Fréttablaðið - 30.01.2015, Síða 28
KYNNING − AUGLÝSINGÚtfarir FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 20152
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512-5434
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Þótt skammt sé liðið frá því að samtökin Ljóns-hjarta voru stofnuð hefur
þegar komið í ljós að fyrir þau er
mikil þörf, enda er makamiss-
ir í blóma lífsins eitt mesta áfall
sem hægt er að verða fyrir á lífs-
leiðinni,“ segir Ína Lóa Sigurðar-
dóttir, einn stofnenda samtak-
anna. Þau eru hugsuð fyrir fólk
á aldrinum 20 til 50 ára þótt
aldursbilið sé eftir atvikum
sveigjan legt.
„Það tekur mjög á að vera í
djúpri sorg og að sinna á sama
tíma ungum börnum og heim-
ili. Það er mikilvægt að geta
fengið aðstoð og upplýsingar
um hvað þarf að gera og hvern-
ig hentugast er að gera hlutina.
Eins er gott að geta fengið upp-
lýsingar um réttindi sín í kerf-
inu og til hvaða fagaðila er hægt
að leita. Síðast en ekki síst finnst
f lestum mjög gagnlegt að fá að
komast í kynni við og hitta fólk í
sömu sporum, finna skilning og
stuðning hjá þeim sem þekkja
af eigin reynslu hvað við er að
etja.“
Samtökin eru að sögn Ínu
að vinna að gerð upplýsandi
heimasíðu sem ætti bæði að nýt-
ast fólki sem hefur misst maka
og aðstandendum þess. Síðan
verður opnuð á slóðinni ljons-
hjarta.is innan skamms. Þá er
starfandi lokaður umræðuhópur
á Facebook fyrir meðlimi Ljóns-
hjarta. Hann er að finna undir
leitarorðinu LJONSHJARTA en
þar er jafnframt hægt að sækja
um aðgang. „Við biðjum fólk sem
sækir um aðgang og félagsaðild
að skoða flipann „Annað“ í póst-
hólfinu sínu á Facebook ef það
er farið að lengja eftir svari, því
pósturinn frá okkur vill oft rata
þangað.“
Styðja við
bakið hvert
á öðru
Ljónshjarta eru nýleg samtök til stuðnings ungum
ekkjum og ekklum og börnum þeirra. Markmið
samtakanna er að styðja við bakið á ungu fólki eftir
makamissi og vera vettvangur þar sem fólk getur
hjálpað hvert öðru í sorg. Starfið felst meðal annars
í fyrirlestrahaldi, ýmsum uppákomum og
samverustundum þar sem fullorðnir, unglingar og
yngri börn hittast og eiga stund saman.
Ína Lóa Sigurðardóttir
Markmið samtakanna er að styðja við bakið á ungu fólki eftir makamissi og vera vett-
vangur þar sem fólk getur hjálpað hvert öðru í sorg. NORDICPHOTOS/GETTY
Þeir sem missa ástvin sitja margir eftir með hjarta-
sár og margar spurningar. Hér má finna nokkr-
ar vefsíður sem hjálpa fólki að fóta sig í tilverunni
þegar andlát ber að garði.
Ný dögun
Ný dögun er félag sem hefur að markmiði að styðja
syrgjendur og þá sem vinna að velferð þeirra. Félagið
efnir reglulega til almennra fræðslufunda og sam-
verustunda, veitir þá upplýsingaþjónustu sem auðið
er á hverjum tíma, vinnur að stofnun stuðningshópa,
greiðir fyrir samskiptum stuðningsaðila og syrgjenda
og stendur fyrir námskeiðahaldi og þjálfun stuðn-
ingsaðila.
Nánari upplýsingar má finna á www.sorg.is.
Andlát.is
Andlát.is er alhliða vefur og vettvangur sem hugsaður
er til þess að aðstoða og hjálpa fólki þegar andlát ber
að höndum. Á Andlát.is eru leiðbeiningar um hvað á
og þarf að gera þegar andlát ber að höndum og einn-
ig er hægt að koma á framfæri dánarfregnum, jarðar-
farartilkynningum, minningargreinum, minningar-
orðum og kveðjum.
Ekkert gjald er tekið fyrir notkun vefsins.
Litlir englar
Samtökin Litlir englar eru ætluð þeim sem hafa misst
börn sín í móðurkviði, í fæðingu eða stuttu eftir fæð-
ingu sem og þeim sem að þurfa að binda enda á með-
gönguna vegna alvarlegs fæðingargalla barns síns.
Síðan er einnig ætluð þeim sem misst hafa börn sín
einhvern tíma á lífsleiðinni og í raun öllum þeim sem
telja sig hafa af henni eitthvert gagn.
Þeir sem vilja kynna sér málið nánar geta farið á
vefsíðuna www.litlirenglar.is en samtökin má einn-
ig finna á Facebook.
Upplýsandi vefsíður fyrir syrgjendur
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
ERFIDRYKKJUR AF ALÚÐ
Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju
Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta
Sími: 525 9930 • hotelsaga@hotelsaga.is • www.hotelsaga.is
Það tekur mjög á
að vera í djúpri
sorg og sinna á sama
tíma ungum börnum og
heimili.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
D
-4
E
6
8
1
7
E
D
-4
D
2
C
1
7
E
D
-4
B
F
0
1
7
E
D
-4
A
B
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K