Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Page 17

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Page 17
Búnaðarskýrslur 1954 15* Veðurfar árið 1954. Veturinn frá áramótum var veðurmildur og hagstæður. Meðalhiti í janúarmánuði var í Rvík 2,6° meiri en í meðallagi og 4,1° meiri á Akur- eyri, meðalhiti í febrúar var í Rvík 0,3° yfir meðallag og á Akureyri 1,6°, í marz í Rvík 1,1° og á Akureyri 1,3° og í apríl í Rvík 1,8° og á Akureyri 3,4°yfir meðallag. Víðast var snjólaust í byggðum um sumarmál og gróður að vakna. Sá gróður stöðv- aðist þó síðustu daga aprílmánaðar og 10 fyrstu daga maímánaðar vegna nætur- frosta og fremur þyrrkingslegs veðurs. En allan síðari hluta maímánaðar og fram að sólstöðum var sérstaklega hlýviðrasamt og hagstæð veður fyrir gróður. Um sólstöður brá til norðanáttar og talsverðra kulda, einkum á Norðurlandi, jafnvel svo að snjóaði í fjöll, en þá þegar var spretta svo vel á veg komin, að sláttur var víðast hafinn. Meðalhiti í maímánuði var í Rvík 1,2° meiri en í meðallagi, og á Akureyri 1,9°, en í júnímánuði var meðalhiti í Rvík 0,6° meiri en í meðallagi, en á Akureyri 0,7° minni en í meðallagi. Hinn 5. júlí 1954 brá skyndilega aftur til sunnanáttar. Fylgdi því mjög mikil úrkoma, einkum 6. júlí, skemmdir á heyjum, vatnavextir, og í Skagafirði stórkost- leg skriðuföll. Eftir þá stórrigningu brá til þurrviðris norðan lands, en þó eigi góðra þurrka, en sunnan lands var þriggja vikna óþurrkakafli. Síðustu dagana í júlí og fram til miðs ágústmánaðar voru ágætis þurrkar sunnan lands með hægri norðan- átt og bjartviðri, og var svo einnig um sunnanvert Vesturland. En á sama tíma voru dumbungar norðan lands og kalt í veðri. Dagana 15.—23. ágúst var hlý sunnan- átt, óþurrkar á sunnanverðu landinu, en þurrkar norðan lands og náðist þá hey, er safnazt höfðu fyrir fyrri hluta mánaðarins. Síðustu viku ágústmánaðar og allan septembermánuð var norðlæg kuldatíð um allt land, óþurrkasamt á norðanverðu landinu og örðug veðrátta til heyskapar, en sunnan lands náðust hey í hlöður jafnóðum og gras var fellt. Meðalhiti í júlímánuði var í Rvík 0,7° minni en í meðal- lagi, en á Akureyri 1,5° minni. í ágúst 0,4° meiri en í meðallagi í Rvík og 0,9° meiri á Akureyri, í september 1,7° minni en í meðallagi í Rvík, á Akureyri 2,7° minni. Um miðjan september kom mikill snjór í afrétt norðan lands og í efri afréttar- lönd sunnan lands, og sums staðar norðan lands, einkum í Þingeyjarsýslu, snjóaði í byggð og fóru liey undir fönn. Sunnan lands frusu kartöflur víða í görðum. 1 októbermánuði og fyrri hluta nóvembermánaðar hélzt enn kuldatíð, og voru allmiklir snjóar á Norðurlandi, einkum austan til, og fénaður þar allur á gjöf. Um miðjan nóvembermánuð brá til hlýinda, og komu þá góðir hagar fyrir beitarpening norðan lands, en liey, sem orðið höfðu undir snjó, náðust að mestu. í desember- mánuði voru veður umhleypingasöm, en sjaldan stórvond. Meðalhiti í október var í Rvík 0,7° minni en í meðallagi, en á Akureyri 0,4° minni, í nóvemher var meðal- liiti í Rvík 1,3° meiri en í meðallagi og á Akureyri 2,6°. í desember var meðal- hiti í Rvík 0,8° minni en í meðallagi, en á Akureyri 0,2° minni. Þegar litið er á árið í lieild, verður að telja veðráttu þess betri en í meðallagi. Meðalhiti ársins var í Rvík 5° og er það 0,5° yfir meðallag, en á Akureyri var meðal- liitinn 3,9° og er það 0,8° meira en í meðallagi. Úrkoma var 15% minni en í meðal- lagi í Rvík, en á Akureyri 4,8% meiri en í meðallagi, og er Iivorugt hægt að telja til skaða. Yeðurfar virtist yfirleitt hagstæðara sunnan lands en norðan, þó að slíkt verði ekki séð af meðaltali mælinganna. Verður það ekki auðveldlega mælt, hvernig veður koma við á hverjum tíma, en slíkt skiptir þó miklu fyrir þá, sem við veðrið eiga að búa. Veðrátta í Múlasýslum og Strandasýslu er oftast lík og norðan lands, en í Austur-Skaftafellssýslu og í mestum hluta Vesturlands er veðurfar oftast áþekkt og á Suðurlandi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.