Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Page 30
Vikublað 29.–31. júlí 201430 Sport
S
pænska fótboltafélagið
Cultural y Deportiva
Leonesa leikur í þriðju efstu
deild í spænska boltanum.
Ljósmynd af nýjasta búningi
liðsins hefur farið sem eldur í sinu í
fjölmiðlum víða um heim. Treyjan
er hönnuð eins og smókingjakki og
þykir slá met í ljótleika.
Á heimasíðu félagsins kemur í
ljós að ekki er um varanlegan bún-
ing liðsins að ræða heldur sérstak-
an viðhafnarbúning sem notaður er í
vináttuleik þar sem áheitum er safn-
að til að styrkja íþróttastarf Cultural y
Deportiva Leonesa. En búningurinn
er kannski nýtilegur fyrir brúðkaup
og önnur veisluhöld?
Skoðum fleiri fótboltabúninga
sem þykja bera af í ljótleika. n
Ljótustu
fótboLta-
búningarnir
n Slær treyja spænsks smáliðs nýtt met? n Margir skuggalega ljótir
Athletic Bilbao – 2004
Athletic frá Baskalandi á Spáni skartar venjulega hvít-
um og rauðum „Þróttarabúningum“. Árið 2004 notaði
félagið hins vegar „tómatsósutreyjuna“ eins og hún var
kölluð. Listamaðurinn Darío Urzay hannaði treyjuna.
Forseti Athletic tók hana úr umferð eftir örfáa leiki.
Norska landsliðið –
1996–1998
Smekkvísi Norðmanna er alkunn en hvað gerðist árið
1996? Var búningurinn hannaður í Microsoft Word?
England – 1996
Markvörður Englands, David Seaman, þurfti að klæðast
þessum búningi árið 1996.
Colorado Caribous – 1978
Þetta knattspyrnulið frá Denver í Bandaríkjunum lék
aðeins eitt tímabil. En búningurinn verður lengi í minn-
um hafður. Einhvers konar kúrekastíll.
La Hoya Lorca
Spænska þriðjudeildarliðið La Hoya Lorca leikur í
brokkólíbúningum. Styrktaraðili liðsins framleiðir
brokkólí en það er frá miklum ræktarhéruðum í Murcia
á Suður-Spáni.
Hull City – 1993
Lið Hull kennir sig við tígrisdýr og félagið tók það mjög
bókstaflega tímabilið 1993 til 1994 þegar leikmenn voru
klæddir í þetta tígrisdýramynstur.
1860 München – 2010
Þýska liðið 1860 München skákar ekki oft nágranna-
liðinu Bayern. Hér skarar 1860 algjörlega fram úr í
klæðavali. Búningurinn árið 2010 var alsettur söguleg-
um ljósmyndum. Félagið varð 150 ára og ákveðið var að
halda upp á áfangann svona.
Jorge Campos
Mexíkóski markvörðurinn Jorge Campos spilaði á árun-
um 1990–2004 og er einstaklega eftirminnilegur fyrir
sérstæðan leikstíl. Hann gat bæði spilað sem mark-
vörður og framherji sem er nánast einstakt í sögunni.
En einna eftirminnilegastar voru treyjurnar sem hann
hannaði sjálfur í öllum regnbogans litum.
Manchester United – 1991
Goðsögnin Ryan Giggs hóf ferilinn í þessum náttfötum.
Huddersfield Town – 1993
Markvörður enska neðrideildarliðsins Huddersfield Town var afar litríkur árið 1993.
Helgi Hrafn Guðmundsson
helgihrafn@dv.is