Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Side 32
30*
Búnaðarskýrslur 1954
taldar, en á aldrinum 4—15 vetra voru þær þá 12 051 og hafði fjölgað síðustu
árin, þótt öðrum hrossum fækkaði. Þó að talning á hryssum 1950 og 1954 sé ekki
fullkomlega sambærileg, virðist svo, að þeim haíi ekki fækkað þessi ár, þótt öllum
öðrum hrossum haíi fækkað. Þetta má rekja til þess, að lirossaræktin hefur á síð-
ustu árum færzt í það horf að ala upp hross til slátrunar. Öll notkun hrossa, hvort
sem er til burðar, dráttar eða reiðar, fer stöðugt þverrandi. Af þessu leiðir aftur,
að fækkun hrossanna er hlutfallslega einna minnst í þeim sýslum, þar sem hrossin
eru flest, hrossasýslunum. Þau árin, sem sauðfé hefur verið þar fátt, hefur lirossum
þar jafnvel fjölgað.
Svín hafa verið talin fram til búnaðarskýrslu 5 síðustu árin:
1950 719 1953 565
1951 441 1954 707
1952 456
Fækkun svínanna 1951 stafaði af pest, er kom upp í svínastofninum. Svínum
hefur fjölgað síðustu árin, enda hafa pestir lítið gert vart við sig.
Alifuglar liafa verið taldir fram síðustu 5 árin sem hér segir:
Hœnsui Endur Gœsir
1950 ..................... 96 919 251 419
1951 ..................... 96 270 142 298
1952 ..................... 86 947 277 284
1953 ..................... 78 170 243 254
1954 ..................... 80 376 265 276
Þessum tölum má ekki treysta, og er það álit þeirra manna, sem mest vita
um alifuglarækt hér á landi, að hænsni liafi verið um eða yfir 100 þús. 1954, en
skýrslur eru engar til um alifuglaræktina aðrar en búnaðarskýrslur. Talin er vera
töluverð framför í hænsnarækt hér á landi að því leyti, að hvcr liæna skili fleiri
eggjum en áður var, og skýrir það e. t. v. að einhverju leyti þá fækkun, er orðið
hefur á framtöldum alifuglum.
Refa- og minkarækt má telja úr sögunni hér á landi, a. m. k. um sinn.
Refir voru aðeins 18 taldir fram til búnaðarskýrslu 1954, minkar engir.
6. Búsafurðir 1954.
Livestock products 1954.
Töflur VIII A og B á bls. 36—39 sýna búsafurðir eftir sýslum árið 1954,
tafla VIII A búsafurðir í heild, en tafla VIII B búsafurðir bjá bændum sérstak-
lega. Skýrslum um liúsafurðir 1952 og 1953 safnaði Hagstofan ekki. Hins vegar
safnaði Framleiðsluráð landbúnaðarins skýrslum um búsafurðir þau ár, en fékk
þær ekki úr öllum lireppum.
Síðan Hagstofan tók að safna skýrslum um búsafurðir hefur framtalið mjólk-
urmagn verið sem hér segir:
Hcimanotað Selt Samtals
1946, 1000 1 29 939 30 669 60 608
1947, „ 29 580 34 129 63 709
1948, „ „ 27 491 35 593 63 084
1949, 27 654 38 627 66 281
1950, „ „ 27 208 42 453 69 661
1951, 29 060 41 721 70 781
1954, 1000 kg .... 24 864 56 078 80 942