Fréttablaðið - 30.01.2015, Síða 14
30. janúar 2015 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Jón Gnarr og Júlíus Vífill
Jón Júlíus Karlsson, sem er áhorfend-
um frétta á Stöð 2 að góðu kunnur,
hefur skrifað ritgerð um hvort Jón
Gnarr hafi í raun verið borgarstjóri.
Niðurstaðan er að svo hafi verið.
Meðal viðmælenda Jóns Júlíusar í
ritgerðinni er Júlíus Vífill Ingvarsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Júlíus segir meðal annars um
Jón Gnarr: „Þarna var hann
kominn á stað sem krafðist
einbeitingar og að setja sig
inn í störf sem snerust ekki
beint um hann sjálfan heldur
um hag annarra. Ég held
að það hafi reynst
honum of flókið að
gera það,“ sagði
Júlíus og Nútíminn
greinir frá.
Júlíus Vífill og Jón Gnarr
Meira af því sem er hér að framan.
Júlíus Vífill var ekki hrifinn af Jóni
Gnarr sem borgarstjóra. Orðrétt:
„Hann hlýtur að hafa gert sér grein
fyrir að hann gat ekki sinnt starfinu
með sama hætti og aðrir höfðu gert
fram til þessa. Þess vegna var stjórn-
kerfinu breytt. Þannig stendur það
enn þá. Það kemur svolítið á óvart
að Dagur skuli ekki hafa breytt
því aftur.“ Þá er það það, er
stjórnkerfið betra eða verra
eftir breytingarnar? Júlíus
Vífill er viss: „Slík stjórnun,
eins og var á síðasta
kjörtímabili,
gengur
auðvitað
ekki
upp.“
Birgittu nóg boðið
„Ég sat hérna rétt áðan og heyrði
Árna Pál Árnason segja að hann
væri hlynntur því að þetta yrði
skoðað og svo kemur þingmaður
úr Framsóknarflokknum og heldur
því fram að þingmaðurinn hafi
verið að segja eitthvað allt annað,“
sagði Birgitta Jónsdóttir á Alþingi
um Víglundarmálið. „Ég skil ekki
svona þvælu. Ég skil ekki af hverju
við þurfum að haga okkur
eins og við séum á leikskóla.
Getum við ekki farið að
haga okkur eins og fólk?
Ég bið ykkur um það, í það
minnsta. Ástandið er alveg
nógu ömurlegt í sumum
nefndum,“ sagði Birgitta
meðal annars.
sme@frettabladid.is
Árið 2000 komu þjóðarleiðtogar heims
saman á vegum Sameinuðu þjóðanna til að
samþykkja Þúsaldarmarkmiðin svoköll-
uðu. Markmiðin voru mótuð af fámenn-
um hópi í kjallaraherbergi SÞ í New York,
umhverfismarkmiði var skotið inn í á síð-
ustu stundu. Þetta var í fyrsta skipti sem
svo skýr markmið voru sett fram til að
minnka fátækt í heiminum. Markmiðin eru
átta og hefur þremur markmiðum verið
náð á þessum 15 árum. Það hefur tekið
tíma fyrir alþjóðasamfélagið að vinna eftir
slíkum markmiðum og árangurinn hefði
getað verið meiri, en þróunin er í áttina og
enn eru ellefu mánuðir til stefnu.
Árið 2015 koma leiðtogar frá aðildar-
ríkjum SÞ saman á ný til að meta árangur
markmiðanna og endurnýja. Ferlið hefur
verið eitt það markverðasta í sögu samtak-
anna og eflaust með flóknari stefnumót-
unarferlum sem um getur, 193 aðildarríki
og óteljandi hagsmunahópar. Markvisst
hefur verið reynt að fá sem flesta að mótun
þeirra, bæði almenning, stjórnvöld og
félagasamtök. Allir eiga hagsmuna að gæta
við þetta samningaborð og það hefur klár-
lega flækt málin.
Drög að markmiðunum voru birt í
skýrslu framkvæmdastjóra SÞ í desem ber
sl., um er að ræða 17 markmið með 169
undirmarkmiðum (sjá nánar á 2015.is).
Samningaviðræður standa nú yfir með
mánaðarlegum fundum í New York fram á
sumar, síðan tekur Allsherjarþingið loka-
ákvörðun í september. Þessi markmið munu
gefa ríkjum heims þann möguleika að
stefna á sjálfbærni að öllu leyti, ekki bara
ríkisrekstri heldur fyrir alla vinkla sam-
félagsins jafnt sem einstaklinga. Vinnuheiti
markmiðanna hefur verið „sjálfbæru þró-
unarmarkmiðin“ og verða þau líklega sett
til 15 ára á ný.
Þessi gríðarstóra markmiðasetning um
þróun heims er ekki það eina stórtæka á
árinu. Sameinuðu þjóðirnar fagna í ár 70
ára starfsafmæli sínu, sem gefur okkur
tækifæri til að líta til baka á framlag sam-
takanna til friðar, mannréttinda og þró-
unar. Í tilefni þessara tímamóta hafa sam-
tökin lýst því yfir að 2015 verði tileinkað
ljósinu/ljóstækni og jarðveginum. Á þeim
vettvangi verða ýmsir viðburðir hér á
landi til að vekja athygli á þeim mála-
flokkum. Það er kraftur í árinu, það eru
sterkir hópar um allan heim með kröfur
um aðgerðir, sérstaklega í kringum mótun
nýrra markmiða en einnig í kringum lofts-
lagsmálin. Í tilefni af ári ljóssins er ekk-
ert annað í boði en að vera bjartsýn! Slík
alheims markmiðasetning er söguleg og
vonandi tekst með henni að skapa sann-
gjarnari og sjálfbærari heim.
2015 sögulegt ár fyrir SÞ
SÞ
Berglind
Sigmarsdóttir
framkvæmdastjóri
Félags Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi
M
erkilega oft virðist hér umræða um gjaldmið-
ilsmál fara í hringi án þess að þokast áfram. Þar
hjálpar ekki til að fluttir eru inn hagfræðingar
frá Danmörku til þess að vekja upp í henni gamla
drauga. Einhverjir hafa nefnilega hent á lofti orð
Lars Christensen, aðalhagfræðings Danske Bank, á fundi VÍB á
miðvikudag, að Kanadadollar og norsk króna væru raunhæfari og
betri valkostir í gjaldmiðilsmálum Íslands en upptaka evru. (Um
leið virðist hann þeirrar skoðunar að krónan sé ekki málið.)
Með öllu virðist gleymd viða-
mikil skýrsla Seðlabanka Íslands
sem út kom á haustdögum 2012
og nefndist „Valkostir Íslands í
gjaldmiðils- og gengismálum“.
Niðurstaða þeirrar skoðunar er
að valkostirnir séu tveir, annars
vegar endurbætt umgjörð krónu
og afnám hafta, og hins vegar
aðild að Evrópusambandinu og evrusvæðinu.
Í skýrslu Seðlabankans er einhliða upptaka annarrar myntar
líka slegin út af borðinu með góðum rökum, svo sem vegna
kostnaðar og skorts á baklandi fyrir fjármálafyrirtæki. Um leið
er talið ólíklegt að önnur lönd yrðu til viðræðu um að heimila
Íslandi afnot af gjaldmiðli eða vera hér lánveitandi til þrautavara
án þess að fá um leið veruleg yfirráð yfir fjármálakerfinu.
Seðlabankinn telur Kanadadollar raunar með sístu kostum,
þrátt fyrir stöðugleika í stjórn peningamála þar. „Kanadíska
myntsvæðið er lítið og engin önnur ríki tengjast því, viðskipti við
Kanada eru nánast engin og tengsl kanadísku hagsveiflunnar og
hinnar íslensku mjög takmörkuð,“ segir í skýrslu Seðlabankans.
Niðurstaða Seðlabankans var nefnilega að utan krónu væri
tenging við eða upptaka evru augljósasti kosturinn.
„Evrusvæðið vegur langþyngst í utanríkisviðskiptum þjóðar-
innar og erlendum skuldum hennar og er evran algengasta
uppgjörsmynt erlendra viðskipta hennar ásamt Bandaríkjadal.“
Evrusvæðið væri jafnframt næststærsta myntsvæði heims. „Því
fylgir tengingu við evruna viðbótarábati, vegna þess að fjöldi
annarra ríkja gerir slíkt hið sama eða reynir að draga úr sveifl-
um gagnvart henni.“ Og þótt tengsl innlendrar hagsveiflu við
hagsveiflu evrusvæðisins væru takmörkuð þá bendi rannsóknir
til þess að slík tengsl aukist jafnan við aðild að myntbandalagi.
Í skýrslu Seðlabankans kemur líka fram að ætla megi að
sveigjanlegt gengi krónu sé að jafnaði fremur til þess fallið að
vera sjálfstæð uppspretta aukinna sveiflna í þjóðarbúskapnum
en skilvirkt tæki til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Sá
vandi einskorðist ekki við krónuna heldur sé eðlislægt einkenni
mjög lítilla gjaldmiðla.
Þótt Christensen og aðrir sérfræðingar Danske bank hafi í
mars 2006 náð að benda á brotalamir í íslensku efnahagslífi
sem hefðu átt að vera ráðamönnum hér augljósar þá fór yfir-
vofandi alþjóðlega efnahagskrísan fram hjá þeim á sama tíma. Á
sama hátt virðist stóra myndin utan seilingar í greiningu hans á
kostum Íslands í peningamálum.
Kostirnir eru tveir. Öðrum fylgir sjálfstæður sveiflu- og
verðbólguvaldur og ávísun á gamalkunna hringekju efnahagsþró-
unar, heldur skaðlegri, en ekki síður leiðinleg, en hringavitleysa í
umræðu um efnahagsmál.
Hvað þarf umræðan að fara í marga hringi?
Gamlir draugar
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
www.snuran.is
vefverslun S: 537-5101
Njóttu þess að versla
heima í stofu og fáðu
sent upp að dyrum
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
C
-9
2
C
8
1
7
E
C
-9
1
8
C
1
7
E
C
-9
0
5
0
1
7
E
C
-8
F
1
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K