Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 17
Með því að minnka smátt og smátt
sykurmagn í sykruðum drykkjum
myndi líf margra batna. Samkvæmt
rannsókn breskra vísindamanna
yrði þá hægt að koma í veg fyrir 300
þúsund tilfelli sykursýki af týpu tvö.
Ef magn sykurs í sykruðum
drykkjum, þar á meðal ávaxtasafa,
yrði minnkað um 40 prósent á fimm
ára tímabili myndi sykurneyslan að
meðaltali verða 38,4 kaloríum minni
á dag í lok tímabilsins. Vísinda-
mennirnir segja að með því yrði
hægt að koma í veg fyrir 500 þúsund
tilfelli ofþyngdar og eina milljón til-
fella offitu hjá bresku þjóðinni.
Þar með yrðu tilfelli sykursýki
af týpu tvö um 300 þúsundum
færri næstu tvo áratugina, að mati
vísindamannanna sem starfa við
Queen Mary-háskólann í London.
Gervisætuefni eiga ekki að koma
í stað sykursins sem fjarlægður
verður úr drykkjunum.
Niðurstöður rannsóknar vís-
indamanna eru birtar í grein í
ritinu The Lancet Diabetes &
Endocrinology.
Bresk stjórnvöld hafa unnið með
matvælaframleiðendum að því að
minnka salt í mat um 40 prósent á
fimm ára tímabili. – ibs
Breskir vísindamenn vilja minnka sykurmagn í drykkjum
Koma má í veg fyrir hundruð þúsunda tilfella ofþyngdar og offitu í Bretlandi verði
sykur í drykkjum minnkaður. NORDICPHOTOS/GETTY
Vísindamennirnir segja
að með því að minnka
sykurmagn í drykkjum yrði
hægt að koma í veg fyrir 500
þúsund tilfelli ofþyngdar og
1 milljón tilfella offitu hjá
bresku þjóðinni. Þar með
yrðu tilfelli sykursýki af týpu
tvö um 300 þúsundum færri
næstu tvo áratugina.
Borgarbókasafnið býður börnum
að heimsækja safnið og lesa sér til
ánægju fyrir hunda sem eru sérstak-
lega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa.
Um er að ræða verkefni í samstarfi
við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á
Íslandi.
Á vef safnsins segir að félagið
Vigdís sé aðili að lestrarverkefninu
R.E.A.D. – Reading Education Ass-
istance Dogs sem starfar um allan
heim með um 4 þúsund sjálfboða-
liðum með það að markmiði að efla
læsi barna með því að hvetja þau til
yndislesturs.
Lestrarstundir með hundi reynast
börnum vel og ekki síst þeim sem
eiga við lestrarörðugleika að stríða.
Hundurinn gagnrýnir ekki barnið á
meðan á lestrinum stendur, hjálpar
því að slaka á og liggur rólegur á
meðan lesið er. Sjálfboðaliðinn sem
á hundinn ræðir síðan við barnið um
innihald bókarinnar til að aðstoða og
tryggja betri lesskilning. Lesturinn fer
fram á 5. hæð Borgarbókasafnsins í
Grófinni. Tveir hundar verða á staðn-
um og komast átta börn að í hvert
skipti. Hvert barn fær að lesa fyrir
hundinn í 15 mínútur. Hundarnir og
eigendur þeirra hafa fengið sérstaka
þjálfun til að sinna verkefninu. For-
eldrar þurfa að bóka tíma fyrirfram
fyrir börnin með því að senda tölvu-
póst á Þorbjörgu Karlsdóttur verk-
efnisstjóra á netfangið thorbjorg.
karlsdottir@reykjavik.is eða með því
að hringja í síma 411 6146.
Boðið verður upp á lestrarstund-
irnar sunnudagana 17. janúar, 7. og
21. febrúar, 6. og 20. mars og 3. apríl
og hefjast allar kl. 15.
Lesið fyrir
hunda á
bókasafni
Þeir sem hætta að reykja öðlast við
það sína eðlilegu þyngd. Þetta eru
niðurstöður rannsóknar sem gerð
var við Kaupmannahafnarháskóla.
Vísindamennirnir, sem stóðu að
rannsókninni, segja að reykinga-
menn séu léttari en þeir sem ekki
reykja þar sem nikótín dragi úr
matarlystinni og auki efnaskiptin.
Þegar reykingamenn hætti að
reykja verði þeir jafnþungir og þeir
hefðu verið ef þeir hefðu aldrei
reykt.
Óttinn við að þyngjast kemur í
veg fyrir að margir hætti reyking-
um, einkum konur. Á þetta bendir
danskur ráðgjafi.
Þyngdin verður
eðlileg á ný
Lestrarstundir með hundi reynast
börnum vel. MYND/BÁRA KRISTINSDÓTTIR
Veldu hreint loft,
aukna orku og vellíðan
Loftgæðin innandyra hafa áhrif á heilsu okkar.
Þau minnka á veturna á Íslandi og ekki hjálpar að opna
glugga því að útiloft, sem er við frostmark, getur aðeins
innihaldið um fjögur grömm af vatni á rúmmetra.
Stadler Form rakamælar, rakatæki, lofthreinsitæki og
ilmtæki á 20% afslætti í janúar.
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.isHlíðasmára 3 . Sími 520 3090
www.bosch.is
Selina rakamælir
Sýnir hitastig og rakaprósentu.
Nákvæm mæling.
Öflugt, hljóðlátt og stílhreint.
Afköst mest 300 g/klst.
Herbergisstærð allt að 40 m2.
Náttúrulegur rakagjafi.
Afköst mest 120 g/klst.
Herbergisstærð allt að 25 m2.
Skapar róandi stemningu og
dreifir ilmi um herbergið.
Öflugt og glæsilegt.
Afköst mest 480 g/klst.
Herbergissstærð allt að 65 m2.
Hreinsar loftið með þremur síum.
Eyðir ólykt, ryki, svifryki,
bakteríum, veirum, frjókornum og
öðrum örverum í híbýlum okkar.
Herbergisstærð: 50 m2
Viktor lofthreinsitæki
Anton rakatæki
Jasmin ilmtæki
Oskar rakatæki
Jack rakatæki
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 17f i M M t U D A G U r 1 4 . j A n ú A r 2 0 1 6
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
2
6
-3
B
7
0
1
8
2
6
-3
A
3
4
1
8
2
6
-3
8
F
8
1
8
2
6
-3
7
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K