Fréttablaðið - 30.01.2015, Side 4
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
FRUMSÝNING 29. JANÚAR
Miðasala:
Einnig í Gamla bíói frá kl 15-18 alla virka daga og 15-20 sýningardaga.
Gamla bíó: 563 4000 • Hópasala: 786 3060 • eddan2015@gmail.com
LANDBÚNAÐUR Lítið svigrúm er
til þess að bæta rekstrarumhverfi
garðyrkjubænda umfram það sem
þegar hefur verið gert, en slíkum
aðgerðum er settur þröngur rammi.
Niðurgreiðslur til garðyrkjubænda
hafa aukist um 19% frá 2003.
Þetta segir meðal annars í skrif-
legu svari Ragnheiðar Elínar Árna-
dóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, við fyrirspurn Fréttablaðsins
er varðar óskir garðyrkjubænda um
lægra raforkuverð.
Tilefnið er fyrirspurn Helga
Hjörvars, þingmanns Samfylking-
arinnar, í nóvember þar sem ráð-
herra var inntur eftir fyrirheitum
um lægra orkuverð til greinarinnar.
Vildi Helgi horfa til þess að „hér fá
aðrar stórar atvinnugreinar raforku
úr framleiðslunni á miklu lægra
verði en garðyrkjan“, eins og hann
komst að orði í fyrirspurn sinni.
Þá sagði Ragnheiður Elín að
hún vænti þess „að innan skamms
getum við kynnt hugmyndir til
breytinga til samræmis við óskir
garðyrkjubænda án þess að raska
þeim grundvallarreglum sem raf-
orkulög okkar byggja á og ítreka
þann pólitíska vilja sem er í ríkis-
stjórninni til að koma til móts við
greinina.“
Í svari ráðherra til Fréttablaðsins
segir að unnið sé að málinu innan
ráðuneytisins og reglulegir fundir
við garðyrkjubændur hafi skilað
árangri. Að sama skapi hefur ráðu-
neytið farið yfir þessi mál með þeim
dreifiveitum raforku sem þjónusta
garðyrkjubændur. „Að svo stöddu er
erfitt að segja til um hvenær þeirri
vinnu lýkur,“ segir Ragnheiður.
Eins segir hún að niðurgreiðslu-
hlutfallið í dag sé 87% í þéttbýli og
92% í dreifbýli. [Ríkið hefur greitt
niður flutning og dreifingu raforku
til garðyrkjubænda. Árið 2005 var
gert ráð fyrir að niðurgreiðslan
næmi 95% af flutnings- og dreifi-
kostnaði raforku.] Hún segir að
svigrúm dreifiveitna til að setja
sérstaka gjaldskrá fyrir dreifingu
raforku til garðyrkjubænda sé tak-
markað þar sem samkvæmt raf-
orkulögum beri þeim að haga gjald-
skrám þannig að þær endurspegli
eðlilegan tilkostnað í kerfinu.
„Vegna tekjumarka sem dreifi-
veitum eru sett þýðir lækkun á einn
notanda hækkun á annan. Að auki
þýðir lækkun til garðyrkjubænda
lækkun til annarra sambærilegra
stórra notenda, þar með talið fisk-
vinnslu og annars iðnaðar. Til að
viðkomandi dreifiveita geti haldið
sig innan settra tekjumarka yrði
hún því að hækka gjaldskrá til ann-
arra viðskiptavina sinna, sem eru
aðallega heimili og þjónusta.“
svavar@frettabladid.is
Ráðherra segir snúið að
bæta hag garðyrkjubænda
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir erfitt að bæta rekstrarumhverfi garðyrkjubænda meira en hefur verið gert.
Í nóvember boðaði hún að hugmyndir stjórnvalda yrðu kynntar innan skamms. Í dag eru þær ekki í sjónmáli.
Gústaf Adolf Skúlason, framkvæmdastjóri Samorku – samtaka orku- og
veitufyrirtækja, segir að hvað raforkukostnað garðyrkjubænda varðar
sé mikilvægt að halda til haga að þeir fá, einir atvinnugreina á Íslandi,
raforkukostnað sinn niðurgreiddan úr ríkissjóði.
„Þetta er mjög myndarlegur stuðningur og skilar þeim flutnings- og
dreifikostnaði undir einni krónu á kílóvattstund, á meðan dæmigerður
viðskiptavinur sömu dreifiveitu í þéttbýli er að greiða yfir 9 krónur,“
segir Gústaf Adolf. Að hans sögn njóta garðyrkjubændur að öðru leyti
ekki annarra kjara hjá íslenskum orkufyrirtækjum en önnur atvinnu-
starfsemi.
Samorka: Garðyrkjan nýtur sérkjara
GRÆN STÓRIÐJA Garðyrkjan í heild sinni notar um 70 gígavattstundir á ári [70
milljón kílóvattstundir] og er því um að ræða orkusækna græna starfsemi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJARAMÁL Félög Starfsgreina-
sambandsins búa sig undir að
vísa kjaradeilu sinni við Sam-
tök atvinnulífsins (SA) til ríkis-
sáttasemjara um leið og hafinn er
undir búningur aðgerða.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sambandsins í gær. Vísað er til
þess að launakröfur Starfsgreina-
sambandsins hafi verið birtar SA
síðasta mánudag og fulltrúar SA
strax lýst því yfir að þær gætu
ekki orðið grundvöllur viðræðna.
Starfsgreinasambandið fer
með umboð 16 aðildarfélaga um
allt land og semur fyrir rúmlega
12 þúsund manns á almennum
vinnumarkaði. - óká
Hefja undirbúning aðgerða:
Deilu vísað til
sáttasemjara
VIÐSKIPTI Hagnaður Nýherja eftir
skatta á síðasta ári nam 259 millj-
ónum króna á síðasta ári. Þetta
er algjör viðsnúningur frá árinu
á undan þegar heildartap á árinu
nam 1.608 milljónum króna.
Vöru- og þjónustusala á árinu
nam 11.572 milljónum króna, en
var 10.940 milljónir króna árið á
undan og 3.052 milljónir á fjórða
ársfjórðungnum.
Finnur Oddsson, forstjóri fyrir-
tækisins, fagnar niðurstöðunni en
segir að enn þurfi að stíga skref
til að bæta afkomu. - jhh
259 milljóna hagnaður:
Nýherji snýr
tapi í hagnað
FORSTJÓRI Finnur Oddsson segir þurfa
að treysta eiginfjárhlutfall Nýherja.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
NORÐANÁTT RÍKJANDI Í dag og næstu daga ríkja norðlægar áttir að mestu. Horfur
á úrkomu N- og NA-til í dag en búast má við björtu veðri sunnan- og vestanlands. Á
morgun dregur heldur fyrir sólina og á sunnudaginn kólnar enn frekar.
-3°
4
m/s
-3°
6
m/s
-2°
3
m/s
0°
9
m/s
Strekk-
ingur SA-
til, annars
hægur
vindur.
Hæg
N-læg eða
breytileg
átt.
Gildistími korta er um hádegi
2°
21°
0°
7°
15°
1°
3°
2°
2°
19°
4°
14°
22°
14°
9°
2°
2°
3°
-5°
8
m/s
0°
14
m/s
-2°
9
m/s
-1°
8
m/s
-3°
4
m/s
-2°
5
m/s
-10°
7
m/s
-2°
-2°
-1°
-2°
-5°
-2°
-6°
-9°
-5°
-6°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
SUNNUDAGUR
Á MORGUN
63 prósent samdráttur varð á veltu í skógrækt
og skógarhöggi hérlendis milli
áranna 2008 og 2013.
Fyrra árið velti greinin 240,6 millj-
ónum króna en það síðara aðeins
88,8 milljónum. Heimild: Hagstofa Íslands.
FERÐAÞJÓNUSTA Ragn heiður
Elín Árna dótt ir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, sem jafnframt er
ráðherra ferðamála, mælti fyr-
ir frum varpi um nátt úrupassa á
Alþingi í gær.
Útfærsla Ragnheiðar á gjald-
tökunni hefur verið afar umdeild
og voru skoðanaskiptin í
umræðum um frumvarpið snörp.
Ragnheiður sagði ekki hægt að
horfa upp á náttúruna liggja
undir skemmdum og sagðist
sannfærð um að það væri meira
í þessu máli sem sameinaði þing-
heim en sundraði. Ragnheiður
benti sérstaklega á í ræðu sinni
að gjaldtökuheimildir væru til
staðar í náttúruverndarlögum.
Hún sagði það vera vegna þess
að löggjafinn sjái að með tilliti til
náttúruverndar sé möguleiki á að
það þurfi að innheimta aðgangs-
eyri til að tryggja fjármuni til
uppbyggingar.
Allir stjórnarandstöðuþing-
menn sem stigu í pontu voru á
móti útfærslu frumvarpsins.
Helgi Hjörv ar, þingmaður Sam-
fylk ing ar inn ar, taldi að með því
væri verið að flækja skattkerfið
og vildi heldur að gistináttagjaldi
yrði breytt, líkt og Samtök ferða-
þjónustunnar hafa lagt til.
Kristján L. Möller, flokksbróð-
ir Helga, sagði passann verstu
leið sem ráðherra hefði getað
valið. Hann furðaði sig einnig á
því að frumvarpið væri lagt fram
af ráðherra með skilaboðum um
að hún vonaðist til að því yrði
gjörbreytt af þinginu. - fbj
Ráðherra ferðamála mælti fyrir frumvarpi um nýjan náttúrupassa fyrir ferðamannastaði á þingi í gær:
Náttúran megi ekki liggja undir skemmdum
UMDEILT FRUMVARP Ragnheiður Elín
Árnadóttir ferðamálaráðherra segir ekki
hægt að horfa upp á náttúruna liggja
undir skemmdum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vegna
tekjumarka
sem dreifi-
veitum eru
sett þýðir
lækkun á
einn notanda
hækkun á annan. Að auki
þýðir lækkun til garð-
yrkjubænda lækkun til
annarra sambærilegra
stórra notenda, þar með
talið fiskvinnslu og
annars iðnaðar.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
C
-B
5
5
8
1
7
E
C
-B
4
1
C
1
7
E
C
-B
2
E
0
1
7
E
C
-B
1
A
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K