Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 30
Hlynur James Hákonarson er 21
árs gamall og hefur lært fata
hönnun í Tækniskólanum auk
þess að stunda fjarnám við Fjöl
brautaskólann í Garðabæ. Í dag
starfar Hlynur sem búðarstílisti
í Levi’s búðinni í Smáralind auk
þess sem hann bloggar á herra
trend.is. Hann er einn af stofn
endum Rvk Style og hefur eins
og gefur að skilja mikinn áhuga
á hönnun og tísku en líka á tón
list og stjórnmálum. Í framtíðinni
stefnir hann að því að ná nýjum
hæðum í stílistafræðunum og að
stunda háskólanám erlendis.
Hvenær fékkst þú áhuga á tísku?
Áhuginn byrjaði um árið 2007 en
þá fór ég að stunda hjólabrettin og
sá hvernig strákarnir sem voru í
kringum mig klæddu sig öðruvísi.
Þá opnuðust nýjar víddir.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum
þínum? Hann er frekar rokkara
legur, blandaður við smá hip hop
og íþróttastíl.
Hvernig klæðir þú þig hversdags-
lega? Það breytist reglulega
hvernig ég lít á hversdagsklæðn
að. Ef ég ætti að nefna eitthvað
mundi ég segja svartar þröngar
buxur, hvítur stór bolur og annað
hvort hvítir strigaskór eða brúnir
Chelseaskór.
Ef þú þarft að bregða þér í betri
fötin, hvernig klæðist þú þá? Ég lít
ekki á nein föt sem „betri föt“ en
ef það er fínt tilefni þá bregð ég
mér kannski í frakka og örfáum
sinnum í skyrtu.
Áttu þér uppáhaldsverslanir heima
og erlendis? Ég versla lítið hér
á landi þar sem verslanir bjóða
einfaldlega ekki upp á það sem
ég er að leita að þegar kemur
að merkjum eða gæðum. Ef ég
versla hér þá gæti það verið í t.d.
Húrra Reykjavík, KronKron,
Levi’s og Army búðinni í Kola
portinu.
Hverjir eru uppáhaldshönnuðir
þínir? Því miður eru innlendir
hönnuðir af skornum skammti. Ég
þekki þó tvo stráka sem stofnuðu
merkið Inklaw sem eru að standa
sig vel og verður gaman að
fylgjast með. Svo er góður félagi
minn, Snorri Magnússon, dug
legur að hanna og erum við tveir,
ásamt öðrum félaga okkar Krist
ófer Karli Pálssyni, að fara af
stað með nýtt íslenskt merki. Af
erlendum hönnuðum eru það klár
lega Hedi Slimane sem er yfir
hönnuður Saint Laurent, Haider
Ackermann, Jerry Lorenzo og
svo önnur merki eins og Acne
Studios, Gosha Rubschinskiy og
Off White.
Eyðir þú miklu í föt, miðað við aðra
jafnaldra þína? Já, mjög miklu!
Áttu þér eina uppáhaldsflík? Mér
finnst voðalega erfitt að svara
svona spurningu því það breytist
svo mikið. Einn daginn eru það
buxur en annan daginn er það
einhver bolur.
Getur þú nefnt dæmi um bestu og
verstu kaup þín? Nýlega hef ég
bara miðað á góð kaup og hefur
það allt heppnast mjög vel hjá
mér. Ég man a.m.k. ekki eftir
neinum verstu kaupum hingað til.
Er eitthvað sérstakt sem þú stefnir
á að kaupa í vetur í fataskápinn?
Einhverja „essential“ hettupeysu.
Þar er ég helst að miða á Fear Of
God hettupeysu.
Notar þú einhverja fylgihluti? Já,
er með tvö silfurarmbönd sem ég
tek aldrei af mér.
RokkaRa lEGuR stíll
Nýtt merki væntanlegt Hlynur James Hákonarson eyðir miklu í föt enda áhugasamur um tísku. Hann vinnur
í Levi’s búðinni og bloggar á herratrend.is. Á næstunni mun hann kynna nýtt fatamerki ásamt tveimur félögum.
Hér er Hlynur í vintage Armani-jakka. Allir bolirnir eru frá
Alexander Wang. MYNDIR/GVA
Bomber-jakkinn er úr Army búðinni i
Kolaportinu. Rúllukragapeysan frá Acne
Studios og skórnir frá Ralph Lauren.
Skórnir og skyrtan eru frá Selected.Frakkinn er frá Tiger of Sweden. Peysan frá Acne. Allar
buxurnar eru úr Levi’s búðinni.
Levi´s Kringlunni – Levi´s Smáralind – Levi´s Glerártorgi
Afnám tolla skilar
sér beint í vasa
viðskiptavina Levi´s
Verðdæmi Slim fit
- 14. desember 2015 kr. 16.990
- 14. janúar 2016 kr. 14.990
Ég versla lítið hér
á landi þar sem
verslanir bjóða einfald-
lega ekki upp á það sem
ég er að leita að þegar
kemur að merkjum eða
gæðum.
14. janúar 20154 FóLK tíska
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
2
6
-4
F
3
0
1
8
2
6
-4
D
F
4
1
8
2
6
-4
C
B
8
1
8
2
6
-4
B
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K