Fréttablaðið - 30.01.2015, Page 38
KYNNING − AUGLÝSINGÚtfarir FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 20154
ÓLÍKIR GREFTRUNAR
SIÐIR
Þegar fólk hefur verið lagt til
hinstu hvílu hefur það verið lagt
í nokkrar mismunandi stellingar.
Minjar um að fólk hafi verið lagt
með hendur í kross ofan á brjósti
ná til fornra menningarsamfélaga
svo sem Kaldea þar sem „X“
táknaði skýjaguð þeirra. Einnig
voru egypskir konungar og guðir
sýndir með krosslagða arma, til
dæmis guðinn Ósíris.
Fólk er lagt með arma niður
með síðum eða með krosslagðar
hendur. Yfirleitt er fólk lagt á
bakið og í einhverjum tilfellum á
grúfu en í sumum samfélögum
er það talið merki um vanvirð-
ingu. Aðrir siðir segja að leggja
eigi fólk með fæturna dregna
upp að brjósti. Stríðsmenn í
sumum fornum samfélögum
voru grafnir í uppréttri stöðu.
Í gegnum tíðina hafa grafir krist-
inna manna snúið í austur-vestur
og höfuðið látið liggja við vestari
enda grafarinnar. Í íslam er fólk
látið snúa höfðinu til hægri í átt
til Mekka.
Duftker geymd í fallegum og persónulegum hillum
Hillurnar eru gjarnan skreyttar fallegum blómum.
Víða um heim má finna svokölluð Columb-
arium, sem eru byggingar með hillum eða
jafnvel útihillum, þar sem hægt er að geyma
duftker og ganga að þeim allan ársins hring.
Slíkar byggingar eru ekki til hér á landi en
fyrir nokkrum árum kom fram sú hugmynd
að reisa eina slíka í duftreitnum Sóllandi
við Fossvogskirkju í Reykjavík. Þær má hins
vegar finna víða í Evrópu og Bandaríkjun-
um þótt byggingar þeirra séu jafnt og þétt á
undanhaldi.
Hver hilla hýsir þá eitt duftker sem er
geymt þar í mislangan tíma, allt frá fimm
árum til tuttugu ára. Hillurnar eru tekn-
ar á leigu af aðstandendum og þær gjarn-
an skreyttar með myndum af þeim látna,
blómum og jafnvel öðrum persónuleg-
um munum. Þegar leigutíminn er liðinn er
öskunni jafnan dreift yfir þar til gert svæði
innan kirkjugarðsins. Byggingarnar eru
stundum hluti af grafhýsum en geta líka
staðið einar og sér. Fyrr á öldum voru marg-
ar þeirra að öllu leyti neðanjarðar eða að
minnsta kosti stór hluti þeirra. Meðal frægra
Columbarium-bygginga má nefna Columb-
arium of Pomponius Hylas í Róm á Ítalíu,
Père Lachaise Cemeteryin í Paris og Golders
Green Crematorium sem er í London.
ELSTI SÁLMUR ÍSLANDS
Heyr himna smiður er einn ástsæl-
asti útfararsálmur Íslendinga.
Hann er jafnframt elsti varðveitti
sálmur Norðurlanda, en sálminn
orti Kolbeinn Tumason, goðorðs-
maður og skagfirskur höfðingi,
árið 1208. Talið er að Kolbeinn hafi
ort sálminn suttu áður en hann
féll í Víðinesbardaga þar sem
Kolbeinn fór ásamt liði að Guð-
mundi Arasyni, biskupi á Hólum.
Sálmurinn er sunginn við lag
Sigvalda Kaldalóns.
Heyr, himna smiður,
hvers skáldið biður,
komi mjúk til mín
miskunnin þín.
Því heit eg á þig,
þú hefur skaptan mig,
ég er þrællinn þinn,
þú ert Drottinn minn.
Guð, heit eg á þig,
að græðir mig,
minnst, mildingur, mín,
mest þurfum þín.
Ryð þú, röðla gramur,
ríklyndur og framur,
hölds hverri sorg
úr hjartaborg.
Gæt, mildingur, mín,
mest þurfum þín
helzt hverja stund
á hölda grund.
Set, meyjar mögur,
máls efni fögur,
öll er hjálp af þér,
í hjarta mér.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Snjallara
heyrnartæki
Beltone First™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-6
C
0
8
1
7
E
D
-6
A
C
C
1
7
E
D
-6
9
9
0
1
7
E
D
-6
8
5
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K