Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið Skrímslið litla systir mín Leikarar Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson Listrænir stjórnendur Charlotte Bøving og Helga Arnalds Barnasýning ársins Sproti ársins Gríman 2015 - DV - S.J. Fréttablaðið Sun. 17. jan kl .13.00 Sun. 24.jan kl . 13.00 Sun. 7. feb kl . 13.00 Sun. 21. feb kl . 13.00 Aldrei verið eins mikið að gera í danskennslunni hjá okkur hérna heima og eftir að við fluttum út,“ segir dansarinn Hanna Rún Bazev Óladóttir, sem dvelur á landinu um þessar mundir, en hún er búsett í Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum og dansherra, Nikita Bazev, og litla drengnum þeirra, Vladimir Óla. „Það er eins og allir verði sjúkir í að koma núna, en þetta var ekki svona þegar við bjuggum hérna heima,“ bendir hún á og skellir upp úr. Hún kann þó vel að meta dvölina á Klak- anum, en hana var farið að lengja eftir snjókomunni í Þýskalandi. Hanna Rún, sem sagði í samtali við Fréttablaðið síðasta vor frá því hvernig hún hefði orðið fyrir barðinu á ævareiðum nettröllum og illri tungu Gróu á Leiti um árabil, segist finna fyrir snarlega breyttu viðhorfi og miklu meiri jákvæðni í sinn garð. „Ég vakna oftar en ekki á morgnana við að í pósthólfinu mínu eru hvatningarbréf frá konum sem ég þekki ekki neitt, og lendi auk þess gjarnan í að vera stopp- uð úti á götu af ókunnugum sem ausa yfir mig hrósi,“ segir Hanna Rún, brosir og bætir við að dansheimurinn sé þó enn samur við sig. „Þar er baktalið, og verður alltaf. Ég hlusta hins vegar ekkert á það, þetta er afbrýðisemi og hún kemur ef maður er að gera eitt- hvað gott.“ Þar hittir Hanna Rún naglann á höfuðið, því að á árinu sem var að líða gekk henni einkar vel og unnu þau Nikita hvert mótið á fætur öðru. „Við ákváðum að þegar við snerum aftur, myndi ég ekki stíga á gólfið öðruvísi en að koma sterkari til leiks, þar sem ég ætlaði ekki að hlusta á fólk segja „hún er ekki jafn góð, hún er náttúru- lega orðin mamma“, svo við æfðum rosalega mikið og gerðum einmitt það.“ Parið stimplaði sig rækilega inn, er það fékk titilinn Stjörnupar fyrst íslenskra dansara í lok ársins, en það er nafnbót sem gefin er þeim sem ná á topp fimmtíu á heimslist- anum. „Það var markmið sem við höfðum sett okkur, en áður en ég varð ófrísk vorum við ansi nálægt. Í kjölfar barneignar var ég frá keppni í ár og féllum við því niður í sex hundraðasta og eitthvað sæti.“ Með elju og kappsemi tókst þeim Nikita að ná settu markmiði og geta talað um sig sem raunverulegt stjörnupar. „Þetta er vissulega gaman, en alls eru tvö þúsund og átta hundruð manns á listanum,“ segir hún kímin. Auk þess að brjóta þetta blað í sögu íslenskra dansara, gerðu þau sér lítið fyrir og rökuðu inn öllum þeim titlum sem þau gátu hönd á fest. „Nú tekur við heilt ár af nánast stanslausum ferðalögum, og næsta frí er ekki planað fyrr en í desember á næsta ári,“ segir Hanna, og bendir á að vegna mikils þrýstings hafi hún tekið upp á að byrja að blogga, og hafi fengið feiknagóðar viðtökur. „Ég er alltaf að fá fyrirspurnir um kjólana mína, förðun- ina og hvað við erum að gera, og það er alltaf svo mikið að gerast hjá okkur sem gaman er fyrir fólk að fylgjast með. Það eru rosalega mörg verkefni framundan, og ég get ekki upplýst um þau öll að svo stöddu,“ skýtur hún að í blálokin. gudrun@frettabladid.is Bera titilinn stjörnupar loks með rentu Þau Hanna Rún Bazev og Nikita Bazev lönduðu titlinum Stjörnupar í lok árs, fyrst íslenskra danspara. Hún finnur fyrir miklum meðbyr, þó ekki úr dansheiminum. „Ég vakna oft á morgnana við að í pósthólfinu mínu eru hvatningarbréf frá konum sem ég þekki ekki neitt.“ Hanna Rún hóf nýverið að blogga og leyfir áhugasömum að fylgjast með sínu daglega lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r50 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð BESTA TÓNLISTIN FRÁ 1960 1985 ÞESSI GÖMLU GÓÐU Á EINUM STAÐ Það var markmið sem við höfðum sett okkur, en áður en ég varð ófrísk vorum við ansi nálægt. í kjölfar barneignar var ég frá keppni í ár og féllum við Því niður í sex hundraðasta og eitthvað sæti. 1 3 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 2 6 -4 5 5 0 1 8 2 6 -4 4 1 4 1 8 2 6 -4 2 D 8 1 8 2 6 -4 1 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.