Fréttablaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 10
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
NOREGUR Norskur dómstóll mun í
dag taka ákvörðun um það hvort
Faraj Ahmad Najmuddin, yfirleitt
þekktur undir nafninu Múllah
Krekar, verði sendur til smábæjar-
ins Kyrksæterøra í Noregi. Þar er
ætlunin að hafa hann undir eftir-
liti á heimili fyrir hælisleitendur.
Sjálfur vill hann alls ekki fara
þangað, heldur búa á heimili sínu í
Ósló hjá fjölskyldu sinni.
Hann var látinn laus úr fang-
elsi á sunnudaginn. Þar hafði
hann dvalið síðan 2012, dæmdur
af hæstarétti fyrir ítrekaðar hót-
anir gegn norskum stjórnmála-
mönnum og fleiri einstaklingum í
Noregi. Árið 2006 settu Sameinuðu
þjóðirnar hann á lista yfir hryðju-
verkamenn tengda Al Kaída-sam-
tökunum. Á þeim lista er hann enn.
Þegar hann gekk út úr fangels-
inu í Kongsvinger, sem er skammt
frá Ósló, talaði hann við fjölmiðla
og þakkaði fangavörðunum fyrir
almennilegheit en líkti jafnframt
norska kerfinu við Norður-Kóreu.
Hann hefur búið í Noregi síðan
1991, kom þangað flóttamaður frá
Írak. Hann á eiginkonu og fjögur
börn, sem öll hafa norskan ríkis-
borgararétt, en sjálfur hefur hann
aldrei fengið samþykkta umsókn
sína um ríkisborgararétt.
Strax árið 2003 vildu norsk
stjórnvöld vísa honum úr landi.
Árið 2007 staðfesti svo hæstirétt-
ur Noregs að af honum stafaði
hætta fyrir norska ríkið. Stjórnin
hefur þó ekki getað vísað honum
úr landi, vegna þess að ekki er til
samningur við Írak sem tryggði að
þar í landi yrði hann hvorki pynt-
aður né tekinn af lífi.
Krekar er frá Kúrdahéruðunum
í norðanverðu Írak. Kúrdastjórnin
þar hefur viljað fá hann framseld-
an en ekkert hefur orðið af því af
fyrrgreindri ástæðu.
Hann var í Írak á árunum 2001
til 2003 þar sem hann stjórnaði
Virðing
RéttlætiVR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 WWW.VR.IS
Hefur þú áhuga á
að starfa í forystu VR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til
formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, sjö sæti í stjórn og þrjú
til vara. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns
og 15 vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar.
Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna
trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar sé löglega fram borinn þarf
skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 6. febrúar 2015. Framboðum og
framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á heimasíðu VR www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegari upplýsingar birtar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn
VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
30. janúar 2015
Kjörstjórn VR
STJÓRNMÁL Flestir, eða 38,6 pró-
sent aðspurðra, telja Sjálfstæðis-
flokkinn best til þess fallinn að
leiða málaflokkinn „lög og regla
almennt“, af þeim sem tóku þátt
í könnun MMR um hvaða flokkar
væru best til þess fallnir að leiða
ýmsa málaflokka.
Aðeins 7,8 prósent aðspurðra
telja Framsóknarflokkinn best til
þess fallinn að leiða þann mála-
flokk.
Nærri fjórir af hverjum tíu telja
Vinstri græna best til þess fallna
að stýra umhverfismálum.
Einnig var fylgi flokkanna mælt
í sömu könnun. Samkvæmt þeirri
könnun er Framsóknarflokkurinn
með minnst fylgi þeirra flokka sem
eru á Alþingi. 9,4 prósent myndu
kjósa flokkinn nú samkvæmt könn-
uninni. Sjálfstæðisflokkurinn er
með um 27,3 prósenta fylgi. Björt
framtíð og Samfylkingin mælast
með 17 og 16 prósenta fylgi.
Könnunin var gerð dagana 9.
til 14. janúar meðal einstaklinga
18 ára og eldri úr hópi álitsgjafa
MMR. Alls svöruðu 993 einstak-
lingar könnuninni. - sa
Könnun um traust kjósenda á stjórnmálaflokkum:
Vilja Sjálfstæðisflokk
til að annast lagamál
BJARNI BENEDIKTSSON Formaður Sjálfstæðisflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNSÝSLA Starfsmenn Fiski-
stofu gagnrýna vinnubrögð Sig-
urðar Inga Jóhannssonar sjávar-
útvegsráðherra harðlega í bréfi
til umboðsmanns Alþingis. Í bréf-
inu eru athugasemdir við svör
ráðherrans frá 12. desember um
flutning Fiskistofu.
Í svörum Sigurðar Inga til
umboðsmanns lætur hann í veðri
vaka að engin ákvörðun hafi verið
tekin um flutning Fiskistofu frá
Hafnarfirði til Akureyrar. Starfs-
menn benda á orð ráðherrans frá
því í sumar um að ákvörðun um
flutninginn hafi verið tekin. Telja
þeir vinnubrögðin ráðuneytinu og
ráðherranum til vansa, vera sið-
ferðislega ámælisverð og til þess
fallin að afvegaleiða eftirlitsstofn-
un Alþingis.
„Til að reyna að bjarga sér úr
snöru löglausrar ákvörðunar eru
nú búin til málsatvik með því að
breyta ákvörðun í áform,“ segir
í bréfinu. Bent er á að í lekamál-
inu hafi umboðsmaður sagt rétt-
ar upplýsingar forsendu þess að
umboðsmaður geti lagt mat á lög-
mæti ákvarðana og athafna stjórn-
valds.
Þann 27. júní síðastliðinn birtist
fréttatilkynning á vef ráðuneyt-
isins þar sem segir að Sigurður
Ingi Jóhannsson hafi kynnt ríkis-
stjórn áform um að efla starfsemi
Fiskistofu á Akureyri og flytja
stofnunina þangað. Þar er ekki til-
greint að um ákvörðun hafi verið
að ræða, heldur aðeins um áform.
Benedikt Sigurðsson, aðstoðar-
maður ráðherra, sagði ekki rétt að
verið væri að afvegaleiða umboðs-
mann Alþingis.
Inga Þóra Þórisdóttir, sviðs-
stjóri hjá Fiskistofu, segir starfs-
andann í stofnuninni ekki upp á
marga fiska. Hið langvarandi álag
sem fylgi fyrirhuguðum flutningi
leggist þungt á starfsfólk. „Nú
er svo komið að allir þeir starfs-
menn hér í Hafnarfirði sem horfa
upp á flutning starfs síns norður
eru í virkri atvinnuleit,“ segir Inga
Þóra.
Ekki náðist í Sigurð Inga
Jóhannsson við vinnslu fréttar-
innar. - sa
Fiskistofustarfsmenn gagnrýna ráðherra harðlega:
Segja umboðsmann
afvegaleiddan af
sjávarútvegsráðherra
Hryðjuverkasamtökin Ansal al Islam voru stofnuð í Kúrdahéruðum Íraks
árið 2001 og tengdust lauslega Al Kaída. Múllah Krekar var leiðtogi þeirra
fyrstu árin, eða þar til hann hélt aftur til Noregs árið 2003. Kúrdastjórnin
í norðanverðu Írak vill fá hann framseldan fyrir voðaverk liðsmanna
samtakanna í þorpum, sem þau náðu á sitt vald. Í aðdraganda Íraksstríðs-
ins árið 2003 héldu bandarísk stjórnvöld því fram að samtökin væru í
samstarfi við Saddam Hussein, og reyndu þannig að sýna fram á tengsl
Saddams Hussein við Al Kaída.
Ansar al Islam
SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON Starfsmenn Fiskistofu segja sjávarútvegsráðherra
„reyna að bjarga sér úr snöru löglausrar ákvörðunar“. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vilja senda Múllah
Krekar í einangrun
Norsk stjórnvöld hafa árum saman verið í vandræðum með harðsvíraðan íslam-
ista sem nú á að senda á heimili fyrir hælisleitendur í norskum smábæ. Sjálfur vill
hann búa á heimili sínu í Ósló. Ekki hefur verið hægt að vísa honum úr landi.
MÚLLAH KREKAR Krekar kraup til bænahalds í kuldanum á sunnudaginn var,
nýkominn úr fangelsi í Kongsvinger, skammt frá Ósló. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
hryðjuverkasamtökunum Ansar
al Islam. Samtökin voru tengd
Al Kaída og sjálfur segist Krek-
ar hafa hitt Osama bin Laden í
Pakistan á níunda áratug síðustu
aldar, áður en hann flúði til Nor-
egs.
Sjálfur hefur hann aldrei farið
dult með aðdáun sína á bin Laden:
„Það leikur enginn vafi á því.
Osama bin Laden er ærlegur og
áreiðanlegur og hann ver tíma
sínum til trúarbaráttu. Hann hefur
afsalað sér veraldlegu lífi,“ sagði
Krekar í norsku sjónvarpi.
gudsteinn@frettabladid.is
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
D
-8
9
A
8
1
7
E
D
-8
8
6
C
1
7
E
D
-8
7
3
0
1
7
E
D
-8
5
F
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K