Fréttablaðið - 30.01.2015, Qupperneq 62
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 34
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég hef safnað öllu síðan Rocky
Horror var sýnt árið 1991 og hef
ég ekki hent neinu síðan þá. Ég
einfaldlega afhendi þeim bara allt
góssið og nú sitja þeir með sveittan
skallann að fara í gegnum þetta,“
segir Páll Óskar Hjálmtýsson tón-
listarmaður.
Laugardaginn 14. mars verður
opnuð í Rokksafni Íslands í Hljóma-
höllinni í Reykjanesbæ sýning-
in „Páll Óskar – Einkasafn popp-
stjörnu“, en Palli fagnar 45 ára
afmæli sínu tveimur dögum síðar.
„Ég ætlaði fyrst að geyma þetta
heima hjá mér en þegar þau hjá
Rokksafninu spurðu hvort ég ætti
ekki eitthvað dót, þá gaf ég þeim
þetta allt. Loksins fær þetta að njóta
sín í fallegu rými,“ segir Palli.
Sýningin verður nokkurs konar
yfirlitssýning um líf Palla. Henni
verður skipt niður eftir tímabilum
og þar verða til sýnis flestir bún-
ingar sem hann hefur klæðst á
ferlinum, gömul tímarit og viðtöl,
teikningar og listaverk, skart, aug-
lýsingar, vinnudagbækur, dagatöl
og forláta Nokia 6110 síminn sem
Palli átti í fjórtán ár. „Hvert tímabil
fær sinn stall og á hverjum þeirra
verða munir sem tengjast þeim
tíma,“ segir hann.
Á sýningunni verður einnig hægt
að tylla sér niður og hlusta á gaml-
ar og sjaldgæfar upptökur, bæði af
tónlist hans og útvarpsþáttunum
sem Palli stýrði eitt sinn, „Sætt og
sóðalegt“ og „Dr. Love“. „Þarna
geta gestir líka fiktað í fullt af
tökkum og hljóðblandað lögin mín
upp á nýtt. Það verður líka hægt
að fara í lítið hljóðver þar sem þú
velur þitt uppáhaldslag með mér,
velur tóntegund, syngur það og
færð upptökuna senda í tölvupósti,
með myndbandi. Vonandi hefur fólk
gaman af því og lærir jafnframt að
einfalt popplag er samsett úr ótrú-
lega mörgum flóknum hlutum. Við
ætlum að gera þessa sýningu eins
skemmtilega og fjölbreytta og frek-
ast er unnt,“ segir Palli.
Aðspurður hvort það sé einhver
einn hlutur á sýningunni sem hann
haldi sérstaklega upp á, segist hann
eiga erfitt með að gera upp á milli.
„Rocky Horror-búningurinn skipt-
ir mig þó gríðarlega miklu máli,
því það var þá sem lætin byrjuðu.“
Laugardagskvöldið 14. mars verður
alvöru Pallaball í Stapanum í Kefla-
vík með tilheyrandi stuði langt
fram á nótt.
adda@frettabladid.is
Opinberar einkasafn
sitt í Hljómahöllinni
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson opnar sýningu í Rokksafninu í
Hljómahöllinni í Reykjanesbæ þann 14. mars sem spannar allt hans líf og feril.
STANS-
LAUST
STUÐ Palli
er í óðaönn
að setja upp
sýninguna
sem verður
opnuð þann
14. mars.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GVA
Þarna geta gestir líka
fiktað í fullt af tökkum og
hljóðblandað lögin mín
uppá nýtt. Það verður líka
hægt að fara í lítið hljóð-
ver þar sem þú velur þitt
uppáhaldslag með mér,
velur tóntegund, syngur
það og færð upptökuna
senda í tölvupósti, með
myndbandi.
„Það er mikill heiður að fá svona
snilling til landsins,“ segir dansar-
inn Brynja Pétursdóttir sem stend-
ur fyrir heimsókn finnska dansar-
ans Anneli Ninja hingað til lands.
Anneli hefur getið sér gott orð
sem Vogue-dansari en dansstíllinn
Vogue hefur aldrei verið kenndur
á Íslandi fyrr en núna.
Hún er í stærsta alþjóðlega
Vogue-hópi heims, The House of
Ninja. „Þessi danshópur skartar
Vogue-dönsurum sem eru á meðal
þeirra bestu í heimi,“ segir Brynja.
Dansstíllinn hefur þrjár greinar,
Vogue Old Way, Vogue New Way og
Vogue Fem sem hafa allar ratað í
tónlistarmyndbönd hjá Madonnu,
Beyoncé, Lady Gaga og fleirum.
Stíllinn hefur verið að þróast í
núverandi form síðan á 8. og 9. ára-
tugnum á klúbbum og götum New
York-borgar.
„Það var ekki fyrr en upp úr
aldamótum að dansarar um allan
heim fóru að kveikja á þessum
explósíva dansstíl sem var búinn
að vera að þróast í afskekktum
klúbbum nokkurn veginn utan
sviðsljóssins. Madonna varpaði
ljósi á stílinn með lagi sínu Vogue
og í því birtist einn máttarstólpi
stílsins, José Extravaganza, ásamt
lærlingi sínum,“ segir Brynja.
Anneli verður með námskeið í
dag og á morgun. Meira má lesa
um námskeiðin á brynjapeturs.is.
- glp
Vogue-dans kenndur í fyrsta sinn á Íslandi
Finnski dansarinn Anneli Ninja ætlar að miðla þekkingu sinni á tveimur námskeiðum.
HÉR Á LANDI Finnski dansarinn Anneli
Ninja hefur unnið fjölda alþjóðlegra
keppna.
„Mesta stuðlag sem ég veit um er
Lúftgítar með Sykurmolunum. Það
er eina lagið sem myndi mögulega
geta dregið mig út á dansgólfið.“
Guðríður Haraldsdóttir, aðstoðarritstjóri
Vikunnar
„Þetta er fyrsta opinbera plötuútgáf-
an síðan árið 2008, ég gaf reyndar út
eitt lag fyrir tveimur árum en ekki
plötu,“ segir Barði Jóhannsson, sem
er oftast kenndur við hljómsveitina
sína, Bang Gang.
Fyrsta smáskífulagið, Out of
Horizon, af væntanlegri plötu Bang
Gang kemur út á mánudaginn. Barði
segir að platan komi út í mars og þá
um allan heim á sama tíma. „Platan
verður jafn góð og hinar en allavega
ekki betri,“ segir Barði léttur í
lundu spurður út í nýju plötuna. „Ég
tel að besta platan mín hingað til sé
Best of Bang Gang platan.“
Hann nýtur liðsinnis nokkurra
góðra gesta á plötunni. „Ég samdi
eitt lag með Jófríði Ákadóttur úr
Samaris, Helen Marnie úr Ladytron
syngur eitt lag og svo vann ég eitt
lag með Bloodgroup. Svo er ég með
alls konar fólk með mér sem kemur
að plötunni,“ útskýrir Barði, sem er
farinn að huga að útgáfutónleikum
hér á landi.
Bang Gang hefur lítið komið fram
á undanförnum árum. „Við fórum
tvisvar til Kína á síðasta ári, það er
mikil eftirspurn þar og mér fannst
fínt að fara þangað og spila gömlu
plöturnar.“ - glp
Bang Gang vaknar af dvalanum
Barði Jóhannsson sendir frá sér fyrsta smáskífulagið af nýrri plötu eft ir helgi.
BARÐI JÓHANNSSON Forsprakki Bang
Gang sendir frá sér nýja plötu í mars.
M
YN
D
/X
I S
IN
SO
N
G
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
C
-9
2
C
8
1
7
E
C
-9
1
8
C
1
7
E
C
-9
0
5
0
1
7
E
C
-8
F
1
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K