Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 4.–7. júlí 201462 Fólk Í boði með Obama Margret Hrafns í boði með stjörnunum K vikmyndaframleiðandinn Margret Hrafns lifir og hrær- ist í heimi kvikmyndastjarn- anna í Hollywood. Nú hef- ur Margreti verið boðið heim til handritshöfundarins, leikstjór- ans og framleiðandans Shonda Rhimes í flott boð þar sem sjálf- ur forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, verður sérstakur gestur. Shonda Rhimes er heilinn á bak við vinsælar sjónvarpsserí- ur á borð við Grey's Anatomy og Scandal en aðalleikkona Scandal, Kerry Washington, verður einnig á meðal gesta. Aðrir frægir boðs- gestir eru til að mynda leikkonan Debbie Allen, sem margir muna eftir úr Fame, Tony Goldwyn, sem einmitt leikur forsetann í Scandal, og viðskiptajöfurinn Joe Kiani. Margret og eiginmaður hennar, Jón Óttar Ragnarsson, hafa búið í Bandaríkjunum síðustu 22 árin með hléum. Þau hafa lengst af verið búsett í Los Angeles en hafa nú flutt til Palm Springs þótt þau starfi enn í borg englanna. Margret er á kafi í vinnu en samkvæmt heimildum DV mun hún reyna að mæta í boðið. Þetta verður þó ekki í fyrsta skiptið sem hún hitt- ir Barack Obama enda ekki fyrsta flotta boðið sem hún mætir í. Þau Jón Óttar hafa hægt og rólega búið sér til nafn í Hollywood en á með- al mynda sem eru væntanlegar frá þeim eru Kill the Poet og Terra Infirma auk sjónvarpsþáttanna Dulda Ísland. n Obama Þetta verður þó ekki í fyrsta skiptið sem Margret hittir forsetann. Þekkir stjörnurnar Margret og eiginmaður hennar, Jón Óttar, hafa smám saman búið sér til nafn í Hollywood. Mynd Sigtryggur Ari Edrú í sjö ár Söngvarinn síkáti, Herbert Guð- mundsson, fagnaði á þriðju- daginn sjö árum án áfengis og fíkniefna. „Í morgun kl: 10:00 er sjö ár liðin síðan ég tók þá bless- unarríku ákvörðun að hætta að nota öll hugbreytandi efni, hví- lík blessun og þakklæti Guði, vissum tólf spora samtökum og manninum sem leiddi mig inní ljósið: Baldur Freyr Einarsson, Guð blessi þig og þitt stórkost- lega starf, elsku vinur, þú ert svo sannarlega ljósberi, er svo óend- anlega þakklátur,“ skrifaði Her- bert á Facebook-síðu sína, fullur þakklætis. Taka við Ungfrú Ísland n Dísa og Bjössi nýir eigendur keppninnar sem verður líklega haldin í haust Þ etta er bara mjög gam- an,“  segir Hafdís Jónsdótt- ir, Dísa, kennd við World Class, sem er ásamt eigin- manni sínum, Birni Leifs- syni, nýr eigandi keppninnar Ung- frú Ísland. Hjónin keyptu keppnina af Arnari Laufdal sem haldið hefur hana frá árinu 2001 en hann tók við keflinu af föður sínum, Ólafi Lauf- dal. Dísa og Bjössi hafa verið við- loðandi keppnina í fjölmörg ár og séð um að þjálfa keppendur. taka við góðu búi „Þegar það kom upp að Arnar ætl- aði ekki að vera með keppnina lengur þá kom hún í okkar hend- ur. Hann hefur gert þetta mjög vel í mörg ár,“ segir Dísa. „Ég er bara kominn í allt ann- að, hættur í þessum skemmtana- bransa og þau voru til í að taka við þessu. Ég seldi Broadway 2010 og er núna að reka hugbúnaðarfyrir- tæki og bara kominn í allt annan bransa,“  segir Arnar um ástæður þess að hann ákvað að hætta með keppnina. Aðspurður hvort keppn- in hafi verið seld fyrir háa upphæð segist hann ekki geta tjáð sig um það. „Það er trúnaðarmál.“ Finna keppninni nýjan samastað Dísa segist spennt fyrir keppn- ishaldinu og telur líklegt að hún verði haldin í haust. Þó ekki þar sem hún hefur verið haldin undan- farin ár þar sem Broadway er ekki lengur til og segir Hafdís þau eiga eftir að finna keppninni nýjan samastað. Hún segir heldur ekki ljóst hvort keppnin verði með öðru sniði en áður, það eigi eftir að taka ákvörðun um það. „Við erum bara nýtekin við þessu og eigum eftir að setjast niður og ræða hvernig þetta verður,“ segir hún. Fegurðarsamkeppnir klassískar Mikil umræða skapaðist um keppnina á síðasta ári en hún var ekki haldin árið áður. Fjölmargir tóku upp á því að skrá sig til þátt- töku og þótti mörgum það vera ansi mikil tímaskekkja að keppa í fegurð á 21. öldinni. Meðal þeirra sem skráðu sig í keppnina til að mótmæla henni voru þær Sigríð- ur Ingibjörg Ingadóttir þingkona, Björk Vilhelmsdóttir og Hildur Lilliendahl. Dísa er ekki sammála því að fegurðarsamkeppnir séu tímaskekkja. „Mér finnst fegurðar- samkeppnir vera eitthvað sem er orðið svolítið klassískt. Það eru auðvitað margir hlutir sem breyt- ast og alltaf eitthvað sem fer úr tísku og kemur aftur. En þetta hefur alltaf verið voðalega ánægjulegur og skemmtilegur tími. Flestar þær stelpur sem hafa farið í gegnum þetta hafa fengið mikinn þroska og lærdóm út úr þessu. Sumar hafa gert mikið úr þessu og aðrar ekki, þær sem vilja nýta sér tækifærin. Þetta eru tækifæri fyrir þær sem vilja,“ segir hún. Mismunandi álit á keppninni „Mér hefur alltaf fundist þetta skemmtilegt og gaman að sjá stelpurnar blómstra í þessu. Þetta er eins og aðrar keppnir; hvort sem það er fitness, krafta-, hlaupakeppnir eða hvað annað. Fólk er með alls konar mismunandi álit á þeim og þannig verður það að vera. Það er aldrei neinn að taka þátt í svona keppni né öðrum nema þeir sem hafa áhuga og vilja,“ segir hún. „Það sem er skemmtilegt við þessa keppni og er meira og meira verið að gera er að það er verið að tengja þetta við hjálparstarf og safn- anir í kringum þetta. Þannig að þetta er að vekja athygli á góðum málefn- um. Það er hluti sem mér finnst mjög áhugaverður og við munum taka þann vinkil á þetta“ segir Dísa. n „Mér finnst fegurðar- samkeppnir vera eitthvað sem er orðið svolítið klassískt Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Ekki tímaskekkja Dísa er ekki sammála mótmælendum keppninnar um að hún sé tíma- skekkja heldur segir hana vera orðna klassíska. Mynd frá Ungfrú Ísland 2007. ungfrú Ísland 2013 Tanja Ýr Ástþórs- dóttir var kosin Ungfrú Ísland árið 2013. nýir eigendur Þau Dísa og Bjössi eru nýir eigendur Ungfrú Ísland. Þau hafa verið viðloð- andi keppnina í fjölda ára. Miðlar kraftaspeki Kraftatröllið Hafþór Júlí- us Björnsson hefur ákveðið að demba sér á fjarþjálfunarmark- aðinn. Hafþór segist fá stöðugar fyrirspurnir um hvernig hann æfi en Hafþór er einn allra sterk- asti maður heims. Hafþór ætlar því að bjóða fólki upp á æfinga- prógrömm, leiðsögn og tæki- færi til þess að spyrja hann ráða. Þekktir fjarþjálfarar hér á Íslandi eru meðal annars Egill „Gillz“ Einarsson og Logi Geirsson þótt þeir séu minna í því að draga flugvélar og lyfta tæplega hálfu tonni í réttstöðulyftu. Hægt er að ná í Hafþór í gegnum strong- manthor@gmail.com. Leitar að grönnum fola Söngkonan Leoncie lýsti í vik- unni eftir karlmanni til þess að leika á móti sér í nýju tónlist- armyndbandi. Söngkonan vill hugrakkan, grannan og kyn- þokkafullan karlmann. „Er ein- hver grannur, hugrakkur og kyn- þokkafullur maður sem er frábær dansari sem vill leika með mér í tónlistarmyndbandi?“ spyr söng- konan Facebook-vini sína. „Harð- ur nagli sem er alveg sama hvað öðru fólki finnst og er kátur og glaður eins og ég.“ Ekki er langt síðan að Leoncie flutti aftur til Ís- lands en hún bjó í Bretlandi um nokkurt skeið. Hennar þekktustu lög eru meðal annars Radio Rap- ist og Ást á pöbbnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.