Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Side 28
26*
Búnaðarskýrslur 1954
2. yfirlit. Tala nautgripa í árslok 1949—54, eftir landshlutum.
Number of cattle at the end of years 1949—54, by regions.
1949 1950 1951 1952 1953 1954 l‘l a 2 ii iO U £■!<£
Suðvesturland South- West 10 301 11 190 10 762 10 035 10 216 10 328 0,3
Vestfirðir Western Peninsula 2 611 2 717 2 549 2 425 2 570 2 693 3,1
Norðurland North 14 526 14 094 13 173 12 224 13 264 14 141 -H3,7
Austurland East 3 568 3 466 3 526 3 548 3 701 3 839 7,6
Suðurland South 12 035 13 035 13 832 14 724 15 478 16 327 35,7
Allt landið Iceland 43 041 44 505 43 842 42 956 45 229 47 328 10,0
um töðufeng 1953 fjölgaði nautgripum þegar á því ári nokkru mcira en fækkað
hafði bæði árin á undan, og enn hélt fjölgunin áfram 1954.
Þessi breyting á tölu nautgripa er talsvert mismunandi, eftir landshlutum og
sýslum, svo sem 2., 3. og 4. yfirlit bera með sér. Hefur nautgripuin fjölgað á
Suðurlandi á hverju ári, og er öll fjölgun nautgripa árin 1949—54 þar, og aðí 1-
lega í Árnes- og Rangárvallasýslum. Á sama tíma hefur nautgripum fækkað nokkuð
á Norðurlandi, en fjölgað lítillega í hinum landshlutunum.
Tala og skipting sauðfjár í árslok 1952—1954 hefur verið sem hér segir:
1952 1953 1954 Fjölgun, 1954, %
Ær .................................... 323 493 390 392 475 091 21,7
Hrútar .................................. 7 493 9 276 10 786 16,3
Sauðir................................... 1 611 1 485 1 794 20,8
Gemlingar ............................. 113 344 141 907 147 409 3,9
Sauðfé alls 445 941 543 060 635 080 16,9
Breytingin á tölu sauðfjárins hefur verið mjög mismunandi eftir sýslum og
landshlutum. Breytingin eftir sýslum sést í 3. og 4. yfirliti, og breytingin eftir
landshlutum í 5. yfirliti.
Fjárskipti þau, er fram fóru til útrýmingar mæðiveiki árin 1947—53, hafa
miklu ráðið um þessar breytingar á fjártölunum. Áður hefur í búnaðarskýrslum
Hagstofunnar verið gerð grein fyrir fjárskiptunum fram til ársloka 1951. Haustið
1952 átti niðurskurði vegna mæðiveiki að vera lokið. Það haust var fellt allt sauðfé
í Rangárvallasýslu austan Ytri-Rangár og í Mýrdal (í Dyrhóla- og Hvamms-
hreppum í Yestur-Skaftafellssýslu), alls 30 þús. bótaskylds fjár. Var á því svæði öllu
fjárlaust til hausts 1953. Haustið 1952 voru flutt lömb í Gullbr.- og Kjósarsýslu,
Árnessýslu og Rangárvallasýslu vestan Ytri-Rangár, þ. e. 10 340 frá Vestfjörðum
og um 17 000 úr öngulsstaðahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu og Kelduneshreppi.
Haustið 1953 voru flutt um 7 750 lömb úr Þingeyjarsýslu í Árnessýslu austan
Sogs og ölfusár, um 9 300 lömb frá Vestfjörðum í Rangárvallasýslu, 3 850 lömb
úr Skaftafellssýslu austan Mýrdalssands í Mýrdal og Rangárvallasýslu austan-
verða, og loks um 100 lömb af Vestfjörðum í Gullbr,- og Kjósarsýslu. Haustið
1954 voru enn flutt 9 000 lömb frá Vestfjörðum, þar af um 1 600 í GuÚbr.- og Kjós-