Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Page 21

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Page 21
Búnaðarskýrslur 1954 19* Um töðufall á lia er þess að gæta, að fram til 1930 telur Hagstofan, að hestur- inn liafi verið misjafnlega talinn í héruðum, sums staðar aðeins 80 kg, annars staðar 100 kg. En 1930 og síðan hefur þetta verið fært til samræmis þannig, að alls staðar átti að telja í 100 kg hestum. Talan, sem er í svigum við árið 1930, á að sýna breyt- ingu þá, er varð á töðuframtalinu 1930. Ef háttur áranna á undan liefði verið á hafður, hefði það ár talizt 43,3 hesta töðufall á ha, í stað 37,9 samkvæmt þeirri aðferð, er þá var upp tekin. Ef hesturinn hefði verið eins talinn allan timann, 100 kg, hefði samkvæmt þessu meðaltöðufall á ha átt að vera: 1900 32,2 hestar, 1910 30,2 hestar, 1920 23,6 hestar, 1930 37,9 hestar, 1940 33,8 liestar og 1945 36,5 hestar. Mætti af því ráða, að aukning töðufalls á ha hefði verið allveru- leg, eða nál. 20%. En sagan er enn ekki öll sögð. Árin 1900 og 1910 voru tún óvenju- lega vel sprottin, að því er búnaðarskýrslur sýna. Töðufallið 1900 var 60 þús. hestum meira en meðaltal áranna 1896—1900 og 100 þús. hestum meira en meðal- tal áranna 1901—05. Töðufallið 1910 var 121 þús. hestum meira en meðaltal áranna 1906—10 og 73 þús. hestum meira en meðaltal áranna 1911—15. Hins vegar var töðufall árin 1940 og 1945 í meðallagi miðað við árin á undan og eftir, og 1930 aðeins fremur lítið yfir meðallag. í meðalári virðist töðufall á ha liafa verið 25 hestar (100 kg) fyrir 1930, en rúmlega 35 hestar 1930 og þar á eftir, og er það 40% aukning. Þessa aukningu töðufallsins á lia má að mestu þakka notkun tilbúna áburðarins. Ástæðan fyrir því, að Hagstofan hætti að birta tölur um túnstærðina eftir 1945, var aðallega sú, að líklegt þótti, að tölur um þetta væru orðnar meira eða minna skakkar. Kunnugt var, að talsvert margar jarðir höfðu lagzt í auðn í stríð- inu, er þá var nýlokið, og óvíst, hvernig tún þeirra jarða héldust í rækt nema rann- sakað væri á hverjum stað. Þá hafði og verið hætt að telja með nýrækt það, sem breytzt hafði í tún óbylt, en slík ræktun varð auðveldari við tilkomu tilbúna áburð- arins, hvervetna þar sem sléttlendi var að finna. Fleira mætti nefna, er leiddi til þess, að hætt var við að reikna út eða áætla túnstærðina. Árið 1955 gerði hagdeild Framkvæmdabanka íslands athugun á því, hvort fært væri að nota enn hina gömlu aðferð Hagstofunnar til að reikna út tún- stærðina. Kom það í ljós, þegar liin útreiknaða túnstærð var borin saman við töðufallið, að ekki mundi fjarri sanni að ákvarða túnstærðina á þennan hátt. Niðurstöður liagdeildar bankans um þetta efni komu fram í ritgerð, sem birt var samtímis í tímaritinu „Úr þjóðarbúskapnum" (1. árg. 2. h., marz 1956) og Árbók landbúnaðarins (1. h. 1956). Tölur hagdeildar Framkvæmdabankans, sem eru fyrir árin frá og með 1942, koma nokkurn veginn heim við tölur Hagstofunnar 1942—45, en þá var hætt að reikna þær út. Ef við túnstærðina 1945 samkvæmt útreikn- ingi Hagstofunnar er lögð árleg aukning túna á sama hátt og hagdeild Fram- kvæmdabankans reiknar frá 1942, fást eftirfarandi tölur: Túnstærð Töðufengur Túnstœrð Töðufengur í úrsbyrjun, ha á ha, hestar í ársfcyrjun, ha á ha, hestar 1946 39 274 38,1 1951 46 694 31,7 1947 40 436 38,6 1952 49 155 31,5 1948 41 640 37,3 1953 51 830 42,0 1949 43 202 34,9 1954 54 836 43,8 1950 44 498 38,1 1955 57 468 40,5 Votheysverkun fór vaxandi fram að árinu 1952, en árin 1952—54 stóð hún í stað, einkum vegna þess að þurrkar voru yfirleitt hagstæðir þau sumur. Hér fer á eftir yfirlit yfir votheysmagnið, umreiknað í þurrkaða töðu, og hundraðshlut þess I allri töðunni síðastliðin 10 ár:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.