Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Síða 14
Helgarblað 4.–7. júlí 201414 Fréttir
F
jölmargar ungar konur segj
ast í samtali við DV hafa ver
ið illa sviknar af Grand Hair
Extension, hárlengingarsölu
aðila á Facebook og hár
lengingastofu sem er alfarið á veg
um Bryndísar Báru Eyjólfsdóttur.
Ná elstu dæmin nokkur ár aftur
meðan það nýjasta átti sér stað í
júnímánuði. Sögurnar sem kon
urnar segja af viðskiptum sínum við
Bryndísi Báru eru mismunandi en
einkennast allar af einhvers konar
svikum sem þær telja sig hafa orðið
fyrir. Bryndís er sögð hafa skemmt
hárið á sumum en í öðrum tilvik
um ekki framvísað þeirri vöru sem
greitt hafði verið fyrir. Í öllum tilvik
um segja konurnar að Bryndís Bára
hafi slitið öllum samskiptum eft
ir að hún hafði fengið greitt. Upp
hæðirnar sem um er að ræða nema
hundruðum þúsunda. Bryndís
Bára viðurkennir sjálf í samtali við
DV að líklega sé um að ræða skatt
svik. Svör hennar voru ekki skýr en
hún sagðist meðal annars ekki hafa
framkvæmt hárlengingar í fjörur ár
– nema kannski í eitt skipti. Það rím
ar alls ekki við frásagnir þeirra við
mælanda sem hér er rætt við.
Eyðilagði hárið
Kristín Rún Sævarsdóttir var tvítug
þegar hún að eigin sögn „lenti í
Bryndísi Báru“. „Ég ætlaði aðeins
að fríska upp á útlitið því ég lenti í
slysi fyrr um árið og sjálfsálitið var
ekki voðalega sterkt. Ég ætlaði að
eins að skvísa mig upp. Hárið bara
skemmdist og varð ógeðslegt. Það
var allt í límklessum og það þurfti að
klippa allt út, þannig að ég var með
lokka hér og þar. Ég þurfti að fara á
aðra stofu til að láta taka þetta úr; sú
var tvo, þrjá tíma að gera það. Hún
sagðist aldrei hafa séð svona illa far
ið hár,“ segir hún í samtali við DV.
Fyrir þetta segist Kristín Rún hafa
borgað um þrjátíu þúsund krónur.
Í kjölfar þessa ákvað hún að reyna
að ná í Bryndísi Báru til að fá endur
greitt. „Ég reyndi að ná í hana eftir
þetta í svolítið langan tíma en hún
svaraði ekkert,“ segir hún.
Neitaði að endurgreiða
Tara Mist Eiríksdóttir segist hafa far
ið í hárlengingu hjá Bryndísi Báru
fyrir um það bil tveimur árum. Hún
segir að Bryndís Bára hafi skemmt
á sér hárið og hafi neitað að endur
greiða henni. „Ég fór til hennar í hár
lengingu, en hafði alltaf farið annað.
Hún setti svona límhárlengingar sem
eyðilögðu hárið á mér. Þær duttu úr
daginn eftir. Hún sagðist ætla að
laga það svo ég fór aftur. Þá setti hún
öðruvísi festingar. Það varð að taka
þær úr því þær flæktu allt hárið og
það varð bara ógeðslegt. Hún neitar
bara að endurgreiða og svarar ekki
símanum. Ég náði á hana núna um
daginn þegar umræðan fór af stað.
Þá sagðist hún ætla að íhuga það að
endurgreiða,“ segir Tara.
Hrundi úr hárinu
Saga Evu Lóu Robertsdóttur af
Grand Hair Extension er talsvert
nýrri en Kristínar Rúnar. „Þetta var
bara fyrir jól. Ég fór í hárlengingu
til hennar sem áttu að vera fastar.
Ég borgaði þrjátíu þúsund kall fyr
ir það. Daginn eftir fer ég í sturtu og
þá fer þetta bara allt úr mér, hrynur
allt. Ég reyni að hafa samband við
hana og segi við hana að ég fari til
lögreglunnar. Hún svarar ekkert og
ég bara gefst upp,“ segir hún.
Fékk hárlenginguna inn um glugga
Samskiptum hennar við Bryndísi
Báru var þó ekki lokið. Þrátt fyrir að
hafa verið brennd einu sinni ákvað
hún að kaupa hárlengingarklemm
ur af Bryndísi Báru í gegnum vin
konu sína þar sem þær eru að henn
ar sögn ófáanlegar á Íslandi, nema
hjá Bryndísi Báru. „Það keypti ég á
tuttugu og eitt þúsund kall. Ég pant
aði þetta á föstudegi og átti að fá á
mánudegi. Eftir mánuð hafði ég
ekki fengið þær og hún svaraði mér
ekkert. Þannig að ég enda með að
n Bryndís Bára viðurkennir skattsvik n „Hárið varð ógeðslegt“
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is „Ég veit
alveg
að það eru
einhverjir
óánægðir
Bryndís Bára Hún segir að óánægðu við-
skiptavinir sínir séu að leggja sig í einelti. Að
hennar sögn hefur hún ekkert gert rangt.
Sviðin jörð í
hárlengingum
„Límklessa“ Bæði
Kristín Rún og Tara
Mist segja að límhár-
lengingar sem Bryndís
Bára setti í hár þeirra
hafi skemmt hár þeirra.
Ósáttar Eva Lóa Robertsdóttir, efst til vinstri; Alexandra Rós Jóhannesdóttir, efst til hægri;
Tara Mist Eiríksdóttir, neðst til vinstri; og Kristín Rún Sævarsdóttir, neðst til hægri. Konurnar
segjast allar hafa komið illa út úr viðskiptum við Bryndísi Báru. Elsta dæmið er sex ára gam-
alt, það nýjast var fyrir nokkrum vikum.