Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Page 10
Helgarblað 4.–7. júlí 201410 Fréttir
Kynferðis-
brotum hefur
fækkað
Skráðum hegningarlagabrotum
hefur fækkað það sem af er ári
miðað við fyrri ár. Þetta kem
ur fram í afbrotatölfræði lög
reglustjórans á höfuðborgar
svæðinu fyrir júnímánuð sem
birt var á fimmtudag. Í tilkynn
ingu sem lögreglan sendi frá
sér vegna þessa kemur fram að
tilkynnt hafi verið um 15 prós
ent færri hegningarlagabrot til
lögreglunnar á höfuðborgar
svæðinu en á sama tíma í fyrra.
Tilkynningum um líkamsárásir
fækkar nokkuð á milli mánaða,
eða um rúmlega þriðjung, og
hafa ekki borist færri tilkynn
ingar um ofbeldisbrot í ein
um mánuði á þessu ári. Einnig
fækkar kynferðisbrotum milli
mánaða og það sem af er ári hef
ur verið tilkynnt um 43 prós
ent færri brot miðað við með
altal sama tímabils síðustu
þriggja ára. Töluvert fleiri öku
menn voru teknir undir áhrif
um ávana og fíkniefna í júní
en teknir hafa verið síðastliðna
mánuði. Meira en 60 prósenta
aukning hefur verið á skráðum
brotum tengdum akstri und
ir áhrifum ávana og fíkniefna
það sem af er ári miðað við sama
tímabil í fyrra.
Töpuðu
milljónum
Tveir Færeyingar töpuðu á
þriðjudag skaðabótamálum sín
um á hendur Eik banka í Fær
eyjum, vegna bréfa sem Kaup
þing banki seldi þeim. Eftir
ráðleggingar frá Kaupþingi í
Færeyjum keypti Poul Michel
sen svokölluð „trygg verðbréf“ í
bandaríska bankanum Lehman
Brothers.
Sólborg Dulavík tapaði einnig
líku máli, þar sem hún fór að ráð
leggingum Kaupþings og keypti
bréf. Í skaðabótamáli Pouls var
því meðal annars haldið fram að
Eik banki, sem keypti starfsemi
Kaupþings í Færeyjum í desem
ber 2007, hafi ekki varað við
skiptavini sína við er bandaríski
bankinn var kominn í vanda.
Hann fór í þrot stuttu fyrir efna
hagshrunið og bréfin urðu verð
laus.
Undirréttur í Færeyjum hafði
skikkað Eik til að greiða Poul
6,5 milljónir íslenskra króna í
skaðabætur. Hæstiréttur Fær
eyja, Landsrétturinn, sneri þess
um dómi við og sýknaði bank
ann af kröfu hans. Slíkt hið sama
varð raunin í máli Sólborgar en
þau þurfa hvort um sig að greiða
bankanum 1,2 milljónir króna í
málskostnað.
Lögmaður bankans seg
ir í samtali við vefinn in.fo að
dómurinn staðfesti að Eik beri
ekki ábyrgð á ráðleggingum
Kaupþings.
Í
viðmiðunarreglum Kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi vegna ásak
ana um kynferðisbrot kemur
fram að komist upp um brot sé
aðeins um að ræða „hugsanlega
brottvikningu úr starfi eða breytingu
á klerklegri stöðu“. DV sendi Pierre
Bürcher, biskupi kirkjunnar hér á
landi, fyrirspurn vegna þessa. Lög
maður kirkjunnar hér á landi, Ólafur
Kristinsson, svaraði fyrir hans hönd
og segir hann sjálfgefið að ef starfs
maður biskupsdæmisins eða að
ili á vegum biskupsdæmisins yrði
dæmdur fyrir brot gegn börnum þá
yrði sá leystur undan starfsskyldum,
þó aðeins ef sá sé óvígður.
Með öðrum orðum, þá væri presti
eða annars konar vígðum einstak
lingi ekki vísað úr kirkjunni þótt sá
hinn sami yrði fundinn sekur um að
brjóta gegn börnum. Í íslensku við
miðunarreglunum er talað fyrir því
að meintir gerendur fái lögfræðiað
stoð meðan fórnarlömb fái „andlega
aðstoð“.
Kirkjan hefur dregið lappirnar
Ljóst er að biskupsdæmi Kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi hefur dregið
lappirnar við mótun viðmiðunar
reglna sem páfastóll hefur gert öllum
biskupsdæmum að setja sér. Meðan
öll önnur biskupsumdæmi á Norð
urlöndum birta ítarlegar og langar
reglur skilmerkilega á heimasíðum
sínum eru reglurnar á Íslandi aðeins
tæplega tvær blaðsíður að lengd og
voru fyrst birtar í lok ágúst á síðast
liðnu ári. Til samanburðar má nefna
að í Svíþjóð eru sömu reglur um tutt
ugu blaðsíður og nokkur ár eru síðan
þær voru fyrst birtar.
Vinna hófst eftir að
upp komst um misnotkun
Í svari Ólafs vegna fyrirspurnar DV
um hvers vegna reglurnar komi svo
seint og séu svo stuttar segir hann
ástæðuna fyrir þessum seinagang
hafa verið vegna „mikillar innri
vinnu og endurskoðunar á starfs
háttum biskupsdæmisins í kjölfar
ásakana á hendur látnum einstak
lingum“. Vísar Ólafur þar í fjöl
margar ásakanir um misnotkun
af hendi séra Georgs, fyrrverandi
skólastjóra Landakotsskóla. Sam
kvæmt honum urðu viðmiðunar
reglurnar alfarið til í kjölfar þess
máls. Ástæðan fyrir því að við
miðunarreglur Kaþólsku kirkjunn
ar á Íslandi séu svo stuttar miðað
við það sem tíðkast á Norðurlönd
um segir Ólafur það hafa verið gert
til að þær séu skýrar og einfaldar.
„Til að hverjum og einum sé gert
kleift að skilja þær“, skrifar hann.
Gerandi fær lögfræðiaðstoð
Margt er sérkennilegt í við
miðunarreglum Kaþólsku kirkj
unnar á Íslandi og má þar helst
nefna fyrrnefnda „hugsanlega
brottvikningu úr starfi“ komist
upp um ofbeldi eða misnotkun.
„Að því er varðar vígða þjóna þá
gildir um þá bæði löggjöf á Ís
landi og til viðbótar því refsiréttur
kirkjuréttarins,“ skýrir Ólafur. Því
er ljóst af orðum hans að gróf brot
gegn börnum þýða ekki sjálfkrafa
brottvísun úr kirkjunni. Auk þess
er talað fyrir því að gerandi fái
lögfræðiaðstoð ef nauðsyn kref
ur. Þolanda er þó ekki boðið upp
á slíka aðstoð. Eftirfylgni kirkjunn
ar gagnvart fórnarlambinu hljóð
ar fyrst og fremst upp á andlega
og sálfræðilega aðstoð samkvæmt
reglunum og aðeins er talað um
„fjárhagslega aðstoð“ gagnvart
brotaþola.
Í nóvember í fyrra var greint frá
því að Kaþólska kirkjan hafi greitt
Ísleifi Friðrikssyni um 170 þúsund
krónur í bætur vegna ítrekaðs lík
amlegs og kynferðislegs ofbeldis
af hendi séra Georgs. Hafði fagráð
kirkjunnar komist að þeirri niður
stöðu að aðeins hann af tugum
fórnarlamba klerksins hafi átt rétt
á bótaskyldu. Hins vegar hafi kirkj
an ákveðið að greiða sumum öðr
um þolendum bætur sem voru á
bilinu 80 til 300 þúsund krónur. n
„Hugsanlega
brottvikn-
ingu úr starfi eða
breytingu á klerk-
legri stöðu
Spenna milli biskups
og safnaðar Bürcher
Núverandi biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, Pierre Bürcher, hefur
haft orð á sér fyrir að vera erfiður í samstarfi og fjölmiðlafælinn. Hann tal
ar ekki íslensku og lítið í ensku. Hann hefur verið biskup hér á landi frá
árinu 2007. Í frétt svissneska dagblaðsins Neue Zürcher Zeitung frá ár
inu 2004 er haft eftir þáverandi biskupi Lausanne, Genf og Freiburg að
spenna hafi verið milli Bürcher og safnaðar hans í Sviss. Fjallaði sú frétt
meðal annars um að ný staða hafi verið búin til fyrir Bürcher innan kirkj
unnar svo hann gæti haldið andliti þrátt fyrir að umdæmi hans hafi raun
ar verið tekið af honum.
Borga ekki
bætur en byggja
kirkjumiðstöð
Á sama tíma og kirkjan neitar að
borga sumum fórnarlömbum kyn
ferðisbrota séra Georgs og Mar
grétar Müller bætur hyggst hún
reisa kirkjumiðstöð á Stykkis
hólmi fyrir tugi milljóna króna. Á
vef Bonifatiuswerk, hjálparsjóði
þýskra kaþólikka, kemur fram að
á árunum 2012 og 2013 hafi það
verkefni verið styrkt af sjóðnum
um rúmlega 290 þúsund evrur,
rúmlega fjörutíu og fjórar milljónir
króna. Ljóst er að heildarkostnaður
verkefnisins er því umtalsverður.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Biskup Pierre Bürcher er annar þeirra sem
skrifar undir viðmiðunarreglurnar vegna
ásakana um ofbeldi eða kynferðislega mis-
notkun. Hann er sagður erfiður í samstarfi.
Skólastjóri Séra Georg
misnotaði fjölda manns
þegar hann var skólastjóri
Landakotsskóla. Sá
skóli var lengi rekinn af
Kaþólsku kirkjunni.
Mynd LjóSMyndaSaFn ReyKjaVíKuR
Vígðir kynferðisbrota-
menn eru ekki reknir
Óvígðum starfsmönnum yrði vikið frá Kaþólsku kirkjunni á Íslandi