Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 29.–31. júlí 201414 Fréttir
„Það var eins og Það væri
búið að uppstoppa mig“
É
g get ekki útskýrt hvað gerð
ist en það var eins og ég
væri tölva og það væri bara
slökkt á mér. Ég bara fraus
en var með meðvitund. Það
var eins og það væri búið að upp
stoppa mig.“ Svo lýsir Alexandra
Sif Baldvinsdóttir, í samtali við
DV, nauðgun sem hún segist hafa
orðið fyrir þann 14. desember síð
astliðinn. Í viðtali við DV lýsir hún
atvikinu í smáatriðum sem og því
óréttlæti sem hún telur sig hafa
orðið fyrir. Málið var fellt niður ný
verið og var Alexöndru sagt í bréfi
frá ríkissaksóknara að ekki teldust
líkur á sakfellingu. Hún segist hafa
mætt vantrú jafnt hjá ákæruvaldinu
sem og sínum nánustu. Hún segist
enn kljást við afleiðingar nauðg
unarinnar.
Ákvað að leggja sig á
svefnsófa
Atvikið átti sér stað í íbúð hjá
Blindrafélaginu sem vinir Alex
öndru höfðu leigt. „Þetta var
þannig að þau voru búin að drekka
eitthvað en ég var búin að vera
heima hjá mömmu minni. Þá hr
ingdi í mig gamall vinur og spurði
hvort ég vildi ekki hitta þau. Þá var
þetta sem sagt vinur minn, kærasta
hans og svo gerandinn. Ég þekki
þau öll sömul. Þau voru að drekka
og gáfu mér nokkra sopa en ég var
ekki einu sinni farin að finna á mér.
Klukkan var orðin svo margt að ég
spurði hvort við ættum ekki að fara
að sofa, ég nennti ekki að labba
heim strax. Gerandinn sagði við
mig að hann gæti skutlað mér heim
í fyrramálið,“ segir Alexandra. Það
boð þáði Alexandra. Í kjölfar þessa
er ákveðið að hún og gerandinn
leggi sig á svefnsófa sem var í íbúð
inni.
Þóttist sofa
Alexandra segir að henni hafi þótt
þetta fyrirkomulag mjög óþægilegt
og því hafi hún lagst í rekkju í öll
um fötum. „Ég hef aldrei haft neinn
áhuga á honum, þetta var bara
kunningi. Við horfðum á mynd
og ég hafði tölvuna á milli okk
ar svo hann væri ekki upp við mig.
Ég var alveg að sofna og hann var
eiginlega ekkert að horfa svo ég
slökkti á tölvunni og fór að sofa.
Síðan þegar ég var ekki alveg sofn
uð en samt alveg að sofna þá var
hann kominn upp við mig og byrj
aði að snerta mig. Ég hugsaði að ef
ég þættist bara vera sofandi og þá
hlyti hann að hætta. Hann hætti
ekki og gekk alltaf lengra og lengra.
Ég bara panikkaði. Þetta var aldrei
samþykkt, þetta kvöld var ég ekki
einu sinni búin að knúsa hann. Ég
hafði ekki einu sinni klappað hon
um á bakið. Ég var aldrei búin að
sýna honum að ég vildi þetta,“ segir
Alexandra.
Fór á annan stað
Að hennar sögn gerðist þetta mjög
snemma morguns, um það bil
klukkan sex. „Hann gekk bara alltaf
lengra og lengra. Ég fór bara yfir á
einhvern annan stað. Ég sé enn þá
eftir því að hafa ekki sagt eitthvað
við hann: „hættu þessu, ég vil þetta
ekki“. Það er erfitt fyrir mig að koma
fram með þetta því ég veit að fólk
á eftir að segja: „já, þetta er bara
kjaftæði. Hún hefði alveg getað
sagt nei.“ Það er ekkert svo auðvelt.
Maður getur aldrei vitað hvernig
maður bregst við,“ lýsir hún.
Leið eins og hún væri skítug
Alexandra segir að eftir að ger
andinn lauk sér af hafi hún beðið
eftir því að hann sofnaði. „Ég heyrði
að hann var byrjaður að hrjóta og
ég vissi ekkert hvað ég átti að gera.
Hvort ég ætti að vera þarna og láta
eins og ekkert hefði gerst eða fara.
Ég bara meikaði ekki að vera þarna
lengur þannig að ég fór inn á kló
sett og ég fann að hann hafði fengið
sáðlát því það fer ekkert á milli mála
þegar það gerist. Ég var aðeins inni
á klósetti og ekki alveg búin að átta
mig á því hvað hafði gerst. Það hef
ur eitthvað verið að hjá honum því
það var alveg svakaleg lykt af þessu.
Mér leið eins og ég væri ógeðslega
skítug,“ segir Alexandra.
Gekk heim eins og
uppvakningur
Eftir stutta dvöl á klósettinu ákvað
Alexandra að læðast fram, ná í föt
in sín og fara úr íbúðinni. „Þegar ég
var að labba heim þá var ég eins og
uppvakningur. Ef ég hefði verið að
keyra þarna framhjá og séð sjálfa
mig hefði ég orðið hrædd. Ég var
bara svo dofin, leið rosalega illa og
vissi ekkert hvað ég átti að gera. Ég
sendi mágkonu minni SMS en ég
leita alltaf til hennar ef mig vant
ar ráðleggingu. Ég kom heim og þá
var fósturfaðir minn vakandi. Ég
sagði ekki neitt, labbaði bara inn
og lét eins og ekkert væri. Ég reyndi
bara að vera hress og láta eins og
ég er alltaf. Pabbi var að ýta und
ir að ég færi í bað en ég vildi það
ekki fyrr en ég vissi hvað ég ætti að
gera,“ segir Alexandra. Hún segist
hafa verið hrædd um að með því
að þrífa sig væri hún að eyðileggja
sönnunargögn.
Ótrúlegt að hún kærði
Stuttu síðar sækir mágkona Al
exöndru og fara þær á bráðamót
töku Landspítalans. „Þar var bara
farið með mig beint inn á deild. Ég
fann að ég var enn þá skelkuð, enn
þá að átta mig á því að þetta hefði
gerst. Ég þurfti að vera í nærbuxun
um og þurfti að vera með þetta inni
í mér í rúma fjóra klukkutíma. Mér
fannst þetta ótrúlega óþægilegt,“
lýsir Alexandra. Á bráðamóttök
unni var hún spurð hvort hún vildi
kæra sem hún ákvað að gera. „Mér
finnst ennþá ótrúlegt í dag að ég
hafi sagt já. Ég hugsaði fyrst að ég
vildi ekki gera vandamál úr þessu
en þetta er bara ekki í lagi. Í dag er
ég fegin að ég gerði það,“ segir hún.
Alexandra segir að um leið og lög
reglukona hafði komið og talað við
hana hafi hún brotnað niður. „Ég
bara grét og grét því allt í einu var
þetta svo raunverulegt.“
Misræmi á orðum og skýrslu
Eftir þetta hafi Alexandra verið í
tilfinningalegum rússíbana. „Ég
fór þarna í skoðun og það var tek
ið sýni og læknirinn segir sem sagt
við mig að sáðfrumurnar séu ekki
lifandi, þær séu ekki virkar. Þrátt
fyrir þetta kemur fram í skýrslunni
frá bráðamóttökunni að það hafi
ekki fundist neinar sáðfrumur,“
segir Alexandra. Hún minnist þess
að læknir hafi sagt henni að af líf
sýni mannsins að dæma væri eitt
hvað í ólagi hjá honum. Alexandra
telur að þetta misræmi skýri hvers
vegna málið hafi verið fellt niður.
„Þetta var það eina sem ég hafði til
sönnunar.“
„Ég er ekki eitthvert leikfang“
Hún segir að um tíma hafi hún haft
samúð með gerandanum en svo
hafi hún áttað sig á alvarleika máls
ins. „Með hverri mínútunni fór ég
að hugsa meira um hvað væri að
honum að vera að þessu. Bara það
að ég hafi legið þarna með lok
uð augun og ekki tekið neinn þátt
í þessu. Hann getur ekki sagt að
hann hafi haldið að ég hafi viljað
þetta allt. Maður tekur alveg eftir
því hvort manneskjan sé að taka
þátt eða ekki. Ég gat bara ekki látið
valta svona yfir mig. Ég er ekki eitt
hvert leikfang, ég á skilda virðingu.
Ég stend aldrei upp fyrir sjálfri mér,
það er voða sjaldan sem ég geri það
því ég vil ekki vesen. Ég gat bara og
get ekki sleppt þessu,“ segir Alex
andra með áherslu.
„Þetta er svo ósanngjarnt“
Alexandra segir að helsta ástæðan
fyrir því að hún komi nú fram með
sögu sína sé vegna þess að málinu
hafi verið vísað frá. „Það eru svo
mörg svona mál sem er vísað frá.
Það eru svo fáar nauðganir sem fara
í gegn. Til hvers er maður að reyna
að kæra? Þetta er svo ósanngjarnt,“
segir hún. Amma Alexöndru, sem
sat með í viðtalinu, segir sömuleið
is að það sé oft á tíðum lítið gert úr
stelpum og þeirra ásökunum. „Ég
tala nú ekki um svona ungar stelp
ur. Það er svo oft efast um það sem
þær segja. Þær eru oft skíthræddar
um að segja eitthvað því þá eru þær
bara lamdar,“ segir hún.
Nauðgunin eyðilagði lífið
Alexandra segir að nauðgunin hafi
haft ómæld áhrif á hana. „Það sem
þetta er búið að gera mér, það end
að með því að ég gat ekki vaknað á
morgnana. Þetta gerðist á aðfara
nótt laugardags og á sunnudegi
kom sonur minn heim úr pabba
helgi. Ég tók á móti syni mínum há
grátandi. Barnsfaðir minn hélt að
einhver hefði dáið. Eftir þetta gat
ég ekki sofið á nóttunni, ég bara
grét og grét. Mér fannst ég líka svo
n Alexandra Sif segir frá því þegar henni var nauðgað viku fyrir jól n Mætti skilningsleysi og fordómum n Fann til með gerandanum
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Fær ekki réttlæti Alex-
andra Sif segir að sér hafi
verið nauðgað af kunningja
sínum rétt fyrir síðastliðin
jól. Málinu var vísað frá þar
sem nægilegar sannanir
þóttu ekki fyrir ásökunum
hennar. MyNd Hörður SveiNSSoN
„Hann
gekk bara
alltaf lengra og
lengra. Ég fór
bara yfir á ein-
hvern annan stað.