Fréttablaðið - 30.01.2015, Page 12
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
„Ég er hér núna. Ég get ekki breytt
þessu. Þetta er ekki martröð sem ég
vakna af. Þetta er raunveruleikinn,“
segir ung kona sem afplánar dóm fyrir
fíkniefnainnflutning á Kvíabryggju.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi hana
í fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellt
fíkniefnalagabrot. Konan, sem kýs að
koma fram undir dulnefni og við skul-
um kalla Maríu, flutti óafvitandi þús-
undir e-taflna faldar í botni ferðatösku
og segir kærasta sinn hafa platað sig
til þess að flytja þær til landsins. Við
rannsókn málsins kom í ljós að aðstæð-
ur Maríu voru með þeim hætti að grun-
ur kviknaði um mansal.
Mál Maríu varpar ljósi á það hversu
fjölbreytt glæpastarfsemi mansal er.
Mál hennar er notað í fræðsluerindum
á vegum lögreglunnar til að fræða fag-
aðila um mansal. Mansalar leita fanga
meðal ungra kvenna sem eru í veikri
efnahagslegri og félagslegri stöðu,
frá brotnum heimilum eða illa stödd-
um fjölskyldum. Þrátt fyrir að grun-
semdir um mansal hafi verið sterkar,
var þeim ekki fundinn orðastaður í
dómi gegn henni. María játaði á sig
innflutninginn og upplýsti um aðild
annarra í málinu.
Grunnskólakennari að mennt
Hún er grunnskólakennari að mennt
og stundaði framhaldsnám í sögu í
heimalandinu, Hollandi. Innflutning-
urinn til Íslands er fyrsta brot hennar
og hún hefur engin tengsl eða kynni
haft af glæpum áður.
„Áður en ég var handtekin var ég
í sagnfræðinámi í Hollandi. Ég bjó
með fyrrverandi kærasta mínum og
ætli líf mitt hafi ekki verið þokkalega
eðlilegt. Þremur mánuðum áður en ég
var handtekin flutti ég inn með kær-
astanum í Utrecht.“
Þótt María hafi talið líf sitt í eðli-
legum skorðum, var kærasti hennar
ekki sá sem hann sagðist vera og not-
færði sér hana og blekkti. Það vissi
hún ekki fyrr en hún var handtekin
í Leifsstöð.
„Hann hafði gefið mér ferð til
landsins, langa helgi á Íslandi til að
slappa af. Þegar ég lít til baka þá voru
merki um að hann væri ekki sá sem
hann var, ég fann til dæmis annan
síma sem hann var með í fórum
sínum með ókunnum símanúmerum.
Hann gaf engar útskýringar á því og
svo gleymdist það bara. Ég treysti
honum í blindni. Ég er ekki heimsk
en veit að ég hef ekki gott innsæi.“
Hræðist þá sem áttu efnin
María hringdi ekki í fyrrverandi
kærasta sinn fyrr en hún var komin
í Kvennafangelsið í Kópavogi. „Ég
hringdi bara í hann einu sinni. Í
Kópavogi. Lögfræðingurinn minn var
með mér og varð vitni að samtalinu.
Hann varð alveg brjálaður yfir því
að ég væri að hringja í hann og kall-
aði mig öllum illum nöfnum,“ segir
hún frá og bætir við að það sé í síð-
asta sinn sem hún hafi talað við hann.
„Sambandið var þar með búið.“
María segist vita að hann hafi hlot-
ið dóm í Hollandi og heldur að hann
sitji inni. Þrátt fyrir það hræðist hún
þá sem stóðu á bak við innflutninginn.
„Auðvitað er ég hrædd,“ segir hún
aðspurð um það hvort hún hræðist þá
sem stóðu að því að blekkja hana til
að flytja efnin til landsins og segir
að hollensk yfirvöld muni aðstoða
hana þegar hún losnar úr fangelsi.
„Við höfum verið að ræða hvað er
hægt að gera. Til að byrja með fæ
ég breytt nafn, ég mun heldur ekki
snúa á mínar heimaslóðir. Ég reyni að
hugsa ekki mikið um þetta en á sama
tíma reyni ég að sætta mig við þetta.
Ég mun flytja á nýjan stað og reyna
að hefja nýtt líf.“
Fékk litla hjálp
Fyrstu sjö mánuðir afplánunarinnar
voru í Kvennafangelsinu í Kópavogi.
María segir þann tíma hafa reynt mjög
á sig. Hún fékk litla hjálp við að glíma
við áföllin sem hún hafði gengið í gegnum
og óttann og óvissuna sem hún fann fyrir
vegna blekkinganna sem hún varð fyrir.
„Það tók marga mánuði að komast
yfir reynsluna að dvelja þar. Fangels-
ið er gamalt og lyktar af sagga. Það er
lítið og það þarf aðeins fáar manneskjur
í slæmu ásigkomulagi til að gera vistina
skelfilega. Þannig var það, með mér voru
fíklar og konur með geðvandamál og fólk
sem ég myndi forðast í mínu venjulega
lífi. Það var vitað að ég var óharðnaður
glæpamaður en mér fannst ákveðið ráða-
leysi gagnvart því. Ein kona henti í mig
stól, þetta var súrrealísk upplifun,“ segir
hún frá.
Hún tók boði um að afplána í opnu fang-
elsi á Kvíabryggju fegins hendi. Sérstak-
lega þar sem það opnaði möguleikann á
fjarnámi. Hún vænti þess að aðstæður
sínar breyttust en upphaf vistarinnar á
Kvíabryggju voru henni mikil vonbrigði.
Í fjarnámi og prjónar á fanga
María lét ekki deigan síga. Frá upphafi
ákvað hún að hafa nóg fyrir stafni til að
dreifa huganum. Á Kvíabryggju ákvað
hún að hefja nám í hollenskum háskóla
og fékk til þess stuðning þarlendra yfir-
valda. Þá hafði hún lært að prjóna í
Kvennafangelsinu af einum fangavarð-
anna.
„Ég er mjög hamingjusöm að vera
aftur sest á skólabekk því mér var farið
að leiðast. Hollensk yfirvöld greiða fyrir
námið og telja það gott fyrir endur-
hæfingu. Þá kenndi einn fangavarð-
anna í Kópavogi mér að prjóna. Ég hef
aldrei náð sérstakri færni við það en nú
er ég betri en móðir mín, segir hún stolt
í bragði. „Nú er ég að prjóna húfu með
merki fótboltafélags handa einum fanga-
varðanna.“
Fær ekki næga sálfræðiaðstoð
María segist loka sig af í eigin heimi. Þó
gefur hún mikið af sér til samfélagsins á
Kvíabryggju. „Ég reyni að hafa það eins
gott og ég mögulega get og loka mig af í
eigin heimi. Mér finnst gaman að baka
og ég geri svolítið af því. Á laugardag
var afmæli og ég bakaði sex laga regn-
bogaköku. Sumir strákanna hér eiga
svolítið erfitt með stærðfræðina og ég
hjálpa þeim. Mér finnst skipta miklu
máli að reyna að hafa eitthvað svona
fyrir stafni.“
Hún hefur fengið takmarkaða sál-
fræðiaðstoð og segir ekki hjálp að fá
nema handa þeim sem eiga við andleg
veikindi að stríða eða haga sér illa og
valda öðrum vandræðum. Hún fékk hins
vegar góða aðstoð kvenkyns fangavarðar
við að ræða líðan sína.
„Það kom sálfræðingur að hitta mig.
Hún sagði mér að hengja upp myndir
frá heimalandinu og ýmislegt annað.
Ég hafði áhyggjur af geðheilsu minni
og vildi ræða áföllin sem ég hafði geng-
ið í gegnum og hvað bíður mín þegar ég
losna. Sálfræðingurinn sagði, já, ræðum
það þegar að því kemur. Ég er mjög gátt-
uð á þeim viðbrögðum. Maður þarf að
vera orðinn mjög veikur til þess að fá
sálfræðiaðstoð. Hér er einn kvenkyns
fangavörður sem ég get talað við. Sem
skilur mig og getur veitt mér stuðning.
Verðirnir þekkja þessa líðan, hafa séð
hana áður og vita hvaða orð hugga. Ef þú
ert ekki fíkill og ekki til vandræða, þá
færðu ekki hjálp.“
Hollenski konsúllinn á Íslandi kom
í fangelsið að heimsækja Maríu og gat
ekki veitt mikla hjálp. „Hann talaði ekki
einu sinni hollensku. Hlustaði á mig en
brást lítið við. Hins vegar hefur sendi-
ráðið reynst mér vel og ég hef fengið jóla-
kort frá þeim og þannig lagað. Lögfræð-
ingurinn minn hefur líka reynst mér jafn
vel og mín eigin móðir. Hún sagði strax
við mig að hún myndi hjálpa mér að kom-
ast í gegnum þetta. Heimsækja mig eins
oft og hún gæti og hún sagði mér að ég
myndi komast í gegnum þessa lífsreynslu
ef ég hætti að ásaka sjálfa mig. Ég er
mjög þakklát henni.“
Blekkt og notuð sem burðardýr
Við rannsókn á máli konu sem flutti þúsundir e-taflna til landsins kviknaði grunur um að hún væri fórnarlamb mansals. Kærasti hennar
blekkti hana og nú afplánar hún dóm vegna innflutningsins. Hún hefur fengið litla hjálp og reynir að gera það besta úr aðstæðum.
Í Skýrslu Sameinuðu þjóðanna á sviði glæpa og fíkniefna sem notuð
er til fræðslu á dómsstigi er bent á leiðir sem mansalar nota til glæpa
og ágóða. Ein af þeim helstu er að mynda tilfinningaleg tengsl við
fórnarlömb.
Mansalar þrífast á því að stjórna fórnarlömbum sínum, og sam-
kvæmt skilgreiningu skortir samþykki og ásetning brotaþola í mansals-
málum. Þau ráða ekki ferð. Í sumum málum virðast fórnarlömb hafa
gefið samþykki sitt en við nánari skoðun kemur ef til vill í ljós að
samþykkið var vegna blekkinga og svika.
Aðferðir sem eru títt notaðar eru ofbeldi, blekkingar, skuldaánauð,
einangrun, trú og hindurvitni, skemmdarverk, hótanir. Flestir mansalar
nota margar aðferðir til að ná tökum á fórnarlömbum. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna
er minnt á að þótt fórnarlamb hafi ekki verið beitt ofbeldi eða grófum hótunum þá
þýði það ekki að því sé ekki stjórnað með áhrifaríkum aðferðum.
Fórnarlömb álíta sig vera í sambandi við mansalann. Samböndin eru af ýmsum
toga. Ástarsambönd, vinasambönd og fjölskyldusambönd. Það þekkist að foreldrar
selji börn sín mansali svo fagaðilar eru í skýrslu Sameinuðu þjóðanna beðnir um
að þjálfa með sér víðsýni í þessum efnum og muna að brotaþolar treysta mansala í
blindni.
Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, segir
mansal sem byggist á tengslamyndunum við brotaþola einstaklega erfitt viðureignar.
„Þetta er þekkt aðferð, „boyfriend-method,“ eða „kærastaaðferð“ að bindast
brotaþola böndum og er áhrifaríkari en margar aðrar,“ segir Margrét.
„Það eru svo margar aðferðir til þess að kúga aðra og svipta þá frelsi, en mansalar
lenda ekki í jafn miklum vandræðum ef þeir hafa náð brotaþolanum á sitt band,“
segir Margrét.
Fórnarlömb gætu skammast sín vegna þess að þau hafa verið blekkt. Á öllum
stigum er fagaðilum bent á að fullvissa fórnarlamb um að þau hafi ekkert til að
skammast sín fyrir. Að þau eigi ekki að álasa sér. Orð eins og: Hvernig gastu trúað
þessu? og: Fannst þér þetta ekki svolítið grunsamlegt? eiga ekki við.
Í skýrslunni kemur einnig fram að fórnarlömb skuli fá aðstoð og sálfræðiráðgjöf
eins fljótt og auðið er til þess að hjálpa þeim að rjúfa vítahring kúgunar og ofbeldis.
Bent er á að sérþjálfað fagfólk þurfi að koma að þessum málum og sér í lagi þegar
börn eiga í hlut.
Mál Maríu er ekki eina fíkniefnamálið þar sem grunur kviknar um
mansal. Í öðrum nýföllnum dómi gegn ungri konu var talið að eftir
innflutning fíkniefna stæði til að nýta líf hennar áfram með vændi.
Þá féll nýlega dómur gegn ungum karlmanni sem var gripinn í Leifs-
stöð með metamfetamínbasa, honum hafði verið lofað vinnu eftir
innflutninginn. Í Fréttablaðinu á þriðjudag sagði Snorri Birgisson,
rannsóknarlögreglumaður á Suðurnesjum, lögreglu vera farna að sjá
fleiri slík mál. „Við höfum kallað það margnýtingu á manneskju sem
vöru. Það er eitthvað sem við erum nýfarin að sjá og er í rauninni
dapurt. Þarna eru tveir stærstu brotaflokkarnir farnir að sameinast
undir einn hatt.“
Fleiri fíkniefnamál tengd mansali
Mynda tilfinningaleg tengsl
AFPLÁNAR DÓMINN María fékk fjögurra ára dóm fyrir smygl á þúsundum e-taflna sem voru faldar í ferðatösku
hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/TÓMAS KRISTJÁNSSON
Til að
byrja með
fæ ég
breytt
nafn, ég
mun
heldur ekki
snúa á
mínar
heimaslóð-
ir. Ég reyni
að hugsa
ekki mikið
um þetta
en á sama
tíma reyni
ég að sætta
mig við
þetta. Ég
mun flytja
á nýjan
stað og
reyna að
hefja nýtt
líf.
Ætlar að vera ein
María er búin að ákveða hvað hún
gerir daginn sem hún losnar. Hún
ætlar að vera ein. „Ég mun bóka mig
á hótel og vera ein. Ég ætla að fara
í heitt bað og fara í nudd og njóta
einverunnar. Það eru ótrúleg lífs-
gæði sem ég kann að meta í dag. Hún
útskýrir að hversdagslegt, eðlilegt líf
sé það sem hana dreymir um.„Ég er
að vonast til að fá dagsleyfi í næsta
mánuði. Ég hef fengið heimsóknir frá
iðjuþjálfa úr litlum bæ hér í nágrenn-
inu. Hún kom að hitta mig fyrir til-
stilli eins fangavarðarins sem hafði
áhyggjur af því hversu einmana ég
var. Hún talar hollensku og það var
æðislegt. Nú hefur hún komið að hitta
mig nokkrum sinnum og það er svo
gott að tala við hana. Ég ætla að nota
dagsleyfið og fá mér kaffi með henni
og síðast en ekki síst borða kvöldmat
með fjölskyldu hennar og börnum. Það
er það sem ég þrái. Að eiga eðlilega
kvöldstund, þessir litlu hversdagslegu
hlutir eru svo óskaplega dýrmætir.“
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
MARGRÉT
STEINARSDÓTTIR
Ég
treysti
honum í
blindni. Ég
er ekki
heimsk en
veit að ég
hef ekki
gott
innsæi.
SNORRI
BIRGISSON
ASKÝRING | 12
1 2 3 4 5MANSAL Á ÍSLANDI
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
D
-1
3
2
8
1
7
E
D
-1
1
E
C
1
7
E
D
-1
0
B
0
1
7
E
D
-0
F
7
4
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K