Fréttablaðið - 30.01.2015, Page 39

Fréttablaðið - 30.01.2015, Page 39
LÍFIÐ 30. JANÚAR 2015 • 7 MYNDAALBÚMIÐ Hlalla er fjögurra barna móðir þeirra Þórdísar Emilíu, Eggerts, Evu og Björneyjar Önnu. Hér sjáum við Hlöllu við Eiffelturninn í París og á strönd á Ítalíu. Hlalla hafði heillast af ljósmynd- un á sínum tíma og hefur numið hana. Því hefði hún getað farið lengra eftir þeirri braut en það var myndlistin og málverkið sem kall- aði í hana og togaði hana til sín. Þó málar hún eftir ljósmyndum svo enn er einhver tenging þarna á milli. Ég tek eftir því að mynd- irnar eru af börnum en ekki hvít- voðungum. En það er tímabil sem margar mæður verða svo heill- aðar af börnum sínum. Þegar við ræðum þetta nánar þá segir Hlalla að hún máli frekar aðeins eldri börn sem eru orðin ögn sjálfstæð, með sinn eigin persónuleika sem skín sterkar í gegn. Hún tekur að staðaldri ekki við pöntunum frá öðru fólki um að mála portrett af ókunnugum börnum. Hlalla segir það vera vegna þess að hún vilji stjórna og láti illa að stjórn. Litir, fatnaður, aðstæður og áferð; það sé hennar að ráða því hvernig myndin birtist öðrum. Það sé svo áhorfand- ans að túlka og lesa í myndirnar en þeim fylgir enginn texti. Hver og ein mynd fær sitt eigið líf í augum þess sem hennar nýtur. Þannig er hún sögumaður sem segir mynd- rænar sögur sem áhorfandinn þarf að skrifa sjálfur. Hljóðbækur eru gersemi Á meðan hún vinnur hlustar hún gjarnan á hljóðbækur. Hún hefur gaman af sögum og þegar tím- inn til að lesa er knappur þá tvinn- ar hún saman vinnu og afþreyingu og hlustar á hljóðbækur á meðan hún málar. Henni finnst hún halda enn betri einbeitningu þegar hún hlustar á sögurnar og það sé kjörin stund að nýta tímann. Ekki drepa tímann heldur nýta hann. Lista- konan er nýtin og það skilar sér í heimilisrekstri auk tíma til að sinna listinni. Hlöllu þykja hljóð- bækur vera vannýtt gersemi sem ætti að vera aðgengileg sem flest- um. Sterkar kvenhetjur eru oft í forgrunni sagnanna og ræðum við dreymnar um Karítas hennar Kristínar Marju Baldursdóttur og Ljósu eftir Kristínu Steinsdóttur. Sterkar og litríkar konur sem eru fylgnar sér og því ef til vill um- deildar og misskildar af samferða- mönnum. Hlalla finnur að fólk- ið hennar skilur tengingu henn- ar við listina og sýnir því virðingu og umburðarlyndi. Hún syndir því ekki jafn mikið á móti straumnum og söguhetjur bókanna þótt skort- ur á hefðbundinni afþreyingu á heimilinu stingi suma sem votta börnum hennar samúð sína. Tilvera eftir dauðann Við ræðum málefni sem eru fyrir mörgum tabú, allt frá fjármálum til ástamála, afbrýðisemi, eignar- halds, og lífs eftir dauðann. Við komumst að því að viðhorf okkar eru mjög svipuð á mörgum málefn- um og þykir ekkert tiltökumál að tala um að það sé huggun í harmi að vita að eitthvað tekur við ást- kærum fjölskyldumeðlimum að loknum dögum þeirra á jörðinni. Það er ágætt að láta staðar numið hér og þakka Hlöllu fyrir höfðing- legar móttökur og innihaldsríkt spjall. Hér er á ferðinni einn af okkar færustu listamönnum sem vert er að fylgjast grannt með í framtíðinni. Þetta er hark en ég á alltaf nóg fyrir mig og fjölskylduna. Það eru forréttindi að geta unnið við ástríðuna sína. Maður ber sig eftir björginni og fer að nýta hluti á annan hátt, maður sér mikilvægi hlutanna allt öðruvísi. VIRKAR fyrir mig Snjólaug Ólafsdóttir *Ritrýndar rannsóknir. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Nettó. „Ég byrjaði að nota þegar ég var í krefjandi doktorsnámi. Ég fann strax að orkan jókst og varð síðdegis hvarf og þar með jukust afköstin og úthaldið. Þrátt fyrir aukna orku kom það hvorki því haldið áfram að taka Lifestream .“ Álag og streita 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 E D -B 6 1 8 1 7 E D -B 4 D C 1 7 E D -B 3 A 0 1 7 E D -B 2 6 4 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.