hans
stofnunar er eiginlega í molum“.
Segir Sverri
vanhæfan
Ríkissaksóknari áfrýjar
Hnoðaður til lífs
Eldri maður fékk hjartaáfall í
sundlaug Akureyrar á mánudags-
morgun og fannst hann meðvit-
undarlaus á botni laugarinnar.
Ungmenni sem voru að æfa sund
í lauginni komu auga á hann og
komu honum á sundlaugarbakk-
ann, þar sem hann var hnoðað-
ur til lífs.
Vikudagur greinir frá málinu
en þar kemur fram að maður-
inn sé nú á gjörgæslu og að líðan
hans sé eftir atvikum.