Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Qupperneq 21
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Umræða 21
Kannski enda ég bara
í einskis manns landi
Ari Frank Inguson heldur til Frakklands í leit að föður sínum. – DV
Ég ætla að standa
þetta af mér
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, stofnandi Gyðju Collection, er ósátt við MP banka. – DV
Allir eiga rétt á
öðrum séns
Hilldur Lilliendahl Viggósdóttir skrifar um nauðgara. – Facebook
Myndin Verk á vegg Listaverk Söru Riel og Thomasar Korn á Njálsgötu. Mynd Hörður SVeInSSon
Sambandsleysi á stjórnarheimilinu
Þ
ar sem ég sit á Kaffi Klöru
hér heima í Ólafsfirði velti
ég því fyrir mér hvernig
ríkis stjórnin og verk henn-
ar birtast mér meðal annars
í fjölmiðlum. Það er að sjá sem flokk-
arnir séu nánast ekki sammála um
nokkurn skapaðan hlut. Forystu-
menn ríkisstjórnarflokkanna skipt-
ast á að koma fram í fjölmiðlum og
vera ósammála. Þeir virðast jafnvel
ekki kunna vel hvor við annan og hálf
dapurlegt er að horfa á sambands-
leysið á milli þeirra.
Óbragð Sjálfstæðisflokksins
Fiskistofuflutningurinn er eitt af
mörgum dæmum um það. Sjálf-
stæðisflokkurinn, skv. því sem birtist
í fjölmiðlum, virtist ekki vita af þeim
gjörningi Framsóknarmanna fyrr
en rétt áður en hann var tilkynntur
opin berlega og á þingmönnum
flokkanna er ekki að heyra að um
málið hafi verið fjallað innan þeirra
með formlegum hætti. Svo ekki sé
nú minnst á lagalegu óvissuna um
gjörninginn.
En vissulega voru Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn sammála þegar kom að stór-
felldri lækkun veiðigjalda eða því
að framlengja ekki auðlegðarskatt-
inn. En upplifun mín á þingi þegar
skuldamálin voru afgreidd var sú að
Sjálfstæðismenn væru með óbragð
í munninum við þá aðgerð Fram-
sóknarflokksins en létu sig hafa
það gegn útfærslu er varðar sér-
eignarsparnaðinn.
nei eða já
Framsókn vildi áburðarverk-
smiðju, nei sagði Ragnheiður Elín,
sjálfstæðis ráðherra.
En þessi sama Ragnheiður vildi
ryðja braut fyrir bandaríska versl-
unarrisann Costco sem vill meðal
annars selja brennivín, lyf og ferskt
kjöt í einni og sömu versluninni en
Sigmundur Davíð og þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins sögðu
meira og minna allt kjöt mengað frá
Ameríkunni og eru lítið spenntir fyrir
hugmyndinni – gæti jafnvel reynst
landanum hættuleg.
Bjarni er staðfastur í að lækka
skatta en Sigmundur Davíð telur það
ekki tímabært.
Þegar kemur að stóra málinu
varðandi afnám haftanna og upp-
gjöri þrotabúanna þá hefur Bjarni
verið minna spenntur fyrir gjald-
þrotaleiðinni sem Framsóknarflokk-
urinn hefur talað fyrir.
Framsókn hefur verið meira áber-
andi í umræðunni fyrir sína fram-
göngu en ef við skoðum hugmyndir
og aðgerðir Sjálfstæðisflokksins þá er
ekki nema von að fólk haldi að lítið
hafi flokkurinn lært af Hruninu.
Úlfúðin
Nú álykta sveitarstjórnir víða um
land vegna aðgerða heilbrigðis-
ráðherrans Kristján Þórs og telja
að hann hafi ekki staðið við að eiga
raunverulegt samráð vegna samein-
ingar heilbrigðisstofnana.
Illugi telur ekkert standa í vegi
fyrir því að breyta lögum eða laga til
með öðrum hætti til að hægt sé að
einkavæða grunnskólann.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
telja allflestir að Hanna Birna hafi
staðið sig vel þrátt fyrir allt sem fram
hefur komið og varðar lekamálið og
hælisleitendur og engin ástæða sé
fyrir hana að stíga til hliðar með-
an á sakamálarannsókn stendur.
Er hrædd um að hátt hefði heyrst í
hennar flokksfélögum ef þetta hefði
átt við einhvern úr síðustu ríkis-
stjórn.
Fólk þóknanlegt Sjálfstæðis-
flokknum er sett í valnefnd til að
finna nýjan seðlabankastjóra sem
væntanlega þarf að vera nokkuð
sammála ríkisstjórninni en ekki
hegða sér eins og um sé að ræða
sjálfstæða stofnun sem veita á ríkis-
valdinu aðhald fremur en annað.
erlendir sökudólgar
Flokkurinn er „svag“ fyrir því að selja
Landsvirkjun og hluta í Landsbank-
anum. Svo til að kóróna þetta allt
skrifaði Bjarni Ben undir hugmynd
Hannesar Hólmsteins um að hann
myndi nú „meta erlenda áhrifa-
þætti á bankahrunið“. Þar á Hannes
líklega að finna erlenda sökudólga
á hruninu á Íslandi og draga fjöður
yfir andvaraleysi og lélega hagstjórn
ríkisstjórna Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar.
Er nema von að fólk spyrji sig
hvort ríkisstjórnarflokkarnir hafi
ekkert lært af Hruninu?
En ég gleðst þó mest yfir því að
hvorki Framsóknarflokkurinn né
Sjálfstæðisflokkurinn hafa yfir veðr-
inu að ráða því hér fyrir norðan hef-
ur veðurblíðan verið alls ráðandi frá
því snemma í maí og vonandi enginn
endir á. Sólarþyrst sunnanfólk er
því boðið velkomið til okkar hingað
norður. n
Bjarkey Gunnarsdóttir
þingkona Vinstri grænna
Kjallari
„Þar á Hannes
líklega að finna
erlenda sökudólga á
hruninu á Íslandi og
draga fjöður yfir andvara-
leysi og lélega hagstjórn
ríkisstjórna Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar.
Sigmundur og
Bjarni Forystumenn
ríkisstjórnarflokk-
anna skiptast á
að koma fram í
fjölmiðlum og vera
ósammála.
Mest lesið
á DV.is
1 „Ég ætla að standa þetta af mér“ Sigrún Lilja
Guðjónsdóttir stofnaði fyrirtækið Gyðja
Collection árið 2007. Fyrirtækið hannar
og lætur framleiða fyrir sig ilmvötn,
fylgihluti og tískuvörur. Sigrún segir að
hún hafi frá byrjun lagt allt í að byggja
fyrirtækið upp. Uppbyggingin hefur þó
ekki verið leikur einn og hefur Sigrún
Lilja lent í áföllum með reksturinn.
31.498 hafa lesið
2 Annie Mist brast í grát á blaðamannafundi
Annie Mist Þórisdóttir brast í grát á
blaðamannafundi eftir að hún nældi
sér í silfurverðlaunin á Heimsleikunum
í crossfit, en keppninni lauk í nótt. Hún
tók ekki þátt í fyrra vegna bakmeiðsla
og sagði að þegar hún varð fyrir meiðsl-
unum haustið 2012 hafi hún verið hrædd
um að hún myndi ekki ganga aftur.
27.071 hafa lesið
3 Hildur Lilliendahl um nauðgara: „Allir eiga
rétt á öðrum séns“ Nauðgarar
eru ekki nauðsynlega veiklundaðir
undirmálsmenn sem hafa framið
sálarmorð á sjálfum sér. Allskonar fólk
nauðgar undir allskonar kringumstæð-
um og hvert eitt og einasta þeirra sem
gerast sek um slíkt á að mega koma
aftur. Snúa við blaðinu ef það á við
eða bara hreinlega fá að halda áfram
að vera hluti af samfélagi manna,“
segir Hildur Lilliendahl, baráttukonan
umdeilda, í færslu á Facebook-síðu sinni.
25.784 hafa lesið
4 Tveggja barna móðir hvarf sporlaust Fjölskylda
Jennifer Huston, tveggja barna móður
sem hvarf sporlaust á fimmtudag, leitar
enn logandi ljósi að henni. „Hún er að
kenna syni okkar á klósettið. Hún myndi
ekki bara pakka saman og fara. Hún hef-
ur aldrei hagað sér þannig, og hún hefur
aldrei glímt við andleg veikindi,“ segir
Kallen Huston, eiginmaður Jennifer.
24.434 hafa lesið
5 Tónlistarkona rænd á Grand hótel: „Ég er
hrædd um að ég hafi glatað
öllum peningunum mínum“
Um er að ræða 1.800 Bandaríkjadali
og 1.400 evrur, upphæð sem jafngildir
meira en 400 þúsundum íslenskra
króna. „Ég læsi alltaf herberginu mínu,“
segir Hope en bendir á að ábyrgara hefði
verið að geyma reiðuféð í öryggishólfi.
22.700 hafa lesið