Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 12
Vikublað 29.–31. júlí 201412 Fréttir
E
mbætti lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu var ekki
auglýst laust til umsóknar eins
og gert var þegar Stefán Eiríks
son var skipaður í embættið
árið 2007. Í staðinn var Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á
Suðurnesjum, flutt til Reykjavíkur og
skipuð í starfið af Hönnu Birnu Krist
jánsdóttur innanríkisráðherra. Öðru
máli gegnir um hin nýju lögreglu
umdæmi þar sem sérstakri valnefnd
var falið að tilkynna um skipan lög
reglustjóra.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Sigríður er skipuð í embætti án aug
lýsingar. Árið 2007 skipaði Björn
Bjarnason, dóms og kirkjumálaráð
herra, hana í embætti aðstoðarríkis
lögreglustjóra án þess að starfið hefði
verið auglýst. Þá skipaði hann Sig
ríði sem lögreglustjóra á Suðurnesj
um árið 2008 í kjölfar umdeildrar
ákvörðunar um að auglýsa stöðu
sitjandi lögreglustjóra lausa.
Björn og Hanna Birna hafa átt
náin samskipti í gegnum árin
en hann hefur ítrekað komið
henni til varnar í Lekamálinu.
Viðmælendur DV innan
lögreglunnar segja ljóst að
mikið traust hafi ríkt á milli Sig
ríðar og Björns alveg síðan hún
gegndi stöðu aðstoðar
ríkislögreglu
stjóra. Um
talað sé að
Sigríður hafi
lengi verið í
náðinni hjá
ráðherr
um Sjálf
stæðis
flokks
ins.
Sviptingar á Suðurnesjum
Sigríður var skipuð lögreglustjóri á
Suðurnesjum árið 2008. Þá hafði
Björn Bjarnason auglýst
stöðu Jóhanns R. Bene
diktssonar, þáverandi
lögreglustjóra, lausa til
umsóknar án nokkurs
tilefnis. Jóhann hafði
þótt farsæll í starfi
og notið stuðnings
á meðal starfsmanna
embættisins. Þrír lykil
starfsmenn sögðu
upp störf
um vegna
málsins.
Viðmæl
andi DV
innan
lögreglunnar segir umtalað að Jóhann
hafi gert þau mistök að sinna bak
landinu ekki nógu vel – ráðuneytinu.
Það hafi Sigríður Björk hins vegar gert
alla tíð.
Lögreglufélag Suðurnesja brást
við ákvörðun Björns með harðorðri
ályktun um að starfsemi lögreglunnar
þyrfti að vera óháð duttlungum stjórn
málamanna: „Félagsmenn í Lög
reglufélaginu telja mikilvægt að hags
munafélög lögreglumanna og aðrir
sem láta sig málið varða taki ákvörðun
Björns til ítarlegrar skoðunar og kanni
Í náðinni hjá Birni
og Hönnu Birnu
n Sigríður á framabraut innan lögreglunnar n Hefur áður verið skipuð án auglýsingar
F
ljótlega eftir að ríkissaksóknari vísaði Leka
málinu til lögreglurannsóknar þann 7. febrú
ar vöknuðu spurningar um það hvort Hönnu
Birnu bæri að víkja tímabundið sem ráðherra
meðan á rannsókn stæði. Lögreglumenn sem DV
ræddi við sögðu „óþægilegt“ að málið væri kom
ið inn á þeirra borð. Bent var á að Stefán Eiríksson
væri undirmaður ráðherra sem hefði framtíð hans í
starfi í hendi sér, þar á meðal hvort hann fengi áfram
haldandi skipun í embætti árið 2016.
Það er fordæmalaust í íslenskri stjórnmálasögu
að fram fari lögreglurannsókn á verkum innanríkis
ráðuneytis fyrir tilstuðlan ríkissaksóknara. Sigur
björg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur og lektor
í opin berri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, sagði í
samtali við DV þann 9. febrúar að eðlilegast væri fyr
ir ráðherra að víkja á meðan rannsóknin færi fram.
„Hún var æðsti yfirmaður ráðuneytisins þegar upp
lýsingarnar birtust í fjölmiðlum og því er mikilvægt
fyrir trúverðugleika rannsóknarinnar og stjórnsýsl
unnar í heild sinni að hún víki tímabundið […] Ég tel
eðlilegt að ráðherra sé ekki á vettvangi á meðan mál
ið er rannsakað. Slík ráðstöfun væri viðeigandi, ekki
síst vegna þess að undirmenn ráðherra [lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu] munu annast rannsóknina,“
sagði Sigurbjörg.
DV ræddi við fjölda lögreglumanna í febrúar.
Bentu þeir á að staða rannsóknarinnar væri sérstak
lega erfið í ljósi þess að bróðir Hönnu Birnu, Theódór
Kristjánsson, væri yfirmaður tæknideildar og tölvu
rannsókna og rafeindadeildar. Theódóri var lýst
sem mjög valdamiklum innan lögreglunnar og því
gæti rannsóknin reynst óbreyttum lögreglumönnum
óþægileg. Stefán Eiríksson staðfesti við DV að Theó
dór kæmi ekki að henni.
Einn af viðmælendum DV sagði að lögreglumenn
ræddu það sín á milli hversu óþægilegt væri „að vera
með mál til rannsóknar sem snertir á svona mörgum
áhrifapunktum.“ Annar starfandi lögreglumaður tók
undir þetta: „Mönnum er bara misboðið, það verð
ur að segjast eins og er.“ Heimildir DV innan úr lög
reglunni herma að rannsakendur málsins hafi ekki
orðið varir við afskipti ráðherrans. Mörgum kom hins
vegar á óvart þegar Stefán Eiríksson ákvað að hætta
störfum. „Það er alveg ljóst að eitthvað hefur Stef
án gert til þess að tapa trausti ráðherrans,“ sagði lög
reglumaður sem DV ræddi við um helgina.
Erfið staða fyrir lögregluna
Fannst óþægilegt að rannsaka ráðherra
réttmæti hennar.“ Fljótlega komst sá
kvittur á kreik að Sigríður yrði ráðin til
starfans enda nyti hún trausts Björns.
Málinu voru gerð skil á Vísi en þar
vildi Sigríður hvorki játa því né neita
hvort hún hygðist sækja um. Fjórir
sóttu um starfið, en Sigríður var ráðin
einungis þremur dögum eftir að um
sóknarfrestur rann út.
Hörð í hælisleitendamálum
Sigríður hefur starfað sem lögreglu
stjóri á Suðurnesjum í sex ár og þyk
ir hafa staðið sig vel í baráttunni gegn
heimilisofbeldi. Margir hafa fagnað
ráðningu hennar í Reykjavík, enda í
fyrsta skipti sem kona gegnir emb
ættinu. Sigríður hefur sætt gagnrýni
vegna harðrar afstöðu í málefnum
hælisleitenda en sem lögreglustjóri
Suðurnesja lýsti hún yfir vilja til þess
að halda áfram að refsa hælisleitend
um fyrir framvísun falsaðra skilríkja.
Þetta kom fram í umsögn Sigríðar við
þingsályktunartillögu um undirbún
ing frumvarps til útlendingalaga þar
sem stefnt var að því að hætta slíkum
refsingum.
Talskona flóttamannahjálpar Sam
einuðu þjóðanna hefur gagnrýnt ís
lenska ríkið fyrir að fara ítrekað á svig
við 31. grein flóttamannasamningsins
sem Ísland er aðili að. Ákvæðið kveð
ur á um bann við því að hælisleitend
um sé refsað fyrir ólöglega komu til
landsins að því gefnu að þeir gefi sig
tafarlaust fram við yfirvöld viðkom
andi ríkis. „Það er alveg skýrt að það
á ekki að refsa flóttamönnum fyrir
ólöglega innkomu til landsins. Þessi
vinnubrögð eru ekki í samræmi við al
þjóðalög,“ sagði talskonan. Í umsögn
sinni hélt Sigríður því hins vegar fram
að íslenska ríkið væri ekki að brjóta
flóttamannasamninginn með því að
fangelsa hælisleitendur.
Rannsakaði Tony
Ljóst er að Hanna Birna, rétt eins og
Björn Bjarnason, ber mikið traust til
Sigríðar. Ef ríkissaksóknari fer fram á
frekari lögreglurannsókn á ráðuneyti
Hönnu Birnu mun Sigríður að öllu
óbreyttu hafa yfirumsjón með henni.
Sigríði er Lekamálið ekki alls
óskylt, en á Suðurnesjum var hún í
forsvari fyrir mansalsrannsókn sem
hælisleitandinn Tony Omos flæktist
inn í. Nú gæti hún þurft að rannsaka
meint brot innanríkisráðuneytisins
gegn Tony og barnsmóður hans Ev
elyn Glory Joseph.
Upplýsingar frá Suðurnesjum
Minnisblað innanríkisráðuneytis
ins sem endaði í höndum 365 miðla
og Morgunblaðsins byggði meðal
annars á upplýsingum frá lögreglunni
á Suðurnesjum. Þá hefur verið upplýst
að ærumeiðandi aðdróttunum var
bætt við skjalið í formi lokasetningar
þar sem fullyrt var að Tony Omos
hefði beitt Evelyn þrýstingi til þess að
segja að hann væri barnsfaðir hennar.
Voru þessar upplýsingar sagðar koma
fram í rannsóknargögnum málsins en
Hanna Birna hefur sjálf viðurkennt
að um ærumeiðandi aðdróttanir hafi
verið að ræða.
Lögreglan á Suðurnesjum vildi
ekki tjá sig um málið þegar DV falað
ist eftir upplýsingum um það í desem
ber hvort Tony Omos væri með stöðu
grunaðs manns í mansalsmálinu. Fyrr
í sumar staðfesti lögreglan hins vegar
við fréttastofu RÚV að Tony væri enn
grunaður. DV sendi þá Sigríði Björk
fyrirspurn og leitaði staðfestingar á
þessu atriði. Í svari sem DV barst frá
embættinu þann 11. júlí kom fram að
rannsókninni væri lokið og að málið
biði nú afgreiðslu hjá lögfræðingum
embættisins. Á þeim vettvangi yrði
tekin ákvörðun um framhald þess. n
„Mikilvægt að
hagsmunafélög
lögreglumanna og aðrir
sem láta sig málið varða
taki ákvörðun Björns til
ítarlegrar skoðunar.
Á framabraut Sigríður
var skipuð í embætti lög-
reglustjóra án auglýsingar
og formlegs umsóknarferlis.
Mynd KRiSTinn MagnúSSon
Flutti Sigríði Hanna Birna lét flytja Sigríði
til Reykjavíkur í stað þess að auglýsa emb-
ætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
laust til umsóknar.
Skipaði Sigríði
Björn Bjarnason
skipaði Sigríði í
embætti lögreglu-
stjóra á Suðurnesj-
um árið 2008 og
sem aðstoðarríkis-
lögreglustjóra árið
þar á undan.