Fréttablaðið - 30.01.2015, Síða 56
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 28
BAKÞANKAR
Kolbeins Tuma
Daðasonar
Sex listamenn taka þátt í samsýn-
ingunni #KOMASVO sem verður
opnuð í Listasafni ASÍ á laugar-
dag. Á sýningunni er samband
myndlistar, íþrótta og markaðar-
ins skoðað.
„Staða listamannsins úti á mark-
aðinum gagnvart efniviðnum núna
er allt önnur en hún var í gamla
daga. Það er ekki verið að vinna
skúlptúra úr steini eða blanda
málningu sjálfur. Núna er verið
að nota mikið af tækjum og tólum
sem tengjast nútímaheiminum,“
segir Íris Stefanía Skúladóttir,
framkvæmdastjóri sýningarinnar,
og bætir við: „Það eru vörumerki á
þessum hlutum, þannig að mynd-
listarmaðurinn er alltaf hluti af
markaðinum en reynir oft að fjar-
lægja sig frá honum. Það sem þeir
eru að gera í þessari sýningu er
að taka markaðinn fram og sýna
hann.“
Íris segir íþróttir og myndlist
í raun eiga vel saman þótt grein-
arnar séu oft á tíðum álitnar
ótengdar. „Listamennirnir hafa
tileinkað sér mjög íþróttamanns-
leg vinnubrögð þegar þeir nálgast
sýninguna. Það smitast inn í sýn-
inguna bæði inn í vinnuferli og í
afraksturinn.“
Liðsmennirnir hafa einnig tekið
saman bylgjur álíkar þeim sem
stuðningsmenn íþróttaliða gera
oft. „Við höfum tileinkað okkur
ákveðinn talsmáta eins og: Koma
svo, strákar! Þetta verður algjör
negla!“ segir Íris.
Hópurinn hefur einnig stað-
ið fyrir ljósmyndasamkeppni á
Facebook og er hún hluti af sýn-
ingunni. Sú mynd sem fær flest
„like“ vinnur, verður prentuð út
og gefin Listasafni ASÍ á Safna-
nótt þann 6. febrúar.
Unnið hefur verið með fyrir-
tækjum á borð við Becks, Litróf
og Kaffitár. „Það er oft verið að
fela styrktaraðila í listum en ekki
í íþróttum og við erum að reyna að
tala bara mjög opinskátt um það
hverjir koma að og hvernig,“ segir
Íris, en einnig standa þau fyrir
dósasöfnun til þess að styrkja
sýninguna og eru gestir hvattir til
þess að mæta með tómar dósir og
flöskur á opnunina.
Listamennirnir sem taka þátt í
sýningunni eru Ásgeir Skúlason,
Leifur Ýmir Eyjólfsson, Nikulás
Stefán Nikulásson, Sigurður Atli
Sigurðsson, Sindri Snær Leifsson
og Sæmundur Þór Helgason. Sýn-
ingin verður opnuð í Listasafni
ASÍ á laugardaginn klukkan þrjú.
gydaloa@frettabladid.is
Við höfum tileinkað
okkur ákveðinn talsmáta
eins og: Koma svo, strákar!
Þetta verður algjör negla.
Samband myndlistar,
íþrótta og markaðsins
Sýningin #KOMASVO hefst á laugardaginn, sex listamenn koma að sýningunni
auk framkvæmdastjóra. Gestir eru hvattir til þess að koma með tómar dósir.
#KOMASVO
Klósettpappír-
inn er hluti af
einu verki sýn-
ingarinnar en
einnig verður
hægt að kaupa
klósettpappír
til styrktar
sýningunni á
staðnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
m.a. BESTA MYND ÁRSINS
Besti Leikari í aðalhlutverki - Bradley Cooper
M.A. BESTA MYNDIN – BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI – BESTI LEIKSTJÓRI
“AN INSTANT CLASSIC”“BENEDICT CUMBERBATCH IS OUTSTANDING”
“THE BEST BRITISH FILM OF THE YEAR”
“EXCEPTIONAL”
“FASCINATING
& THRILLING”
TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
INSPIRING
BENEDICT
CUMBERBATCH
KEIRA
KNIGHTLEY
T H E I M I TAT I O N G A M E
B A S E D O N T H E I N C R E D I B L E T R U E S TO R Y
O F A L A N T U R I N G
TIME
m.a. Besta myndin - Besti leikari í aðalhlutverki
Besta leikkona í aukahlutverki - Besti leikstjóri
Á sunnudaginn munu Bandaríkjamenn borða og borða og svo borða aðeins
meira. Meira en á jólunum, meira en á
gamlárskvöld og meira en á þjóðhátíðar-
daginn sjálfan, 4. júlí. Raunar eru margir
vestanhafs sem líta á fyrsta sunnudag í
febrúar sem hinn eina sanna þjóðhátíð-
ardag. Dömur mínar og herrar, það er
komið að Superbowl Sunday.
SEM FYRRVERANDI tengdasonur
Bandaríkjanna bíð ég spenntur eftir
sunnudeginum og ekki spillir fyrir að
strákarnir mínir í Seattle Seahawks, sem
eru ríkjandi meistarar, verða í eldlín-
unni í Phoenix. Seahawks komst ein-
mitt í úrslit Superbowl í fyrsta sinn
árið 2006, fyrsta árið sem ég bjó
í Seattle, og var magnað að upp-
lifa þá stemningu sem myndaðist í
borginni vikurnar á undan þegar
liðið náði hverjum áfanganum á
fætur öðrum.
ÓLÍKT flestum öðrum íþróttavið-
burðum í sjónvarpi mæta allir í
partí óháð íþróttaáhuga. Fjórir
tímar af fótbolta, kræsingum,
félagsskap og auglýsingum. Auglýsingar
brjóta nefnilega upp amerískar íþróttir,
og reyndar annað sjónvarpsefni í tíma og
ótíma, sem skemmtir fæstum. Nema í til-
felli Superbowl. Barist er um auglýsinga-
pláss og fyrir vikið leggja fyrirtæki mikið á
sig að gera sem flottastar auglýsingar sem
yfirleitt eru um leið þrælskemmtilegar.
SJÁLFUR mun ég eðlilega klæða mig í Sea-
hawks-treyjuna, henda í kjúklingavængi
með alls konar sósum, sötra úrvalsbjór og
troða í mig Skittles til heiðurs Marshawn
Lynch, einni af hetjum Seahawks í skraut-
legri kantinum. Sá svaraði öllum spurn-
ingum á opnum fundi með blaðamönnum
í vikunni á sama veg: „Ég er bara hérna
svo ég verði ekki sektaður.“ NFL-deildin
krefst þess að leikmenn hitti blaðamenn
í aðdraganda leiksins. Það eru ekki síst
hetjusögurnar sem gera amerískar íþróttir
svo skemmtilegar. Mennirnir sem aldrei
þóttu sérstaklega líklegir en ná svo hæstu
hæðum. Það verður tilfellið hvort sem Tim
Brady eða Russell Wilson, sem báðir komu
bakdyramegin inn í leiðtogahlutverk sín
á sínum tíma, leiða sveit sína til sigurs á
sunnudaginn.
Engin Bermúdaskál
SVAMPUR SVEINSSON 2D 3:50
SVAMPUR SVEINSSON 3D 3:50
MORTDECAI 8, 10:15
PADDINGTON ISL TAL 3:50, 6
PADDINGTON ENS TAL 6
BLACKHAT 8
TAKEN 3 10:35
HOBBIT 3 3D (48R) 6, 9
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarTilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
Miðasala og nánari upplýsingar
FJÖLSKYLDUPAKKINN Barnafjölskyldur fá
alla miða á barnaverði Miðasala á: MINNST 4 MIÐAR, A.M.K. 2 BÖRN Á ALDRINUM 2-12 ÁRA
5% 5%
MR. TURNER KL. 5.45 - 9
WEDDING RINGER KL. 8
PADDINGTON - ÍSL TAL KL. 5.30
TAKEN 3 KL. 10.20
ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 6 - 8 ÍSL . TEXTI
BÉLIER FJÖLSKYLDAN KL. 8 - 10 ENSKUR TEXTI
LYKTIN AF OKKUR KL. 10 ENSKUR TEXTI
LULU NAKIN KL 6 ENSKUR TEXTI
SVAMPUR SVEINSSON 2D KL3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
SVAMPUR SVEINSSON 3D KL 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
MORTDECAI KL. 8 - 11
MORTDECAI LÚXUS KL. 10 .25
THE WEDDING RINGER KL. 8 – 10.25
BLACKHAT KL. 10.25
TAKEN 3 KL. 8 - 10.25
TAKEN 3 LÚXUS KL. 8
PADDINGTON - ÍSL TAL KL. 3.30 - 5.45
THE HOBBIT 3 3D KL. 8
THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL 5
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.45
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.30
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-A
C
3
8
1
7
E
D
-A
A
F
C
1
7
E
D
-A
9
C
0
1
7
E
D
-A
8
8
4
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K