Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Side 19
Helgarblað 26.–28. júlí 2014 Skrýtið 19
Atvinnan vék
fyrir draumnum
Margir áttu sér drauma
í æsku sem urðu að lúta
í lægra haldi fyrir hefð-
bundnum starfsframa
til að eiga salt í grautinn.
Hér eru þó átta einstak-
lingar sem ákváðu að
yfirgefa örugga atvinnu
til að elta drauma sína,
sem voru hreint ekki
venjulegir.
Lögfræðingur sem varð mennsk fallbyssukúla
Þetta er hinn þrítugi Gary Stocker sem útskrifaðist frá Oxford-háskóla með gráðu í
lögfræði. Hann bjó í 115 milljóna króna stórhýsi og var vel virtur innan lögfræðigeirans
þegar hann ákvað að hætta í vinnunni og selja húsið árið 2012 til að stofna sirkus ásamt
félaga sínum Mark Foot. Sirkusinn er nefndur í höfuðið á Charlie Chaplin og er þar sett á
svið sýning sem segir frá sirkus sem stefnir í gjaldþrot en er bjargað af uppfinningamanni
sem finnur upp á fyrstu fallbyssunni fyrir mennskar „kúlur“. Gary hannaði sína eigin út-
gáfu af þessu víðfræga atriði og gengur undir nafninu The Great Herrmann, þegar hann
smeygir sér sjálfur í fallbyssuna. Ein helsta ástæðan fyrir því að hann ákvað að hætta
hjá lögfræðifyrirtækinu er þessi: „Ég var með mjög há mánaðarlaun. Einn daginn sagði
yfirmaðurinn við mig: Þú átt eftir að þéna svo mikið að þú átt ekki eftir að geta hætt. Það
var þá sem ég sagði upp.“
Knattspyrnumaður-
inn sem varð prestur
Bandaríkjamaðurinn Chase Hilgenbrinck
var frambærilegur knattspyrnumaður
sem gerðist atvinnumaður í íþróttinni
í Chile. Hann leitaði þó ávallt á náðir
trúarinnar á sunnudögum til að uppfylla
andlegar þarfir sínar, eitthvað sem
minnti hann á einfaldari tíma þegar
hann var ungur að aldri. Eftir að hafa
snúið aftur til Bandaríkjanna og skrifað
undir samning í MLS-deildinni var hann
þó ekki ánægður. 26 ára gamall tilkynnti
hann að hann væri hættur knattspyrnu-
iðkun og ætlaði að gerast prestur.
Tískuhönnuðurinn sem
gerðist munkur Hin 24 ára Ting
Tien gerði nokkuð sem fæstir bjuggust við
af henni. Hún starfaði sem tískuhönnuður
og lifði góðu lífi en ákvað einn daginn að
gefa það líferni upp á bátinn til að gerast
munkur. Hún bjó í borginni Jinan í Kína og
hafði það gott eftir að hafa útskrifast úr
háskóla. Hún fékk þó nóg af veraldlegum
gæðum sem fylgdum nútíma manninum og
ákvað að ganga í Xinlongdongzhi-klaustrið
sem er til fjalla í Sichuan-héraði og tæpa
fjögur þúsund metra yfir sjávarmáli.
Presturinn sem
varð Elvis-eftir-
herma Árið 2012 ákvað þessi
prestur að hætta að predika og
gerast Elvis-eftirherma. Hann sagði
guð hafa sent sér skilaboð um að
fylgja Elvis. Presturinn heitir Andy
Kelso, 64 ára gamall, en hann hóf
að skemmta gestum skemmtistaða
sem konungur rokksins. Hann
hefur þó ekki aðeins haldið sig við
skemmtistaðina því hann hefur
einnig sungið Elvis-lög í kirkju. „Einn
daginn var ég að viðra hundana mína
og fékk þá afar skýr skilaboð frá guði
sem sagði: Farðu með Elvis í kirkjuna.
Mér varð að vonum brugðið en eftir
eitt kirkjugigg fékk ég símtöl frá
öðrum kirkjum sem vildu komast í
betri tengsl við samfélagið og atriðið
mitt virðist virka. Þegar ég kem fram
í kirkjum eru bekkirnir þétt setnir.“
Amish-stúlkan sem varð módel Hin 23 ára gamla Kate Stoltz
sagði skilið við Amish-trúflokkinn til að gerast fyrirsæta í New York. Þegar hún var unglingur
var henni bannað að taka ljósmyndir sökum strangra reglna Amish-samfélagsins. Meðfram
náminu sinnti hún bústörfum ásamt því að elda fyrir fjölskyldu sína. Eftir að hún kom fram í
raunveruleikaþættinum Breaking Amish fékk hún samning hjá umboðsskrifstofunni Major
Model Management og hefur ekki litið til baka síðan.
Hætti og varð milljónamæringur í gegnum
Minecraft Joseph Garrett hafði gert allt rétt. Hann útskrifaðist úr háskóla
og fékk sér vinnu. Ástríða hans lá þó í tölvuleikjum og tók hann upp á því að birta
myndbönd á myndbandavefnum YouTube þar sem hann spilar tölvuleikinn Minecraft.
Þessi myndbönd slógu svo sannarlega í gegn og er Joseph orðinn milljónamæringur í
dag. YouTube-rásin hans er með meira áhorf en rásir One Direction og Justins Bieber til
samans. Tekjurnar fær hann af auglýsingum frá Google sem birtast áður en myndbönd
hans spilast.
Verkfræðingurinn sem gerðist leikbrúðustjórnandi Hún varð þekkt á einni nóttu í Bandaríkjunum
í vetur þegar hún tilkynnti í auglýsingu þegar leikið var um Ofurskálina í NFL-deildinni að hún væri hætt í vinnunni. Hún gaf fjölmiðlum færi á
viðtali eftir auglýsinguna en fór fram á að eftirnafn hennar yrði ekki birt. Hún heitir Gwen og er 36 ára. Hún starfaði sem vélaverkfræðingur
áður en hún ákvað að hætta til að gerast leikbrúðustjórnandi.
Módelið
sem gerðist
nunna Olalla
Oliveros var þekkt fyr-
irsæta á Spáni og hafði
leikið í kvikmyndum áður
en hún ákvað að breyta
algjörlega um lífsstíl og
ganga í klaustur. Þegar
hún heimsótti klaustur
í Portúgal varð hún
fyrir vitrun. Henni fannst
upplifunin furðuleg í
fyrstu en gat síðar ekki
hugsað sér að ganga í
öðrum klæðnaði en þeim
sem nunnur klæðast.
Hún gerðist í kjölfarið
nunna og breytti nafninu
í Systir Olalla del Sí de
María árið 2010.