Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Side 23
Fólk 23Miðvikudagur 9. október 2013
Dorrit dúkkar upp
n Lífgar upp á samkomur
F
orsetafrú Íslendinga, Dorrit
Moussaieff, dúkkaði upp á
Íslandi í vikunni öllum til
gleði og hleypti af stokkun
um Forvarnardeginum með eig
inmanni sínum. Dorrit gekk glað
lega á milli fólks og ræddi við það
eins og henni er einni lagið – á al
þýðlegan og hlýlegan máta.
Dorrit hefur lítið sést á landinu
síðan hún flutti lögheimili sitt til
Bretlands. Þar sér hún um skart
gripaverslun foreldra sinna,
Shlomo og Alisu.
Faðir Dorritar er einn af rík
ustu mönnum Bretlandseyja – er
í 315. sæti samkvæmt lista Sunday
Times frá 2011 – og eru eign
ir hans eru taldar nema um 220
milljónum punda, rúmlega fjöru
tíu milljörðum íslenskra króna.
Dorritar hefur verið saknað
af skerinu enda setur hún ávallt
sterkan svip á þær samkomur sem
hún sækir. Ólafur Ragnar var einn
við þingsetningu í byrjun mánað
ar en á þeim hefur Dorrit vakið
mikla athygli. Sér í lagi árið 2010
þegar hún lét sér ekki nægja að
brosa og veifa mótmælendum
þegar þing var sett heldur klifraði
yfir girðingu til að heilsa þeim og
ræða við þá.
Flutning lögheimilisins af
landinu hefur Dorrit rökstutt með
vísan til þess að hún hefði lof
að foreldrum sínum fyrir margt
löngu að taka við skartgripafyrir
tækinu auk þess sem hún nefndi
í yfirlýsingu að sú staðreynd að
Ólafur Ragnar hefði getað misst
forsetaembættið á síðasta ári
hefði spilað inn í: „Þegar horfur
voru á að eiginmaður minn yrði
ekki lengur forseti gerði ég ráð
stafanir til að geta sinnt meira fyrri
störfum mínum í London, einkum
í ljósi þess að foreldrar mínir, sem
stjórnað hafa fjölskyldufyrirtæk
inu, eru nú háaldraðir,“ sagði Dor
rit í yfirlýsingunni. n
kristjana@dv.is
Alþýðleg og hlý
Dorritar er saknað af íslenskum
vettvangi en hún dvelur mikið í
London um þessar mundir.
Mynd Sigtryggur Ari
Í megrun á flat-
botna skóm
n „Mér finnst þessi barátta oft fara út í öfgar hér á Íslandi“
É
g hef eiginlega aldrei
drukkið gosdrykki, það kem
ur örsjaldan fyrir að ég detti
í eitthvað skyndibitasukk.
Kannski tvisvar, þrisvar á
ári,“ segir ísdrottningin og þokka
gyðjan Ásdís Rán Gunnarsdóttir
í samtali við DV en hún er stödd
á Íslandi um þessar mundir. Ás
dís Rán starfar sem fyrirsæta og
hugar því eflaust sérstaklega vel
að heilsu og útliti starfs síns vegna
en hún hefur sett sér það markmið
að ná af sér nokkrum aukakílóum
með, að eigin sögn, öflugri aðferð.
„Ég heiti því að ganga í íþrótta
fötum og flatbotna skóm þang
að til ég er búin að missa þrjú
kíló. Þá má ég setja hælana og
dressið aftur á! Ég geng á hælum
alla daga þannig að þetta verð
ur ástand sem ég á eftir að reyna
að koma mér úr á sem skemmst
um tíma,“ segir Ásdís Rán í léttum
dúr um uppátækið en annars seg
ist hún leggja stund á líkamsrækt
nokkrum sinnum í viku.
Jafnréttissinni
Ásdís Rán klæðist gjarnan bleiku
um þessar mundir. „Bleiki litur
inn er alltaf í uppáhaldi hjá mér
og ég ákvað að taka hann út í ystu
æsar þessar vikurnar til heiðurs
krabbameinsátakinu,“ segir Ás
dís Rán sem vill leggja sitt af
mörkum. Jafnréttismál eru henni
einnig mikilvæg að eigin sögn.
„Sem kona, móðir og atvinnurek
andi styð ég jafnrétti kynjanna og
er femínisti á mörgum sviðum en
alls ekki öllum. Mér finnst þessi
barátta oft fara út í öfgar hér á Ís
landi.“
gull, tígrismynstur og leður
Ásdís Rán hefur löngum haft
áhuga á tísku og smekklegum
fylgihlutum en segist ekki eiga
neitt uppáhaldsvörumerki. „Ég
er smá „label frík“ og geng mikið
í merkjavörum og nota fylgihluti
líka. Ég á mest af Gucci, Louis
Vuitton, Guess, DKNY og Cavalli
en svo kaupi ég líka mikið í Zöru,
Mango og fleiri álíka búðum og
mixa þessu öllu saman,“ segir Ás
dís Rán og segir stíl oftar en ekki
byggjast upp út frá ákveðnu lita
vali. „Þeir litir sem ég er hrifin af
núna eru gull, tígrismynstur, grár
og auðvitað bleikur sem er alltaf
í uppáhaldi. Ég fíla stóra massífa
skartgripi, blandaða úr ýmist
gulli, svörtum lit eða leðri. Ein
faldur og „glamorous“ vetrarstíll,“
segir Ásdís Rán um stíl sinn þessa
dagana en hún segist ferðast mik
ið og fá sífellt nýjan innblástur.
„Ég er til dæmis alæta á tónlist, fer
bara eftir staðsetningu og fíling.
Ég ferðast svo mikið og hef lært að
meta hina ýmsu tónlist um allan
heim,“ segir Ásdís Rán.
Á fitusnauðu fæði
Ásdís Rán segist gefa sér góðan tíma
fyrir líkamsrækt og hefur komið upp
góðum venjum. „Það sem virkar
best fyrir mig er að lyfta í klukku
tíma og taka smá brennslu í lokin
þrisvar til fimm sinnum í viku. Ég
er ekki mikið fyrir að fara í eins
taka tíma nema þá helst spinningu.
Mér finnst líka æði að hlaupa eða
skokka úti í góðu veðri erlendis, en
ég er ekki viss um að ég geri mikið
af því á íslandi,“ segir Ásdís Rán um
þá líkamsrækt sem er í uppáhaldi og
hún stundi hvað mest. Hún ætlar sér
einnig að taka góða rispu í matar
æðinu. „Ég vel einfaldlega léttari
fituminni mat. Ætla að taka matar
æðið vel í gegn núna í október til að
losna við þessi extra kíló,“ segir Ás
dís Rán að lokum. n svala@dv.is
Svala Magnea Georgsdóttir
blaðamaður skrifar svala@dv.is
Strengir heit „Ég heiti því að ganga í
íþróttafötum og flatbotna skóm þangað til
ég er búin að missa þrjú kíló. Þá má ég setja
hælana og dressið aftur á!“ segir Ásdís Rán.
Ásdís rán fylgist
með tískunni
„Bleiki liturinn er alltaf
í uppáhaldi hjá mér og
ég ákvað að taka hann
út í ystu æsar þessar
vikurnar til heiðurs
krabbameinsátakinu.“
Ráðherrar
sprella
Þeir sprella mikið þessa dag
ana, þeir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráð
herra og Bjarni Benediktsson,
fjármála og efnahagsráðherra.
Þeim sást bregða fyrir í Stund
inni okkar þar sem þeir tóku
lagið saklausir á svip, þá ákváðu
þeir að styrkja gott málefni og
bregða sér í gervi Captain Kirk
og Spock úr Star Trek til að
safna fé fyrir Bleiku slaufuna,
fjáröflunar og árvekniátak
Krabbameinsfélagsins. Sátu
þeir fyrir á ljósmynd sem verð
ur boðin upp.
Gíslataka
Gísli Marteinn Baldursson efn
ir til kosninga um nafn á nýjum
spjallþætti á RÚV á Facebook
síðu sinni. Hann biður fólk um
að kjósa á milli tveggja tillagna:
Vikan með Gísla Marteini eða
Sunnudagsmorgunn með Gísla
Marteini.
Vinir hans á Facebook leggja
ólmir til fleiri valkosti og sumir
þeirra eru ansi kostulegir. Til að
mynda Sunnudagssteikin með
Gísla Marteini
Gíslataka, Gíslasaga
Marteins og Afsakið hlé.
Iðandi kolkrabbi
á disknum
„Maturinn hreyfist á disknum
hjá mér,“ segir Ragnar Bragason
þegar blaðamaður slær á þráð
inn til hans. Ragnar er staddur
í Kóreu á Busan International
Film Festival, einni virtustu og
stærstu kvikmyndahátíð Asíu,
þar sem hann kynnir kvik
myndina Málmhaus. „Ég er
að snæða kolkrabba, ég hef
nú ekki fengið mér nema einn
bita, því mér sýnist hann enn
lifandi,“ sagði Ragnar hálfefins
um lystisemdirnar.
Á meðal annarra íslenskra
mynda sem hafa verið sýndar á
hátíðinni eru Sveitabrúðkaup,
The Good Heart og Englar al
heimsins.