Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Page 36
Vikublað 29.–31. júlí 201436 Fólk
Frægir á ferðalagi
n Verslunarmannahelgi fræga fólksins n Flutningar, Þjóðhátíð og æfingar
Kraftakarl í fellihýsi
„Það er ekkert ákveðið,“ segir kraftakarlinn
Magnús Ver Magnússon. „Ég er alla vega á
Austfjörðum núna með fjölskyldunni. Við ætlum
að gista í fellihýsi og ferðast um firðina. Kannski
verðum við lengur, það er aldrei að vita. Það fer
svolítið eftir veðrinu, en veðrið er reyndar alltaf
best fyrir austan.“
Æfir sig fyrir kvikmynd „Ég ætla ábyggilega bara að fara
niður í Þríhnúkagíg og æfa línurnar mínar fyrir bíómyndina Bakk. Ég ætla að vera með
mína persónulegu útihátíð þar,“ segir Saga Garðarsdóttir, leikkona og grínisti. Saga fer
með eitt aðalhlutverkanna í Bakk en tökur hefjast í byrjun ágúst og mun leikkonan því
einbeita sér að æfingum fyrir myndina. „Kannski elda ég pasta eða kartöflusalat og býð
foreldrum mínum í heimsókn,“ segir Saga enn fremur.
Undirbýr flutninga „Ég held
ég sé nú ekki að fara úr bænum,“ segir uppistandarinn
Bergur Ebbi Benediktsson. „Ég er í fríi en ég er að flytja
til útlanda í lok ágústmánaðar og ég er bara að undirbúa
það. Við fjölskyldan erum að flytja til Toronto í Kanada.“
Fær lúxusútgáfuna af Þjóðhátíð „Ég er að fara
á Þjóðhátíð í sjötta skiptið,“ segir dans- og söngkonan Unnur Eggertsdóttir. „Ég fór fyrst
þegar ég var pínulítil því besta vinkona mín, hún Eva, er úr Eyjum og er með hús þar. Svo fyrir
mér er Þjóðhátíð ekki týpísk fylleríshelgi heldur snýst hún um lundaboð og kjötsúpur með
fjölskyldunni hennar Evu. Þannig að ég fæ alltaf lúxusútgáfuna af Þjóðhátíð,“ segir Unnur
og bætir við að hún muni einnig koma fram á hátíðinni sem Solla stirða. „Svo ég mun bara
skemmta öðrum og sjálfri mér.“
Pálmi Gestsson í heimahögum „Ég er
nú bara hérna fyrir vestan og ætla að vera á óðali mínu, Hjara, yfir verslunarmanna-
helgina. Ég gerði upp húsið sem ég er fæddur í í Bolungarvík og hér vil ég vera eins
mikið og ég get. En ef ég vil meira fjör þá kíkir maður bara á Mýrarboltann á Ísafirði.“
„Ég er bara
innipúki“ „Ég ætla ekki að
gera neitt, ég ætla bara að vera í höfuð-
borginni,“ segir leikarinn og útvarpsmað-
urinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. „Ég
á svo lítil börn að ég fer ekki einu sinni á
Innipúkann. Ég er bara innipúki. En við
munum nýta daginn í eitthvað skemmti-
legt, það er náttúrlega nóg framboð af
alls kyns afþreyingu í höfuðborginni.
Þannig að það verður bara þetta venju-
lega; Húsdýragarðurinn og eitthvað.“
V
erslunarmannahelgin er
stærsta ferðahelgi ársins.
Margir nýta hina þriggja
daga fríhelgi til þess að
ferðast um landið og fara á
hinar ýmsu úti-og fjölskylduhátíðir.
Á meðan nýta aðrir helgina til þess
að vinna ókláruð verk eða einfald-
lega slaka á í heimahúsum. Nokkrir
þekktir Íslendingar deildu með DV
hvað þau hyggjast gera um verslun-
armannahelgina. n
Vinna í kjallaranum „Við vorum að festa kaup á
kjallaranum í húsinu okkar þannig við verðum örugglega að atast í honum,“
segir Dagur B. Eggertsson sem útilokar þó ekki mögulegar ferðir út á land. „Það
liggur ekkert fyrir um það. Við spilum þetta eftir hendinni.“
Tveir G
Ys og þys var í Staðarskála um
helgina enda margir á ferð um
landið. Á sunnudaginn var
vegasjoppan vinsæla full af skát-
um frá öllum heimshornum sem
voru á suðurleið eftir vel heppn-
að landsmót á Akureyri. En það
voru ekki einungis svangir skát-
ar sem sóttu Staðarskála þenn-
an sunnudag. Þar stoppuðu
einnig Björgvin G. Sigurðsson,
fyrrverandi viðskiptaráðherra,
og Sigurður G. Guðjónsson,
hæstaréttarlögmaður og fyrrver-
andi fjölmiðlamógúll. G-in tvö
snæddu þar borgara og annað
sjoppufæði ásamt vinum og fjöl-
skyldum. Ekki er vitað hvaðan
þeir komu eða hvert þeir voru
að fara en þeir voru augsýnilega
í miklu stuði.
Gifting og skírn
Hanna Rún og Nikita gengu í það heilaga
D
ansararnir Hanna Rún Óla-
dóttir og Nikita Banez giftu
sig á laugardaginn. Á sama
tíma létu þau skíra son
sinn sem fæddist 13. júní síðast-
liðinn. Syninum, sem er frumburð-
ur þeirra beggja, var gefið nafnið,
Vladimir Óli. Athafnirnar tvær, gift-
ingin og skírnin, fóru fram í Digra-
neskirkju í Kópavogi. Veisla var svo
haldin að þeim loknum á heimili
foreldra Hönnu Rúnar. Viðstaddir
voru nánir ættingjar og vinir brúð-
hjónanna. Þau Hanna Rún og Nik-
ita hafa verið saman í rúmlega eitt
og hálft ár og það hefur mikið gerst
á þeim tíma. Þau byrjuðu upp-
runalega saman sem danspar en
fljótlega þróaðist það samstarf út í
ástarsamband. Þau urðu Íslands-
meistarar í suðuramerískum döns-
um árið 2013 eftir að hafa aðeins
dansað saman í um tvær vikur. Þau
eru því mjög samstíga bæði í dans-
inum og einkalífinu. Hanna Rún
vakti mikla athygli þegar hún tók
þátt í þættinum Dans dans dans
sem sýndur var á RÚV. n
ritstjorn@dv.is
Dansandi glöð Hanna Rún vakti mikla
athygli í keppninni Dans dans dans. Núna,
um tveimur árum síðar, er hún orðin eigin-
kona og móðir.
Samstíga Þau Hanna Rún og Nikita eru
samstíga bæði í dansi og einkalífinu.
Orkudrykkur
viðskipta
siðfræðings
Viðskiptasiðfræðingurinn Stefán
Einar Stefánsson er hlaupagarp-
ur mikill. Í sumar hefur hann
klárað hvern kílómetrann á fæt-
ur öðrum og yfirleitt marga í
einu. „Laugardagskvöld að loknu
30 km hlaupi um Reykjavík,
Kópavog, Garðabæ og Hafnar-
fjörð,“ skrifar Stefán á Face-
book-síðu undir mynd af Bollin-
ger-kampavíni sem hann ætlar
augsýnilega að verðlauna sig
með. Margir vinir hans kunna
að meta dugnaðinn í Stefáni og
sumir segja hann hetju. Stefán er
hins vegar hógværðin uppmáluð
og svarar aðdáendum á svofelld-
an hátt: „Ekki veit ég með hetju-
skapinn en þrár er maður […]“.
Svampburstastöð, 54 m löng
Snertilaus sjálfvirk bílaþvottastöð
Háþrýstiþvottur
Bónstöð
www.lodur.is / lodur@lodur.is
12
STAÐIR Nú er Löður á
12 stöðum +1
á Akureyri.
+1