Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Síða 51
Helgarblað 4.–7. júlí 2014 Sport 51
Stefnir á heimSmeiStaratitil
n Fór í aðgerð vegna galla í hrygg n Ráðleggur fólki að æfa ekki eins og hún gerir sjálf
ir Björk. Hún gerði það og gott bet-
ur, því hún endaði sem fyrr segir í
öðru sæti á eftir Annie Mist og skildi
Briggs eftir með sárt ennið.
Hefur skýr markmið
Andlegi hlutinn er stór partur af öll-
um íþróttum og í CrossFit þurfa
keppendur oft að keyra sig áfram
þrátt fyrir að vera orðnir verulega
þreyttir. Björk fékk góða aðstoð frá
manni sem hefur mikla reynslu af
því að vinna með andlega hlið fólks.
„Hann hefur unnið mikið fyrir her-
inn og fólk sem þarf að fórna sér
mikið fyrir starfið sitt. Einhvern veg-
inn fékk hann mig til að ná betri ein-
beitingu á öllum sviðum, hvort sem
er í keppni eða daglegu lífi. Hann
hafði samband þegar ég var að leita
mér að þjálfara og ég fann að þetta
var það eina sem ég hafði ekki stjórn
á. Með hans hjálp var ég með skýrt
markmið og náði að einbeita mér
að því,“ segir Björk sem setur mark-
ið hátt. Hún er nú þegar búin að slá
út einn heimsmeistara, svo af hverju
ætti hún ekki að reyna að sigra Annie
Mist í sumar?
„Nákvæmlega. Það munaði litlu
á okkur í mótinu og það er allt hægt.
Hún var reyndar ekki alveg lík sjálfri
sér en var mjög stöðug eins og ég
sjálf, við vorum ekki endilega að
vinna allar greinarnar en enduðum
alltaf ofarlega,“ segir Björk, en fyrir-
komulagið er þannig að besti sam-
anlagði árangur í öllum æfingum
telur. Þannig var heimsmeistarinn
Samantha Briggs í slæmum málum
eftir fyrstu greinarnar, þar sem hún
endaði mjög neðarlega. Þrátt fyrir að
hún næði að sigra í nokkrum grein-
anna sem eftir voru dugði henni það
ekki, því þær Annie og Björk voru
mjög stöðugar og enduðu nánast
alltaf í efstu sætunum og aldrei utan
efstu tíu keppenda í hverri grein.
Atvinnumaður í
Bandaríkjunum?
Fyrirkomulag CrossFit-keppna hef-
ur verið nokkuð sérstakt og aðeins
fyrirtækið sjálft, CrossFit Inc., hefur
mátt nota nafnið CrossFit í tengsl-
um við keppnir. Þegar mót hafa ver-
ið haldin á vegum annarra, þá hafa
þau fengið nöfn eins og „London
Throwdown“ svo eitthvað sé nefnt.
Nú er atvinnumannadeild í bígerð,
en hún er ekki á vegum CrossFit Inc.,
heldur er hún stofnuð af manni sem
vann fyrir fyrirtækið en sá möguleika
í að búa til annað keppnisfyrirkomu-
lag þótt íþróttin sé sú sama. Deildin,
sem mun kallast NPGL, verður í
Bandaríkjunum og sett upp svip-
uð og NBA, NFL og MLS, svo dæmi
séu tekin. Liðin verða staðsett í stór-
borgum Bandaríkjanna og nú þegar
hefur Katrín Tanja Davíðsdóttir ver-
ið fengin til liðs við Boston Iron og
mun hún því taka þátt í fyrsta keppn-
istímabili NPGL sem byrjar í haust.
Enn er verið að skrá leikmenn í
liðin, en fyrirkomulagið er eins og í
öðrum bandarískum deildum, þar
sem liðin hafa valrétt og geta valið úr
hópi íþróttamanna sem deildin hef-
ur samþykkt. Björk er í þessum hópi
og mun sýna hvað hún getur í sérs-
tökum æfingabúðum sem haldnar
verða 10. júlí. „Ég vonast til að kom-
ast í lið Boston, sama lið og Katrín
Tanja er í. Það eru mjög spennandi
tímar fram undan, en þetta er reynd-
ar ekki mjög langt keppnistímabil.
Þá verð ég áfram í Bandaríkjunum
eftir Heimsleikana í kannski tvo til
þrjá mánuði. Fyrir það fær maður
borgað en ég fæ einnig borgað frá
styrktaraðilum,“ segir Björk, en hún
er með fjölda styrktaraðila sem ger-
ir henni kleift að vinna minna og æfa
meira.
„Allt er búið að
gerast svo hratt“
Hún æfir því eins og atvinnumaður
en er í raun ekki orðinn það enn þá. Á
meðal styrktaraðila hennar eru fata-
framleiðandi, fæðubótarefnafram-
leiðandi, lyftingavöruframleiðandi og
svo mætti lengi áfram telja. Hún fær
laun fyrir keppnir, flugmiða greidda
og svo framvegis. Það er langur vegur
frá því að ætla að fara til Stokkhólms
í þrjá mánuði án nokkurra markmiða
eða áætlana.
„Allt er búið að gerast svo hratt.
Samt einhvern veginn hefur mér
tekist að halda mér á jörðinni,“ segir
Björk. Hún segir að dagur í lífi í Cross-
Fit snúist um lítið annað en að sofa,
borða og æfa. „Ég fer á fætur um átta
og fæ mér stóran morgunverð. Svo fer
ég í æfingasalinn og tek þær tækniæf-
ingar sem ég þarf að taka í tvo til þrjá
tíma. Svo tek ég mér hlé, stundum
þjálfa ég eða fer og geri æfingaáætlan-
ir fyrir viðskiptavini. Það er eina vinn-
an sem ég geri í raun, bý til plön fyr-
ir viðskiptavini og þjálfa suma þeirra.
Þetta er ekkert álag, ég hef það voða
gott og hef ekkert til að kvarta yfir. Svo
æfi ég aftur frá kannski fimm til átta
um kvöldið, áður en ég fer heim að
borða og svo í rúmið,“ segir Björk.
Áhugamál eða íþrótt
Umræða um CrossFit hefur ver-
ið mjög misjöfn og margir virðast
halda að þeir sem séu í íþróttinni
séu allir að æfa eins og Björk.
Hún segir að sem keppnisíþrótt
sé CrossFit nokkuð frábrugðið
æfingakerfinu sem slegið hefur
rækilega í gegn bæði hér á landi,
í Bandaríkjunum og Skandinav-
íu svo eitthvað sé nefnt. „Þetta
er svolítill misskilningur. Ann-
aðhvort ertu með CrossFit sem
áhugamál eða til að halda þér við,
og æfir þá kannski klukkutíma í
senn, þrisvar til fjórum sinnum
í viku. Það eru rosalega margir
sem eru í þessu sem æfa bara til
að láta sér líða vel. Svo erum við hin
sem erum svolítið klikkuð kannski,
þá verður þetta bara að lífinu,“ seg-
ir Björk. Hún tekur undir með blaða-
manni sem segir að þetta sé í raun
hvor sín íþróttin og blaðamanni
leikur einnig forvitni á að vita hvort
það sé ekki erfitt að geta komið sér
á þann stað að vera keppnismann-
eskja í CrossFit?
Þjálfarar skipta öllu máli
„Það fer eftir því hversu mikinn
metnað þú hefur og auðvitað tíma.
Ég segi við mína kúnna að gera ekki
eins og ég, heldur að gera það sem
ég segi þeim að gera. Þeir sjá okkur
hin gera einhverjar svaka æfingar
og það er ekki alveg það besta sem
þau geta gert fyrir líkamann sinn. Ég
í það minnsta þjálfa ekki venjulega
viðskiptavini eins og ég æfi,“ seg-
ir Björk. Hún segir að svona íþrótt
snúist aðallega um að halda líkam-
anum heilum en ef einhver undir-
liggjandi meiðsli eru til staðar þarf
að fara varlega. „Ef viðkomandi er
meiddur í öxlinni, þá segir maður
bara sorrí. Þá er hann ekkert að fara
að ná einhverjum svaka árangri í
þessu. Það er allur líkaminn notaður
og það verður allt að vera í jafnvægi.
Það er oft mjög erfitt og maður þarf
líka að passa sig að ofgera sér ekki og
keyra á einhvern vegg á endanum.
Ég mæli samt með því fyrir alla að
æfa CrossFit, en það verður að vera á
góðri stöð með góðan þjálfara. Þeir
skipta höfuðmáli, að mínu mati geta
allir gert þetta ef þjálfararnir eru
góðir. Ég mæli ekki með því að fólk
sé að gera þetta sjálft frá byrjun og
herma eftir einhverju sem það sér á
netinu. Við erum í það minnsta með
mjög miklar kröfur hér í CrossFit
Nordic og allir geta gert æfingu dags-
ins, á mismunandi hátt. Einhver sem
er of þungur, stirður eða eldri, hann
tekur léttari þyngdir og svo framveg-
is. Fyrst og fremst er hreyfingin góð
og í þessu notar maður allan lík-
amann svo mikið,“ segir Björk.
Hugsar ekki um áhorfendur
Hennar stærsta upplifun í íþrótt-
um nálgast nú óðfluga, búist er við
meira en 25 þúsund áhorfendum
á Heimsleikunum í júlí og keppnin
virðist stækka með hverju ári. Björk
hefur nú þegar keppt fyrir fram-
an fjölda manns á Evrópuleikun-
um og þá er sigurinn með Gerplu
árið 2010 eftirminnilegur. „Ég ætla
að reyna að læra mikið á Heimsleik-
unum. Það verður mjög heitt en ég
hef reynt að undirbúa mig, verið að
æfa erlendis og jafnvel úti. Málið er
að vera með gott plan, drekka nóg
og vera ekki í sólinni að óþörfu. Þá
verður þetta allt í góðu,“ segir Björk.
Hún segist ætla að njóta þess að hafa
svo marga að horfa á sig en gerir fjöl-
skylda hennar og vinir sér grein fyrir
því hversu stórt þetta er?
„Ég auðvitað umgengst mikið fólk
sem er bara í þessu og þekkir þetta.
Fjölskyldan mín er kannski ekki al-
veg að ná þessu. Þegar ég er komin
í mitt „zone“ þá einbeiti ég mér bara
að sjálfri mér og næ að loka á ann-
að. Það er kannski ekki fyrr en eftir á
sem maður hugsar um þetta og get-
ur notið þess. Reynslan frá öðrum
stórmótum skilar sér og Evrópuleik-
arnir voru stærri en Evrópumótið
með Gerplu en ég man samt rosa-
lega vel hvernig það var og hvern-
ig mér leið. Maður upplifði sig sem
rokkstjörnu á gólfinu og að ná öll-
um þessum markmiðum með öllum
þessum stelpum var þvílíkt afrek, að
tuttugu 20 ára stelpur næðu þess-
um árangri saman. Það þarf mik-
ið að koma saman og það tók okkur
tvö ár að ná þessu markmiði og það
er alltaf sérstök tilfinning þegar það
gerist svo loksins.
Það fann ég aftur á Evrópuleikun-
um nema þá var ég ein að ná þessu,
þótt auðvitað eigi maður alltaf ein-
hverjum að þakka sinn árangur og er
aldrei alveg einn. Ég naut þess með
þeim og þetta verður ótrúlega gam-
an,“ segir Björk Óðinsdóttir. Áhuga-
samir geta fylgst með Björk á heima-
síðu CrossFit-leikanna, games.
crossfit.com, þegar Heimsleikarnir
fara fram en allir viðburðir eru sýnd-
ir þar í beinni útsendingu og upp-
tökur eru einnig aðgengilegar. Sem
fyrr segir fara þeir fram í Carson í
Kaliforníu og fyrsti keppnisdagur er
23. júlí. n
Evrópumeistari með Gerplu Björk var í liði Gerplu sem varð Evrópumeistari í hóp-fimleikum árið 2010. Hún er önnur frá vinstri á myndinni. Mynd AndrEAs GustAfsson
Með mikið keppnisskap
„Ég ætlaði nú bara að halda mér
í formi, var búin að ákveða að
íþróttaferillinn yrði ekki lengri
vegna verkjanna sem voru að
fara með mig. Keppnisskapið er
samt aldrei langt undan og ég
keppti á sænsku meistaramóti,
sem ég vann svo.“ Mynd MikAEl svärdH
„Maður
upplifði
sig sem
rokkstjörnu
á gólfinu.