Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2015, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 30.01.2015, Qupperneq 34
KYNNING − AUGLÝSINGAllt fyrir heimilið FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 20156 Hann er frekar blandaður, gamall og nýr, lit-ríkur en líka einfaldur og stundum svolít-ið kitch,“ segir Selma Rut Þorsteinsdóttir, hönnunarstjóri á auglýsingastofunni PIPAR/TBVA, um stílinn heima hjá sér. „Ég elska fallega gamla hluti, ekki er verra ef þeir eru með sögu eða sál og svo er hönnunarhjartað alltaf veikt fyrir góðri hönn- un. Annars er maðurinn minn frekar minímalískur, á meðan ég er mikill safnari. Ég virðist óvart safna að mér vösum og alls kyns bleikum aukahlutum. Ég elska líka pínkulitla hluti; styttur, skrípla o.þ.h. og lauma þeim hér og þar um íbúðina.“ Áttu þér uppáhaldshönnuð eða uppáhaldstímabil í hönnunarsögunni? Ég uni mér ágætlega í sixtís-tímanum í bland við nútímann og slægi ekki hendinni á móti gömlu, jafnvel smá sjúskuðu Eggi úr leðri frá herra A. Jac- obsen. Hins vegar þykir mér líka voðlega vænt um nýjasta húsgagnið, sófaborð úr hnotu, sem mágur minn, Magni Kristjánsson, er að hanna og smíða undir nafninu Skegg. Ég hef mikla trú á honum í húsgagnasmíðinni í framtíðinni.“ Selma býr í bjartri íbúð og segist strax hafa fallið fyrir frönsku gluggunum. Stóri stofuglugginn setur mikinn svip á íbúðina. „Það er alltaf jafn gaman að horfa út um stóra gluggann í stofunni og ekki verra að það er hægt að setjast í gluggakistuna. Það er líka lúmskt kósý uppi hjá sonum mínum í risinu, sérstaklega í rigningunni,“ segir Selma. Hvað gerir heimili að heimili í þínum huga? „Fyrir utan það að allir þurfa að geta búið þar og notið sín þá eru það litlu hlutirnir sem hafa merkingu fyrir íbúana. Hekluðu dúkarnir henn- ar mömmu, myndir barnanna, heimasmíðuðu hlutirnir og í raun samsafn stíla. Ég held að það sé varasamt að kaupa sér heilt innbú á of stutt- um tíma, það verður hugsanlega ekki nógu pers- ónulegur stíll. Það hefur a.m.k. hentað mér best að bæta í hægt og rólega og frekar skipta út öðru við og við. Fara með poka í Sorpu, koma svo við í Góða hirðinum á leiðinni heim og bæta í safnið.“ Kitch með sögu og sál Selma Rut Þorsteinsdóttir, hönnunarstjóri hjá PIPAR, býr í bjartri íbúð ásamt fjölskyldunni. Hún er safnari og fellur fyrir hlutum með sál og litlum styttum sem hún laumar um íbúðina. Hún segir litla hluti með merkingu fyrir íbúana sé það sem geri hús að heimili. Stóri franski stofuglugg- inn setur mikinn svip á stofuna. Selma hefur raðað litlum smá- hlutum í einn gluggann. M Y N D /S TE FÁ N Teikningar og myndir prýða stigaganginn. „Tekkstólinn keypti ég á net- sölunni Normu á slikk og tekk- skápinn keypti ég á netsölunni Mublum og lét flytja með Landflutningum frá Akureyri og fannst afar fullorðinslegt.“ Sófaborðið er eftir Magna Kristjáns- son, mág Selmu, en hann hannar og smíðar undir heitinu Skegg. Björt og hlýleg borð- stofan skartar bleikum blómum og bleikum kertum en Selma safnar bleikum aukahlutum. Teikningarnar eftir krakkana hanga á vegg á leið upp í risið. Selma er safnari í sér og segist óvart hafa farið að safna vösum. Fjölskyldumyndirnar í svörtum römmum setja svip á stofuna. 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E C -6 6 5 8 1 7 E C -6 5 1 C 1 7 E C -6 3 E 0 1 7 E C -6 2 A 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.