Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 40
Fótbolti Kolbeinn Sigþórsson viðurkennir að síðasta ár hafi ekki verið hans besta á ferlinum. Meiðsli tóku sinn toll og það hefur tekið sinn tíma að aðlagast nýju félagi og nýrri deild eftir að hann fór frá Ajax í Hollandi til Nantes í Frakklandi. „Í raun og veru var þetta slæmt ár fyrir mig, persónulega. Þetta ár fór ekki eins og ég vonaðist til,“ segir Kolbeinn í samtali við Fréttablaðið. „Ég vona að þetta ár heppnist betur hjá mér. Ég er að verða betri af meiðslum sem ég hef verið að glíma við síðustu mánuði og vonandi fer þetta að smella hjá mér.“ Kolbeinn kom inn á sem vara- maður þegar Nantes bar sigurorð af St. Etienne um helgina og skoraði þá sigurmarkið. „Það var mikill létt- ir fyrir mig og gott að ná inn þessu marki. Ég reyni að sjá þetta fyrir mér sem nýtt upphaf á nýju ári.“ Skömmu fyrir jól steig þjálfari Nantes, Michel Der Zakarian, skyndilega fram í frönskum fjöl- miðlum með óvægna gagnrýni á Kolbein. Sagði hann of þungan og efaðist um viðhorf hans. „Það er ekki hægt að ná árangri þegar maður æfir ekki almennilega,“ sagði hann meðal annars. Kolbeinn sagði að sér hefði ekki sárnað við að lesa ummæli þjálfar- ans og að hann hefði fyrst og fremst viljað svara fyrir sig á vellinum – sem hann hefði vonandi byrjað að gera í leiknum um helgina. Stærstu mistökin Helsta ástæðan fyrir því hversu óreglulega hann gat æft á fyrstu mánuðunum sínum hjá Nantes voru hnémeiðsli en það hefur ekki komið fram í fjölmiðlum áður. „Þetta eru meiðsli sem hafa hrjáð mig síðan ég meiddist með Ajax í upphafi síðasta árs,“ útskýrir Kol- beinn. „Ég hvíldi í tvo mánuði út af þessum meiðslum og var búinn að ná mér góðum af þeim í sumar. Ég byrjaði svo skyndilega að finna aftur fyrir verkjum í byrjun septem ber.“ „Ég hef reynt að koma mér áfram á hörkunni og tekið verkjatöflur fyrir hvern einasta leik. En ég veit núna að ég hef verið að spila allt of lengi með þessi meiðsli. Þetta þýðir líka að ég hef ekki náð að æfa sem skyldi og eru það mín stærstu mis- tök að hafa haldið áfram í stað þess að meta stöðuna betur fyrr og láta laga þetta.“ Kolbeinn vill ekki útskýra meiðslin frekar í þessu viðtali en staðfestir að um hnémeiðsli sé að ræða og að þau hafi ekki verið alvarleg. „Sem betur fer. Ég fékk góða meðferð vegna meiðslanna fyrir jól og þurfti því að sleppa nokkrum leikjum. En ég hef verið að æfa á fullu síðustu tvær vikurnar og finn ekki lengur fyrir verkjum sem hafa verið frá því í september. Fyrir mér er þetta nýtt upphaf.“ Þarf ekki að sanna mig Kolbeinn hafði farið á fund Der Zakarian fyrir umrætt viðtal og greint honum frá stöðu mála varð- andi meiðsli sín. Þrátt fyrir það sem hann sagði svo í viðtalinu þá sagði hann við Kolbein að hann hefði skilning á stöðu hans. „Ég lét viðtalið ekki fara í taug- arnar á mér og kannski magnaðist þetta allt saman heldur mikið í fjöl- miðlum eins og stundum vill verða. En samskipti okkar í dag eru góð. Við erum búnir að ræða vel saman og ég veit að ég er að fara að koma sterkur til baka. Ég er fullviss um að ég geti nú farið að gefa allt mitt fyrir félagið og skora fleiri mörk, nú þegar ég er byrjaður að geta æft almennilega á ný. Ég horfi því fram á veginn,“ útskýrir Kolbeinn sem segist enn finna fyrir stuðningi félagsins. Kolbeinn telur enn fremur að hann þurfi ekki að sanna sig sér- staklega fyrir þjálfaranum. „Hann er fínn og ég hef ekkert slæmt um hann að segja. Ég held að hann sé sáttur við mig eins og staðan er í dag, þó svo að hann hefði sjálf- sagt kosið að ég væri búinn að æfa meira og skora fleiri mörk fyrir sig.“ Margt neikvætt skrifað Kolbeinn er aðeins 25 ára gamall og á frábæran feril að baki. Átján mörk Kolbeinn þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn eftir að hann hafði tryggt Nantes 2-1 sigur á St. Etienne í frönsku úrvalsdeildinni um helgina. Fréttablaðið/aFP Innst inni dvínar gleðin Kolbeinn Sigþórsson er feginn því að geta sagt skilið við erfitt ár 2015 þar sem meiðsli settu of stórt strik í reikninginn eftir félagaskipti hans til Nantes. Hann ræðir við Fréttablað- ið um mótlætið, markaleysið og gagnrýnina sem hann fékk frá eigin þjálfara. Vona að Lars haldi áfram með liðið Kolbeinn er eins og flestir Íslendingar spenntur fyrir EM í Frakklandi en þar mun hann að öllu óbreyttu leika stórt hlutverk í sóknarleik Íslands. Kolbeini líst vel á riðilinn sem Ísland fékk en þar munu strákarnir mæta Portú- gal, Ungverjalandi og Austurríki. „Við eigum möguleika á að gera góða hluti í þessum riðli. Hann er kannski ekki sá mest spennandi fyrir hinn hlutlausa áhugamann sem fylgist með mótinu en þetta er gott tækifæri fyrir okkur. Við þurfum þó að spila vel í hverjum leik til að ná árangri og við ættum að gera það ef okkur tekst að spila eins og við gerðum í undan- keppninni.“ Samningur Lars Lagerbäck við KSÍ rennur út eftir EM í sumar og er þá áætlað að Heimir Hall- grímsson taki einn við liðinu. En viðræður hafa átt sér stað á milli Lagerbäck og KSÍ um að hann taki eina undankeppni í viðbót. „Ég vona að hann haldi áfram. Það hefur gengið mjög vel með þá tvo og samstarf hans og Heimis er frábært. Þeir ná mjög vel saman. Ef Lars hefur áhuga á að halda áfram þá væru það góð tíðindi en ef hann ákveður að hætta þá er ég handviss um að Heimir sé klár í að taka við lands- liðinu.“ Ég hef reynt að koma mér áfram á hörkunni og tekið verkja- töflur fyrir hvern einasta leik. En ég veit núna að ég hef verið að spila allt of lengi með þessi meiðsli. Kolbeinn Sigþórsson Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@frettabladid.is í 35 landsleikjum og þrír meistara- titlar í Hollandi tala sínu máli. En margsinnis á ferlinum hefur hann þurft að glíma við meiðsli og fengið á sig vænan skammt af gagnrýni, bæði frá fjölmiðlum og stuðnings- mönnum, þegar hann hefur ekki staðið sig nógu vel að þeirra mati. Nú síðast bættist hans eigin þjálfari í þann hóp. Kolbeinn segir að hann hafi ekki látið það á sig fá og að hann sé í raun vanur slíku mótlæti. „Ég er búinn að venjast þessu. Þegar ég var hjá Ajax var margt neikvætt skrifað í fjölmiðlum og ýmsu sem ég sagði var alveg snúið á hvolf. Ég hef lært af lifa með því og ekki pælt í slíkum hlutum. En það er auðvitað aldrei skemmtilegt að lesa neikvæðar fréttir um sjálfan sig. Ég hefði held- ur viljað hafa þær jákvæðar.“ „Ég einbeiti mér að sjálfum mér og geri allt sem ég get til að koma mér í mitt besta form. Þannig hef ég alltaf verið og mér hefur alltaf tekist að koma til baka úr erfiðum meiðslum og líka eftir gagnrýni,“ segir Kolbeinn og gengst við því að hann sé kominn með ansi þykkan skráp. „Hann verður þykkari eftir því sem maður fær meira á sig,“ bætir hann við í léttum dúr. Hann viðurkennir að slæmt gengi inni á vellinum dragi úr honum kraftinn. „Innst inni missir maður gleðina sem þarf. Það sem heldur framherjum gangandi er að skora mörk og eftir því sem verr gengur þá dvínar gleðin. Ég hef ekki náð að skora jafn mikið og ég hefði viljað,“ segir hann. Hafnaði Galatasaray Þegar Kolbeinn fór frá Ajax í sumar stóðu honum fleiri möguleikar til boða en að halda til Frakklands og hann staðfestir að tyrkneska félagið Galatasaray, sem hann hefur verið þrálátlega orðaður við, hafi gert honum tilboð. Kolbeinn hafnaði tilboðinu. „Tilboðið kom í raun og veru of seint. Ég var búinn að ákveða að fara til Nantes þegar Galatasaray kom til sögunnar og því hafnaði ég tilboðinu,“ segir Kolbeinn en enn er verið að orða hann við félagið. „Ég hef ekkert heyrt meira frá Galatas- aray og sé bara þessar fréttir í fjöl- miðlum eins og aðrir,“ bætir hann við og segir að hið sama megi segja um skoska liðið Celtic sem hann var orðaður við á dögunum. Hann segist ekki gera ráð fyrir öðru en að vera áfram í Nantes. „Ég er með samning hér og spila hér þangað til að annað kemur í ljós. Hvort eitthvað gerist í sumar eða eftir tvö ár veit ég ekki. Öll mín einbeiting snýr að því að koma mér aftur í mitt gamla stand og spila vel fyrir Nantes.“ alvöru buff í Frakklandi Nantes er sem stendur í tíunda sæti frönsku deildarinnar og hefur nú spilað sex leiki í röð án þess að tapa. Fyrstu fimm leikjunum lykt- uðu reyndar öllum með jafntefli en Kolbeinn tryggði svo Nantes sigurinn í þeim sjötta, gegn St. Eti- enne nú um helgina. Hann segir að franska deildin sé mjög ólík þeirri hollensku og að það hafi tekið sinn tíma að aðlagast því. „Leikmenn eru með mikinn líkamlegan styrk og hafa mikla hlaupagetu. Maður finnur mesta muninn á varnarmönnunum sem maður er að spila gegn. Flest allir eru í kringum tvo metra á hæð og 90 kíló. Þetta eru alvöru buff sem maður þarf að takast á við,“ segir Kolbeinn og bætir við að almennt séu lið þar varnarsinnaðri en í Hol- landi. „Það er til dæmis ekki mikið um að lið beiti hápressu líkt og í Hol- landi og því fær maður ekki marga sénsa til að skora mörk. Því þarf maður tíma til að aðlagast nýjum leikstíl en ég finn að ég er að kom- ast sífellt betur inn í þessa hluti hérna í Frakklandi.“ 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F i M M t U D a G U r28 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 1 3 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 2 6 -7 B A 0 1 8 2 6 -7 A 6 4 1 8 2 6 -7 9 2 8 1 8 2 6 -7 7 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.