Fréttablaðið - 30.01.2015, Page 30
KYNNING − AUGLÝSINGAllt fyrir heimilið FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 20152
Arndís S. Árnadóttir, innanhússhönnuður og hönnunarsagnfræðingur, segir íslenska
hönnun hafa farið vel af stað eftir seinni heimsstyrjöld. MYND/GVA
Íslensk hönnunarsaga hefst á tutt-ugustu öld en lítill gangur var í henni fyrr en eftir seinna stríð. Þó
var kominn vísir að ullariðnaði áður
þar sem fram fór einhver frumstæð
hönnun. Einnig var einhver hönn-
un í kringum auglýsingagerð fyrir
miðja öldina. Svona lýsir Arndís S.
Árnadóttir, innanhússhönnuður og
hönnunarsagnfræðingur og höf-
undur bókarinnar Nútímaheimilið í
mótun – fagurbætur, funksjónalismi
og norræn áhrif á íslenska hönnun
1900-1970, upphafi íslenskrar hönn-
unarsögu. „Það má segja að fyrstu
íslensku hönnuðirnir hafi verið aug-
lýsingateiknarar sem fóru utan og
lærðu á fjórða áratugnum en eftir
seinna stríð jókst áhuginn á hönn-
un og á sjötta áratugnum fóru marg-
ir að læra húsgagnaarkitektúr, flestir
þeirra voru þó lærðir húsgagnasmið-
ir fyrir. Nokkrar konur lærðu þá hí-
býlafræði sem var eins konar undan-
fari innanhússhönnunar. Þó var nú
yfirleitt erfitt fyrir þetta fólk að koma
verkum sínum á framfæri,“ útskýr-
ir Arndís.
Sveinn Kjarval var afkastamikill
Helstu verkefni húsgagnaarkitekta
þessa tíma voru innréttingar. Lítill
hluti þeirrar miklu framleiðslu á hús-
gögnum sem fram fór hér á landi á
árunum milli 1950 og 1970 var teikn-
aður af húsgagnaarkitektum. Arndís
segir að það sem þó hafi verið teikn-
að hafi verið vel heppnað og greini-
lega vandað til verka.
„Sveinn Kjarval er sá hönnuð-
ur sem skilur hvað mest eftir sig, að
minnsta kosti ef miðað er við það
sem hefur varðveist og er varðveitt
í Hönnunarsafni Íslands. Íslensk
hönnun frá árunum 1950 til 1980
ber mikinn keim af norrænni hönn-
un. Það kemur ekki á óvart þar sem
flestir hönnuðanna lærðu á Norður-
löndum og langflestir í Danmörku.
Þeir hafa borið með sér það sem þeir
lærðu í skólanum hingað heim og sá
stíll hefur óhjákvæmilega síast yfir í
íslenska framleiðslu.“
Stálhúsgögnin vinsæl
Stálhúsgagnagerð var hér áber-
andi á fjórða og fimmta áratugnum
en sú framleiðsla var undir áhrif-
um frá Bauhaus-skólanum í Þýska-
landi. „Bauhaus-skólinn starfaði á
þriðja til fjórða áratugnum og fljót-
lega var farið að framleiða húsgögn
úr stálrörum um alla Evrópu og
hófst snemma hér á landi. Þá þurfti
ekki húsgagnasmiði eða arkitekta
til að teikna húsgögnin því þetta var
meira á sviði vélsmiða og járnsmiða.
Þannig tóku þeir líka þátt í að móta
smekk fólks og nútímalega hönnun
fyrir heimilin.“
Miklu hent á haugana
Arndís hefur sjálf haldið til haga hús-
gögnum sem tilheyrðu foreldrum
hennar sem settu saman bú á fjórða
áratugnum. „Uppáhaldshúsgagn-
ið mitt er stálstóll sem ég hef átt
frá því ég var í menntaskóla.
Stóllinn er íslensk smíði frá
fjórða áratugnum og hefur
verið bólstraður aftur
með leðri. Ég hef gaman
af því að safna hlutum
sem tengjast stálhús-
gagnagerðinni. Húsgögn-
in hafa elst vel, þau eru
sterk, krómuð og láta varla á
sjá. Það er hins vegar alveg ljóst
að miklu af þeim hefur verið hent
þó margir hafi lagt sig fram við að
safna þessu,“ segir Arndís.
Afturhvarf til fortíðar
Hún segir að henni og öðrum sem
grúski í íslenskri hönnunarsögu ber-
ist oft beiðni um að greina gripi. Það
sé ekki alltaf hægt því íslensk hönn-
un sé svo oft lík danskri og jafn-
vel norskri. „Það er mikið af erlend-
um áhrifum í gangi og stundum erf-
itt að segja til um uppruna hluta og
oft vantar merkingar á smíðisgrip-
Íslensk hönnun bar keim af norrænni
Íslensk innanhússhönnun á sér ekki mjög langa sögu og var varla farið að hanna húsgögn að neinu marki hér á landi fyrr en eftir
seinna stríð. Húsgagnahönnuðir fyrri ára voru undir sterkum áhrifum af norrænni hönnun enda flestir menntaðir á Norðurlöndunum.
Uppáhaldshúsgagn
Arndísar er þessi
stálstóll en mikið var
framleitt af stálhús-
gögnum á fjórða og
fimmta áratugnum
hér á landi. Þau eru
notuð enn í dag og
finnast
víða.
ina. Einnig var mikið um að verk-
stæði fóru að framleiða eitthvað í
svipuðum dúr og það sem var í tísku
og því erfitt að greina hvort eitthvað
sé teiknað af hönnuði eða stæling af
framleiðslu sem var í gangi.“
Almennur áhugi á hönnun hefur
aukist hér á landi síðastliðin tíu til
fimmtán ár að sögn Arndísar. „Mér
finnst ánægjulegt að ungt fólk vilji
gjarnan nota þessi gömlu íslensku
húsgögn frá fjórða, fimmta, sjötta
og sjöunda áratugnum. Það er líka
gaman að sjá að framleiðsla í dag
tekur mið af þessari eldri fram-
leiðslu, húsgögnin eru aftur að verða
nettari og það er greinilegt afturhvarf
í hönnuninni,“ segir Arndís.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Gunnhildur Geira, geira@365.is, s. 512-5036 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR.
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR.
Þúsundir fermetra af flísum með
20%-70% afslætti
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET.
DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI.
ÚTSALA
og nú öll gólfefni án vörugjalda
Verðdæmi:
Tarkett viðarparket eik 3 stafa kr. 3990.- m2
Filtteppi kr. 598.- m2
Teppi og dúkar 25-70% afsláttur
Skipadreglar kr. 1485.- m2
Gegnheilir Tarkett vinyldúkar frá kr. 2675.- m2
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
C
-C
E
0
8
1
7
E
C
-C
C
C
C
1
7
E
C
-C
B
9
0
1
7
E
C
-C
A
5
4
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K