Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2013, Blaðsíða 19
Fréttir 19Helgarblað 11.–13. október 2013
n Sjálfsvígstíðni hjá transfólki er há n Kynleiðréttingaraðgerðir greiddar af ríkinu
Verður mögulega breytt „Það eru uppi raddir um að þessu verði breytt og að trans-
sexúalismi verði greindur annars staðar, til dæmis innan innkirtlasjúkdóma,“ segir Óttar
Guðmundsson geðlæknir.
Kynáttunarvandi
floKKaður sem geðrösKun
læknarnir hérna á Íslandi ekki á þetta
sem einhvers konar geðsjúkdóm þótt
þetta sé kannski flokkað þannig. Það
er alls ekki viðmótið hjá sérfræðiteym
inu á Landspítalanum.“
Hormónalyfin dýr
Ugla segir einstaklinga þurfa að greiða
allan kostnað vegna hormónalyfja úr
eigin vasa, en þær fjárhæðir eru ekki
litlar.
„Þú þarft að vera á hormónum allt
þitt líf svo þú þarft alltaf að vera að
borga einhvers konar hormónalyf. Það
er mismunandi á hvaða hormónum
hver og einn er því það er bara mis
munandi hvað virkar á fólk en það er
alltaf töluverður kostnaður sem fólk
þarf að borga sjálft. Þetta eru dýr lyf;
verðið er kannski ekkert himinhátt en
kannski ekki það lægsta heldur. Svo
þarf maður náttúrulega alltaf að vera
að kaupa þetta svo þetta er alveg dá
góð upphæð.“
Tímaskekkja
„Í langflestum ríkjum heims er þetta
ennþá flokkað sem geðröskun sem
er að sjálfsögðu ekki í lagi því þetta er
eitthvað allt annað en það og mað
ur getur ímyndað sér að alveg eins og
samkynhneigð var fjarlægð af lista Al
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar yfir
geðraskanir, þá mun það gerast líka
smám saman að það að vera trans
verður afsjúkdómsvætt,“ segir Anna
Pála Sverris dóttir, formaður Samtak
anna '78. Hún segir úrelt sjónarmið
enn við lýði hvað varðar málefni trans
fólks.
„Það brýtur einhvern veginn gegn
réttlætiskenndinni hjá manni að þetta
sé svona. Við eigum bara að mæta
fólki varðandi það að það hafi fæðst í
vitlausum líkama án þess að segja því
í leiðinni að það sé geðveikt. Svo að
sjálfsögðu vil ég sjá þessu breytt en
verði það gert þarf að vera tryggt að öll
nauðsynleg þjónusta sé í boði þannig
að fólk geti fengið að lifa lífi sínu í
þeim líkama eða því kynhlutverki sem
það upplifir sig raunverulega í. Þetta
er lífsspursmál fyrir fólk. Við þurfum
að brjóta upp þennan þankagang og
hætta að flokka transfólk sem geð
veikt. En forsendan fyrir því að hægt sé
að breyta þessu og örugglega ástæð
an fyrir því að ekki er enn búið að gera
það hérlendis er sú að það er afar mik
ilvægt að fólk fái þá þjónustu sem það
þarf að fá í þessu ferli. Hluti af því sem
sumt transfólk þarf að fara í gegnum er
náttúrulega læknisfræðilegt og þá get
ur komið til mikill kostnaður svo að þó
að það sé tímaskekkja að kynáttun
arvandi sé skráður sem geðsjúkdómur
þarf þjónustan fyrir þetta fólk að vera
í lagi.“
Byltingin má ekki éta börnin sín
Hefurðu áhyggjur af því að ef flokkun
inni verði breytt að þá missi transfólk
þá heilbrigðisþjónustu sem það þarf á
að halda?
„Kostnaðurinn er náttúrulega lykil
atriði og eins að þjónustan sé í lagi því
þetta er mjög viðamikið ferli sem þarf
að halda vel utan um. Sérstaklega ef
fólk ákveður að fara í læknisfræðilegt
ferli, en, nota bene, þá ákveður ekki
allt transfólk að fara í aðgerð. Ég er
kannski ekki hrædd um að þjónustu
muni skorta, ég vil bara benda á að það
skiptir mjög miklu máli að byltingin éti
ekki börnin sín. Þannig að þegar við
hættum að skilgreina það að vera trans
sem geðsjúkdóm, sem við eigum auð
vitað að gera, þá um leið þurfum við
að tryggja að öll þjónusta verði ennþá í
boði sem og allt utanumhald.“
Málefni í mótun
En af hverju hafa Samtökin '78 ekki
mótmælt þessari flokkun opinberlega?
„Ætli það sé ekki út af því að þetta
er allt saman í mjög mikilli deiglu. Við
höfum verið að vinna að því á síðustu
árum að ná almennilega utan um mál
efnið með löggjöf til þess að tryggja
réttindi þessa fólks og það var náttúru
lega ekki fyrr en á síðasta ári sem lög
um málefni transfólks voru samþykkt,
og þá finnst mér þetta vera næsta
skref,“ segir Anna Pála.
„Transmálefnin eru í rosalegri mót
un og það að lagalegi ramminn hafi
verið búinn til í fyrsta skipti á síðasta
ári, sem var ofsalega mikilvægt skref,
það þýðir ekki að við getum bara sett
punktinn aftan við samtalið vegna
þess að það er mikil vinna eftir, bæði í
löggjöf og framkvæmd. Nú þurfum við
að horfa til þess hvaða vankantar koma
í ljós á lögunum og hvernig við getum
sniðið þá af, allt með þá grundvallar
forsendu að fólk hafi sjálft skilgrein
ingarvaldið yfir sér og eitt af því sem
að við þurfum að gera í framtíðinni er
auðvitað það að hætta að skilgreina
kynáttunarvanda sem geðsjúkdóm.
Það er náttúrulega bara einhvern veg
inn svo augljóst en samt eitthvað sem
við eigum ennþá eftir að klára. Ég held
bara að samtökunum hafi kannski ekki
þótt þetta vera það fyrsta sem að þyrfti
að fá í gegn, af því að útgangspunktur
inn hlýtur alltaf að vera sá að það þurfi
að koma til móts við fólk á þeim stað
sem það er á og stærsta baráttumál
ið þangað til löggjöfin kom inn í fyrra
var að ná betur utan um málefnið og
réttindin.“
Kynvitundarmálin komin styttra
Anna Pála segir eðlilegt að kynleið
réttingaraðgerðir séu greiddar af
ríkinu.
„Það er ekki eins og fólk hafi val og
ég held að það blasi við að það leggur
enginn á sig það ofsalega erfiða ferli
sem transfólk fer í gegnum nema
vegna þess að þetta er lífsspursmál
fyrir viðkomandi.“
Hún segir transfólk mæta miklum
fordómum og upplifa mikla erfiðleika
vegna ástands síns.
„Transfólk sem tekur skrefið og
kemur út úr skápnum hefur margt
hvert farið til helvítis og til baka. Það
er mjög hátt hlutfall sem hefur far
ið í gegnum þannig ferli og það er
ennþá miklu erfiðara að koma út úr
skápnum sem trans heldur en með
aðra kynhneigð en gagnkynhneigð
þannig að kynvitundarmálin eru al
mennt séð bara komin miklu styttra.
Fólk mætir ofboðslegum fordómum
og þarf að leggja mikið á sig, félags
lega, andlega og líkamlega, til þess að
fara í gegnum ferlið svo ég held að það
blasi við að það gengur enginn í gegn
um þetta nema vegna þess að það er
nauðsynlegt. Og þá eigum við bara að
taka utan um fólk strax og hjálpa því
að komast á þann stað sem það þarf
að vera á. Þá getur fólk líka átt miklu
betri möguleika á að taka þátt í sam
félaginu.“
Sögulegar ástæður
fyrir greiningunni
„Greiningin stendur á gömlum merg
og kannski má segja að hún tilheyri
geðsjúkdómafræðunum af sögulegum
ástæðum. Það eru uppi raddir um að
þessu verði breytt og að transsexúal
ismi verði greindur annars staðar,
til dæmis innan innkirtlasjúkdóma,“
segir Óttar Guðmundsson, geðlæknir
og meðlimur í sérfræðinganefnd
Landspítalans um málefni transfólks,
spurður hver sé ástæða þess að kynátt
unarvandi sé flokkaður sem geðsjúk
dómur. Hann segir samfélag transfólks
á Íslandi mótfallið því að greiningin
fari fram innan geðsjúkdómafræðinn
ar og að það byggist á þeirri skoðun að
transgender sé í raun þriðja kynið og
því fullkomlega eðlilegt ástand en ekki
einhver skilgreindur sjúkdómur.
Aðspurður segir Óttar að verið sé
að skoða það að breyta greiningunni á
kynáttunarvanda.
„Þetta er til umræðu við gerð nýrra
sjúkdómsgreininga, það er ICD og
DSMkerfanna. Ég veit ekki ennþá
hver lokaniðurstaðan verður.“
Óttar segir transfólk sem fari í gegn
um kynleiðréttingarferli njóta sömu
réttinda og aðrir sjúklingar spítalans.
„Þeir greiða sinn hluta af allri
göngudeildarmeðferð og lyfjum en
innlögn á spítala og aðgerð er greidd
af sjúkratryggingum. Um hormóna
lyfin gilda reglur Tryggingastofnunar
og Sjúkratrygginga Íslands um lyfja
kostnað.“
LSH og SÍ skipta með
sér kostnaðinum
Á þessu ári fóru fimm einstaklingar í
kynleiðréttingaraðgerð á Landspítal
anum en Óttar segir þá tölu afar mis
jafna eftir árum. Hjá Sjúkratryggingum
Íslands fengust þær upplýsingar að
vegna aðgerða sem framkvæmd
ar voru hér á landi í september 2011
og júní 2012 hefðu Landspítalinn og
Sjúkratryggingar Íslands gert með sér
samning um framkvæmd og kostnað
slíkra aðgerða. Var dr. Gunnar Kratz,
læknir frá Svíþjóð, fenginn til landsins
til að framkvæma aðgerðirnar og skipt
ist kostnaðurinn vegna þeirra þannig
að Sjúkratryggingar Íslands greiddu
fyrir vinnu læknisins ásamt flugfari
og uppihaldi meðan á dvöl hans stóð
en Landspítalinn stóð straum af öll
um öðrum kostnaði við meðferðina.
Þar með talið var undirbúningur fyrir
aðgerð, kostnaður við skurðaðgerð
(annar en greiðsla til læknisins), lega
á sjúkradeild eftir aðgerð og eftirlit á
göngudeild eftir aðgerð. Ekki feng
ust tæmandi upplýsingar um kostnað
vegna aðgerða einstaklinga.
Greitt fyrir skurðaðgerð á
kynfærum og brjóstanám
Blaðamaður náði tali af Laufeyju
Guðmundsdóttur hjá velferðarráðu
neytinu til að fá upplýsingar um þátt
töku ríkisins í kostnaði við kynleið
réttingu.
„Ef viðkomandi er sjúkratryggður á
Íslandi þá er kynleiðréttingaraðgerðin
sjálf á kostnað Landspítala, það er
að segja íslenska ríkisins, samkvæmt
reglugerð 722 frá árinu 2009 um lýta
lækningar sem sjúkratryggingar al
mannatrygginga taka til, ef veitt er
undanþága samkvæmt fjórðu grein
þessarar reglugerðar. Í sparnaðinum
eftir hrun var reglugerðinni breytt
þannig að nú þurfa menn að afla
undanþágu en ég hef ekki heyrt um
það að fólki hafi verið neitað um hana,“
segir Laufey.
„Svo eru brjóstanámsaðgerðir
einnig gerðar á Landspítala og þá er
fólk líka lagt inn svo þær eru einnig
greiddar af ríkinu.“
Laufey segir afar mismunandi eftir
einstaklingum hver kostnaður vegna
lyfjameðferðar sé.
„Hormónameðferðin er mjög mis
munandi eftir því um hvað aðgerðir er
að ræða; konaíkarl eða karlíkonu,
og fer líka mikið eftir einstaklingnum
sjálfum. Viðkomandi getur til dæmis
verið með undirliggjandi sjúkdóma
og svoleiðis, það geta verið alls konar
ástæður.“
Kostnaður afar mismunandi
En hver er kostnaðurinn vegna
hormónameðferðar?
„Í fyrra fékk ég þær upplýsingar
frá lyfjadeild Sjúkratrygginga Íslands
að kostnaðurinn fyrir einstaklinginn
sjálfan væri á bilinu 15 til 94 þúsund
krónur fyrir þau tvö ár í hormónameð
ferð áður en viðkomandi fer í skurð
aðgerðina. Svo þetta er ansi breitt bil,“
segir Laufey og bætir við að þau horm
ónalyf sem einstaklingar nota eftir
skurðaðgerð séu nokkuð ódýrari.
„Þau lyf eru mismunandi eftir til
vikum hverju sinni og eru að kosta á
bilinu 7 til 20 þúsund krónur á ári fyrir
einstaklinginn.“
Hormónameðferðir eru niður
greiddar en Laufey segist þó ekki vera
með á hreinu hver hlutur ríkisins er í
þeim kostnaði.
„Almenna reglan er sú að einstak
lingar með kynáttunarvanda eru bara
sjúklingar eins og aðrir sjúklingar og
þeir njóta réttinda í kerfinu ef þeir eru
sjúkratryggðir á Íslandi; þeir þurfa að
fara í viðtöl hjá geðlæknum og greiða
þá bara eins og aðrir sem fara í við
töl hjá geðlæknum og sálfræðingum,
þeir fá lyf og ríkið tekur þátt í kostnaði
vegna þeirra og þeir leggjast inn á spít
ala en það er ókeypis eins og lög um
sjúkratryggingar eru í dag.“ n
Úrelt viðhorf Ugla Stefanía telur
úrelt viðhorf helstu ástæðu þess að
kynáttunarvandi er greindur sem geð-
sjúkdómur. Mynd Mynd dV / Bjarni EirÍKSSon
„Samkynhneigð var
flokkuð sem geð-
sjúkdómur á sínum tíma.
Fluconazol ratiopharm
eitt hylki - stakur skammtur
árangursríkt
gott verð
einfalt
Sveppasýkingu
í leggöngum
Einungis 1 hylki tekið um munn við
Nýjung
án lyfseðils
á Íslandi!
Notkunarsvið: Fluconazol ratiopharm inniheldur fluconazol. Án ávísunar frá lækni er Fluconazol ratiopharm
notað við sveppasýkingum í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið
greindar með sveppasýkingu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir fluconazoli eða skyldum azól-lyfjum eða einhverju
öðru innihaldsefni lyfsins. Samhliða meðferð með cisapridi, astemizoli, terfenadini, pimozidi, erythromycini
eða quinidini. Gæta skal sérstakrar varúðar ef eftirfarandi á við: Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Fluconazol
ratiopharm valdið alvarlegum húðviðbrögðum með blöðrumyndun og húðlosi (Stevens-Johnson heilkenni).
Ef húðútbrot koma fram á meðan á meðferð með Fluconazol ratiopharm stendur skal strax hafa samband
við lækni, sem ákveður hvort nauðsynlegt sé að grípa til frekari aðgerða. Samhliða meðferð með halofantrini
eða terfenadini. Meðfædd eða áunnin breyting á starfsemi hjartans (lengingu QT bils). Samhliða notkun lyfja
sem einnig geta lengt QT bilið á hjartalínuritinu, t.d. lyf við hjartsláttartruflunum í flokki IA eða III. Truflun
í jafnvægi blóðsalta, einkum minnkuð þéttni kalíums og magnesíums. Hægur hjartsláttur sem þarfnast
meðferðar, hjartsláttartruflanir eða alvarleg hjartabilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal nota Fluconazol
ratiopharm á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Skömmtun: Við Candidasýkingu í leggöngum: Eitt Fluconazol
ratiopharm 150 mg hylki í stökum skammti. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur, húðútbrot, kviðverkur, uppköst,
niðurgangur og ógleði, breyting á lifrargildum. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Maí 2013.