Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Blaðsíða 49
Helgarblað 4.–7. júlí 2014 Sport 49
Barist um sæti í
undanúrslitum
n Átta liða úrslitin á HM byrja í dag n Willum Þór Þórsson spáir í spilin
Á
tta liða úrslitin á heimsmeist-
aramótinu í Brasilíu eru rétt
handan við hornið og óhætt
að segja að stórleikir séu á
dagskránni. Í dag, föstudag,
fara tveir leikir fram en þá mætast
Frakkar og Þjóðverjar annars vegar
og hins vegar Brasilíumenn og Kól-
umbíumenn. Á laugardag fara svo
seinni leikirnir í átta liða úrslitunum
fram en þá mætir Argentína Belgíu
og Hollendingar mæta Kostaríka.
Evrópuslagur af bestu gerð
Búast má við því að leikur Frakka og
Þjóðverja verði geysilega spennandi.
Þessar þjóðir hafa marga hildi háð á
knattspyrnuvellinum. Samkvæmt vef
FIFA hafa þjóðirnar mæst 25 sinnum.
Frakkar hafa unnið 11 leiki, Þjóðverj-
ar 8 en sex hafa endað með jafntefli.
Markatalan er 42-41 Þjóðverjum í vil.
Frakkar hafa að mörgu leyti komið á
óvart í keppninni og unnið alla sína
leiki til þessa. Liðið hefur skorað tíu
mörk og aðeins fengið á sig tvö. Þjóð-
verjar hafa aftur á móti verið brokk-
gengir. Þeir byrjuðu á að vinna stór-
sigur á Portúgal í riðlakeppninni,
gerðu svo jafntefli við Gana og unnu
svo Bandaríkin í lokaleik G-riðils,
1-0. Þeir þurftu svo framlengingu til
að klára baráttu glaða Alsíringa í 16
liða úrslitunum. Enginn skyldi úti-
loka Frakkana sem gætu valdið mikl-
um usla í vörn Þjóðverja.
Algjörir yfirburðir Brassa
Í seinni leik föstudagsins mæta
heimamenn í Brasilíu einu af
spútnikliðum keppninnar, Kól-
umbíu. Brasilíumenn hafa haft mikla
yfirburði gegn Kólumbíu í gegnum
tíðina. Líkt og Þjóðverjar og Frakk-
ar hafa liðin mæst 25 sinnum; Bras-
ilíumenn hafa unnið 15 leiki, Kólu-
mbíumenn 2 en 8 leikir hafa endað
með jafntefli. Markatalan er 55-
11 fyrir Brasilíu. Það er morgun-
ljóst að miðað við spilamennsku
liðanna í keppninni eru afar litl-
ar líkur á að Brasilíumenn rúlli yfir
granna sína. Kólumbíumenn hafa
komið skemmtilega á óvart; ver-
ið skipulagðir og spilað leiftrandi
sóknarbolta með James Rodriguez
fremstan meðal jafningja. Á sama
tíma hafa Brasilíumenn hreinlega
verið slakir á köflum og ljóst að liðið
þarf að bæta sinn leik verulega til að
eiga ekki á hættu að kveðja mótið á
heimavelli strax í átta liða úrslitum.
Messi gegn Hazard
Á laugardag fer athyglisverður leik-
ur fram þegar Argentínumenn mæta
Belgum. Þessar þjóðir hafa aðeins
mæst fjórum sinnum áður; Argent-
ínumenn hafa unnið þrjá leiki en
Belgar einn. Markatalan er 10-4 fyr-
ir Argentínu. Bæði þessi lið hafa
leikið ágætlega en þó lent í ákveðn-
um vandræðum. Argentínumenn
mörðu sigur á Sviss í 16 liða úrslitun-
um á meðan Belgar unnu nauman
2-1 sigur á Bandaríkjunum. Þessi lið
unnu alla leiki sína í riðlakeppninni
án þess að setja á svið einhverja flug-
eldasýningu.
Fer Kostaríka í undanúrslit?
Lokaleikur átta liða úrslitanna fer
fram á laugardagskvöld þegar Hol-
land og Kostaríka mætast. Það hafa
líklega fáir spáð því fyrir keppni
að Kostaríka ætti eftir að komast í
átta liða úrslit. Það segir ýmislegt
um gæði liðsins að það tapaði ekki
leik í riðlakeppninni gegn sterkum
þjóðum á borð við Ítalíu, England
og Úrúgvæ. Liðið lenti í vandræð-
um gegn Grikkjum í 16 liða úrslit-
um en vann eftir vítaspyrnukeppni.
Hollendingar hafa spilað ágætlega
á mótinu til þessa undir stjórn hins
reynslumikla Louis van Gaal sem
beitti allri sinni reynslu til að snúa
leiknum gegn Mexíkó og næla í
2-1 sigur á lokamínútunum. Það er
athyglisvert að þessar þjóðir hafa
aldrei mæst á knattspyrnuvellin-
um. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Sigurstranglegir Þó
að Brassar hafi ekki ver-
ið upp á sitt allra besta
í undanförnum leikjum
verða þeir að teljast
sigurstranglegir.
Draumaúrslitaleikur
erkifjenda
Fjörið mun halda áfram – Willum Þór spáir í spilin
DV fékk Willum Þór Þórsson, þingmann Framsóknarflokksins og aðstoðarþjálfara
Breiðabliks, til að spá í spilin fyrir leikina í 8 liða úrslitum. Willum býst við sigri Frakka
gegn Þjóðverjum, Brasilíumenn klári Kólumbíu, Argentína vinni Belgíu og Holland vinni
skyldusigur á Kostaríka. Úrslitaleikur keppninnar verði svo milli Argentínu og Brasilíu.
Frakkland – Þýskaland 2-1
„Ég held að staðan eftir venjulegan leiktíma verði 1-1. Svo held ég að
Frakkland hafi þetta í framlengingunni og vinni 2-1. Það er léttari
stemning yfir Frökkunum en oft áður og mér finnst þeir nokkuð
heilsteyptir. Það má kannski segja það sama um Þjóðverjana en
þeir hafa verið pínu tætingslegir í vörninni.“
Brasilía – Kólumbía 2-1
„Kólumbía er eitt af mínum uppáhaldsliðum í þessari keppni en ég held að Brasilía
vinni þetta, 2-1. Þetta er kannski óskhyggja því ég vona og held að Brasilía og Argentína
mætist í úrslitum.“
Argentína – Belgía 1-0
„Heldur ekki bara Messi uppteknum hætti með að klára þessa leiki,
annaðhvort með því að skora eða leggja upp? Belgarnir hafa ekki
alveg smollið í takt en eru með sterkt lið og eiga auðvitað leikmenn
sem geta klárað leiki. Það er mín trú að Argentína vinni þennan leik og
vinni raunar þetta heimsmeistaramót.“
Holland – Kostaríka 2-0
„Holland siglir þessu nokkuð örugglega í höfn. Það er betri taktur
í leik hollenska liðsins og sjálfstraust þeirra hefur verið að aukast.
Kostaríkumenn hafa staðið sig afar vel og eru komnir lengra en ég átti
von á, en þeir eiga held ég ekkert í Hollendingana. Mögulega eru þeir líka
orðnir saddir eftir gott gengi.“
„Ég held
að staðan
eftir venjulegan
leiktíma verði 1-1
Vissir þú ...
n... að Lionel Messi, Argentínu, hefur
skapað flest færi á HM til þessa, eða 18?
n... að Luis Gustavo, Brasilíu, hefur
stöðvað flestar sendingar á HM til
þessa, eða 19?
n... að Karim Benzema, Frakklandi,
hefur átt flest heppnuð markskot á HM
til þessa, eða 13?
n... að Julian Green, Bandaríkjunum,
skoraði með sinni fyrstu snertingu í
sínum fyrsta HM-leik gegn Belgum á
þriðjudag?
n... að öll liðin sem enduðu á toppi síns
riðils í riðlakeppninni komust í átta liða
úrslit?
n... að Thomas Muller, Þýskalandi,
hefur skorað níu mörk í níu leikjum á
HM?
n... að Frakkar hafa skotið sex sinnum
í tréverkið á HM til þessa, oftast allra
liða?
n... að Frakkar hafa ekki fengið á sig
mark í fyrri hálfleik í síðustu tólf lands-
leikjum?
Hörkuleikir Willum segist telja að Argent-
ínumenn og Brasilíumenn komist áfram og
mætist í úrslitaleik mótsins.