Fréttablaðið - 30.01.2015, Page 40
8 • LÍFIÐ 30. JANÚAR 2015
Sykurneysla okkar Íslendinga
hefur náð nýjum hæðum síðustu
ár og erum við nú að nálgast topp
heimslistans með ekki ómerkari
löndum en Bandaríkjunum.
Meðalsykurneysla hvers Íslend-
ings nemur yfir 50 kílóum á ári –
um einu kílói á viku og til að setja
þetta í samhengi eru þetta 200 te-
skeiðar af sykri á viku sem við
erum að neyta. Neyslan er auð-
vitað dreifð, eldra fólk borðar
minna af sykri og yngra fólk borð-
ar meira. Það sem er sláandi er þó
magnið af sykri sem yngsta kyn-
slóðin neytir en samkvæmt upplýs-
ingum frá Neytendasamtökunum
borðar leikskólabarn að meðaltali
54 grömm af sykri á dag. Það gera
um 19 kíló af sykri á ári sem er
meðalþyngd fjögurra ára drengja.
Svona mikil sykurneysla er meira
en lifrin ræður við. Þegar það ger-
ist breytir lifrin sykrinum í fitu.
Algengustu afleiðingar offitu
eru áunnin sykursýki, hár blóð-
þrýstingur auk hjarta- og æðasjúk-
dóma.
Í heimildarmyndinni Fed Up
kemur fram að árið 1980 voru
engin þekkt tilfelli áunninnar
sykur sýki meðal barna og ung-
linga í Bandaríkjunum. Árið 2010
voru tilfellin 57.638. Samkvæmt
rannsóknum sem birtar voru í
Læknablaðinu 2009 hefur áunn-
in sykursýki tvöfaldast hjá íslensk-
um körlum og aukist um 50% hjá
konum frá 1967-2007. Í dag eru um
fimm þúsund manns með sykur-
sýki á Íslandi og 90% af þeim eru
með áunna sykursýki.
Síðan er það kostnaðurinn, en
samkvæmt rannsóknum sem voru
unnar við Háskóla Íslands og Há-
skólann á Bifröst nemur kostnað-
ur íslensks samfélags vegna of-
fitu 5-10 milljörðum króna á ári. Ef
Íslendingar færu í þjóðarátak og
minnkuðu sykurneysluna og þar
með ofþyngd sína þýddi það hrein-
an krónusparnað upp á hundruð
milljóna.
Hvað getum við gert?
Mataræði er stærsti einstaki
áhættuþáttur í heilsu Íslendinga.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir
nú með að enn verði skorið á dag-
lega sykurneyslu og það um helm-
ing. Að minnka neysluviðmið um
helming segir ansi mikið um al-
varleika málsins. Stofnunin hefur
nú einnig farið að telja með sykur
í safa, þykkni og síróp sem hingað
til hefur ekki verið gert, en mjög
hefur verið hvatt til þess síðustu
ár því þessar vörur eru ríkar af
frúkt ósasykri.
Mín skoðun er sú að við verðum
sem þjóð að viðurkenna þetta risa-
vaxna vandamál, við verðum að
hefja forvarnir strax. Börn og ung-
lingar borða hvað mest af sykri og
liggur því beint við að byrja þar.
„Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin mælir nú
með að enn verði
skorið á daglega
sykurneyslu og það
um helming.
Gunnar Már Kamban
einkaþjálfari og bókahöfundur
Það þarf ekki að eyða miklum fjármunum í hreinsi-
vörur fyrir heimilið heldur er hægt að nota margt
sem leynist uppi í skáp. Það er bæði hagkvæmt,
heilsusamlegt og umhverfisvænt. Prófaðu þessi ráð
við næstu þrif og ef þig langar að bæta við smá ilmi
þá getur þú sett nokkra dropa af blómadropum, ilm-
kjarnaolíu eða sítrónusafa útí löginn.
Edik
Edik er kjörið til notkunar við
þrif í baðherberginu, á gler-
hurðir, flísar og í eldhúsinu því
það leysir upp fitu og skán.
Gott er að blanda um þriðjung
ediks á móti vatninu. Ef óhrein-
indin eru mikil má nota óþynnt
edik. Einnig er mælt með að
setja edikslausn í gegnum kaffi-
vél til að hreinsa hana. Gott er
að láta vélina hella tvisvar upp
á með vatni áður hún er svo
notuð. Ekki hafa áhyggjur af
lyktinni sem fylgir ediki, hún er
fljót að hverfa.
Matarsódi
Matarsódi eyðir lykt en einnig
óhreinindum. Þú getur sáldrað
matarsóda yfir bletti og nudd-
að yfir með blautri
tusku og svo
skolað og þurrk-
að með þurrum
klút. Hægt er
að nota
matar-
sóda til
að þrífa
bakar-
ofninn
og ná
kaffi-
blettum úr kaffikönnu eða boll-
um. Ef bletturinn er erfiður þá
getur verið gott að blanda
grófu matarsalti saman við
skrúbbinn. Ef þú ert með teppi
sem er farið að lykta þá getur
verið gott að strá matarsóda
yfir teppið og ryksuga svo.
Sítrónusafi
Sítrónusafi getur bæði drep-
ið bakteríur og fært góða lykt
við þrifin. Það má bæta nokkr-
um dropum af sítrónusafa út í
hvaða náttúrulega hreinsilög
sem er til að auka virkni hans
og bæta ilminn.
Það má svo að sjálfsögðu
blanda ediki, matarsóda og
sítrónusafa
saman í lög
og geyma
í spreybrúsa
og þá ertu
komin með
allsherjar-
hreinsilög
sem dugar
á flestalla bletti á
heimilinu.
siggadogg@365.is
ÞJÓÐARÁTAK GEGN SYKURNEYSLU
Íslendingar eru að verða ein af feitari þjóðum heims en hvernig í ósköpunum komum við okkur í þessa stöðu?
Það er hægt
að gera
matvör-
ur heilsu-
samlegri og
draga úr
magni syk-
urs í þeim.
Auka verður fræðslu um skað-
semi sykurs og hvar hann er að
finna. Þetta væri til dæmis hægt
að gera með því að birta sykurinni-
hald matvara svo auðveldara sé að
sneiða fram hjá sykruðum vörum
og velja aðrar sykurminni í stað-
inn. Sykur er í einhverju formi í
yfir 50% allra matvara svo verk-
ið er ærið en ég trúi því að ef farið
verður í samstillt átak til þess að
minnka sykurneyslu þá er það
hægt. Sjáið bara hvernig komið er
fyrir sígarettunum.
Við berum ábyrgð á okkar eigin
heilsu og erum fyrirmyndir barna
okkar. Það sem við setjum ofan
í okkur hefur gríðarleg áhrif á
heilsu okkar, sennilega mun meira
en þig grunar.
NÁTTÚRULEGAR
HREINSIVÖRUR
FYRIR HEIMILIÐ
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-C
9
D
8
1
7
E
D
-C
8
9
C
1
7
E
D
-C
7
6
0
1
7
E
D
-C
6
2
4
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K