Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Qupperneq 37
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Fólk 37
Anna Mjöll og Svanhildur í stuði
S
öngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir hélt tónleika á Café Rósenberg
í síðustu viku. Fjölmenni var á staðnum og góð stemming. Anna
Mjöll er búsett í Los Angeles og kemur því ekki oft fram hérlendis.
Á dögunum bárust fréttir þess efnis að Anna Mjöll væri að skilja við
eiginmann sinn, Luca Ellis, en þau giftu sig á Íslandi fyrir ári.
n Stebbi Hilmars mætti á tónleikana
Fallegar mæðgur
Svanhildur Jakobsdóttir
og Anna Mjöll Ólafs-
dóttir eru glæsilegar.
Svanhildur tók lagið á
tónleikum Önnu Mjallar.
Sirrý mætti Fjölmiðlakonan
Sigríður Arnardóttir, eða Sirrý
eins og hún er gjarnan kölluð,
mætti á tónleikana ásamt eigin-
manni sínum, Kristjáni Franklín.
Fylgdist með Stefán Hilmars-
son söngvari Sálarinnar, mætti
á tónleikana ásamt eiginkonu
sinni, Önnu Björk Birgisdóttur.
Stemming
Gestir klöppuðu og
sungu með.
Í sveiflu Anna söng
og skemmti gestum.
Druslur drukku bjór
D
ruslugangan var gengin
á laugardaginn í fjórða
sinn. Það er gert í von
um að færa ábyrgð kyn-
ferðisafbrota til síns
heima, en skömmin á alltaf
heima hjá gerendum. Skipu-
leggjendur Druslugöngunnar
hittust síðastliðið fimmtudags-
kvöld á bjórkvöldi á Brikk til þess
að hita upp fyrir gönguna. Fjöl-
margir lögðu leið sína á bjór-
kvöldið og ræddu málin yfir bjór.
Hituðu upp fyrir Druslugönguna
Stolt drusla Eygló er flott með druslu-
tattú og í druslubol.
Hressar
Svanhvít og
Tinna.
Mættu á
bjórkvöldið
Ingibjörg og
Katrín.
Baráttukonur
Guðný og Björk. Í góðu
fjöri Hjalti
var flottur í
druslubol.
Dagur B. gæddi
sér á götumat
M
atarhátíðin Krás var
haldin í Fógetagarðinum
á laugardag. Þar buðu
fjölmargir veitingastað-
ir upp á götumat en hægt var að
setjast niður og gæða sér á alls
kyns kræsingum frá mismun-
andi stöðum. Veitingastaðirn-
ir útbjuggu götuútgáfu af réttum
sínum. Hátíðin heppaðist með
eindæmum vel og greinilegt að
borgarbúar voru ánægðir með
þessa nýjung því fjölmargir lögðu
leið sína á hátíðina.
Seldu boli Helga Dögg Ólafs-
dóttir, Gréta Þorkelsdóttir, Sunna
Ben og Eygló Hilmarsdóttir.
Matarhátíðin Krás haldin í fyrsta sinn í Fógetagarðinum
Matarhátíðar-
stjórinn og
borgarstjórinn
Ólafur Örn Ólafs-
son, sem skipulagði
hátíðina, og Dagur
B. Eggertsson
borgarstjóri.
Margir tóku þátt Fjölmargir veitinga-
staðir voru með bás á hátíðinni.
Stuð Ekki skemmdi fyrir að sólin skein á
matarhátíðargesti á laugardag.
Skipuleggjendurnir Ólafur Örn
Ólafsson og Gerður Jónsdóttir skipulögðu
hátíðina. Þau fengu hugmynd að slíkri hátíð
hvort í sínu lagi en sameinuðu krafta sína.