Fréttablaðið - 30.01.2015, Side 27
ÚTFARIR
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Kynningarblað
Útfararstofa kirkjugarðanna,
Fylgd, Ljónshjarta, Ný dögun,
Andlát.is og Litlir englar.
Tilgangur kirkjugarðanna með stofnun útfararstofu á árinu 1949 var „að lækka kostnað við
útfarir og minnka allt prjál“. Þau orð
voru í tíma töluð og eiga sjálfsagt að
einhverju leyti enn við. Nútímaþjóð-
félag hefur nýjar þarfir sem eru veg-
vísar til framtíðar,“ segir Elín Sig-
rún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Útfarar stofu kirkjugarðanna, stærstu
útfararþjónustu á landinu.
„Útfararstofa kirkjugarðanna
hefur sterka stöðu en við sjáum um
47% af útförum á þjónustusvæði
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma og erum leiðandi fyrirtæki á
þessu sviði. Fyrirtækið er þekkt fyrir
fagmennsku og góða þjónustu,“ segir
Elín. „Hluti okkar starfsfólks hefur
þjónað við útfarir í meira en tuttugu
ár og aðrir hafa fjölþætta reynslu
sem nýtist vel í starfi. Starfsmenn
okkar eru þekktir fyrir fagmennsku
og fágun.“ Útfararstofa kirkjugarð-
anna annast um það bil 600 útfarir á
ári ásamt því að flytja 40 til 50 lík til
og frá landinu.
„Þar er um töluverða aukningu að
ræða sem rekja má til fjölgunar er-
lendra ferðamanna til Íslands og bú-
setu og ferðalaga Íslendinga erlend-
is,“ útskýrir Elín. Arður af rekstri
útfararstofunnar rennur til eigand-
ans sem er Kirkjugarðar Reykjavík-
urprófastsdæma og er notaður til
samfélagslegra verkefna við rekstur
kirkjugarðanna.
Norræn samvinna
„Útfararstofa kirkjugarðanna er
fulltrúi Íslands í Nordisk Forum,
samtökum útfararstofa á Norður-
löndum. Það samstarf hefur gefið
útfararstofunni mikið. Við höldum
áfram að innleiða það besta sem út-
fararþjónusturnar á Norðurlönd-
um eru að gera í dag og heimsóttum
nýverið framsæknar útfararstofur í
Stokkhólmi og í Gautaborg. Segja má
að á Norðurlöndunum sé nú lögð rík
áhersla á að útfararþjónustan verði
persónulegri, ódýrari og netvædd-
ari.“
Val og neytendavernd
ÚK leggur ríka áherslu á neytenda-
vernd og afburðaþjónustu við við-
skiptavini. Ætla má að hver maður
eigi að meðaltali tvisvar viðskipti við
útfararstofu á ævi sinni. Þau viðskipti
fara fram þegar fólk er viðkvæmt og í
sorg og segir Elín neytendavernd því
mikilvæga á sviði útfararþjónustu.
Útfararstofan leggur til að mynda
áherslu á að útfararkostnaður sé
þekktur áður en til útfarar kemur.
„Við birtum verðskrá okkar á net-
inu og stefnt er að því að viðskipta-
vinum verði opnaðir fleiri valmögu-
leikar varðandi einstaka þætti út-
fararinnar svo þeir geti betur tekið
upplýstar ákvarðanir um kostnað
við útfarir,“ útskýrir Elín. „Þá mun
fólk brátt geta fyllt út eyðublöð ÚK á
netinu og pantað þjónustu rafrænt.
Ástvinir eru oft erlendis þegar dauðs-
föll verða og vilja gjarnan leysa mál
og undirbúa ýmsa útfararþætti raf-
rænt.“
Sálgæsla og lögfræðiþjónusta
Á Norðurlöndunum er aukin áhersla
lögð á sálgæslu og að undirbúningur
útfara sé ekki einungis skráning upp-
lýsinga um fyrirkomulag útfarar. Elín
segir meðal annars stefnt að því að
gefa fólki kost á samtölum varðandi
undirbúning eigin dauða og útfarar.
„Við munum auka þjónustu okkar
á þessum sviðum og með sérmennt-
uðu fagfólki. Við munum bjóða fólki
að koma í viðtal til að ræða hinsta
vilja og þá mun fólk geta bókað
óskir sínar á heimasíðu okkar innan
skamms.“
„Með þessari þjónustu er komið
til móts við breyttar þarfir í samfé-
laginu. Með ráðningu fagfólks vill
útfararstofan dýpka og styrkja þjón-
ustu við syrgjendur. Sú þjónusta
kemur ekki í staðinn fyrir heldur er
tengd sálgæsluþjónustu presta og
allra þeirra sem sinna syrgjendum,“
útskýrir Elín og leggur áherslu á að
útfararmál þurfi að vinna af þekk-
ingu.
„ÚK þjónar stórum hluta fjöl-
skyldna erlendra ferðamanna sem
látast á Íslandi og tengjast engum
öðrum fagaðilum og því þarf starfs-
fólk útfararstofunnar að sinna stuðn-
ingi við fólk í djúpri sorg. Því er þörf á
haldgóðri sálgæsluþekkingu.“
„Útfararstofan mun einnig bjóða
upp á lögfræðiþjónustu við gerð
erfðaskráa og kaupmála og jafn-
framt þjónustu við frágang erfða-
fjárskýrslu, að norrænni fyrirmynd.
Þetta er nýung í starfi ÚK,“ segir Elín.
Hún segir einnig tímann sem
aðstandendur njóti þjónustu út-
fararstofunnar lengjast með nýju
áherslum.
„Nú þjónar útfararstofan fjöl-
skyldum frá andláti til útfarar. Aukin
þjónusta lengir tímabil þjónustunn-
ar við fjölskyldurnar. Fólk sem er að
undirbúa eigin útför og vill vanda
sig í frágangi allra mála vill að sama
stofa eða stofnun, sem það treyst-
ir, sjái um lagamálin og einnig út-
fararmálin. ÚK virðir þessar þarf-
ir og beiðnir og mun hefja þjónustu
við fólk varðandi þennan málaflokk
til samræmis við það sem gert er hjá
systurstofnunum erlendis.“
„Það er von og stefna stjórnenda
fyrirtækisins að breytingarnar muni
styrkja starfsemi ÚK og einnig þróa
útfararþjónustu almennt í þágu og til
styrkingar fólki í sorg.“
Framúrskarandi fyrirtæki
„Það er okkar sýn að útfararstofan
eigi ávallt að vera framúrskarandi
fyrirtæki. Við höfum nýlega feng-
ið vottun frá Credit Info sem fram-
úrskarandi fyrirtæki 2014 og einnig
árið 2013. Útfararstofan er eina út-
fararstofa landsins sem hefur feng-
ið þessa vottun. Við fáum jákvæð
viðbrögð við því sem vel er gert en
við viljum jafnframt fá ábendingar
um það sem betur má fara, þannig
þróum við og bætum starfsemina.“
Nýjar áherslur og aukin þjónusta
Á liðnu ári fagnaði Útfararstofa kirkjugarðanna því að 65 ár voru liðin síðan KGRP stofnuðu útfararstofu og jafnframt að liðin
voru 20 ár frá því að ÚK varð sjálfstætt fyrirtæki. Stjórnendur Útfararstofu kirkjugarðanna ehf. vinna nú að nýjum áherslum í
rekstri fyrirtækisins til þess að koma sem best til móts við þarfir fólks í glímunni við dauða, sinn eigin eða ástvina.
Hluti starfsfólks Útfararstofu Kirkjugarðanna hefur þjónað við útfarir í meira en 20 ár. „Starfsmenn okkar eru þekktir fyrir fag-
mennsku og fágun.“ MYND/PJETUR
önnumst við alla þætti þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Hugrún Jónsdóttir
útfararstjóri
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-6
C
0
8
1
7
E
D
-6
A
C
C
1
7
E
D
-6
9
9
0
1
7
E
D
-6
8
5
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K