Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 60
Tommy
Wis
eau er
sveipaður
talsverðri dulúð og lítið
vitað um líf hans.
Í nokkrum viðtölum hefur hann
gefið í skyn að hann sé fæddur 1968
eða 1969.
Í ævisögu leikarans Gregs Sestero
heldur hann því hins vegar fram að
Wiseau hafi fæðst í kringum 1950 í
AusturEvrópu þó ekki sé farið nánar
út í það í hvaða landi. Sjálfur hefur
hann þó sagst hafa búið í Frakklandi
um langt skeið og að hann hafi alist
upp í New Orleans.
Kvikmyndin The Room kom út
árið 2003 og var sýnd við dræmar
viðtökur í Los Angeles og eru sagðar
af því sögur að helmingur gesta hafi
viljað fá endurgreitt áður en hálftími
var liðinn af sýningu myndarinnar.
Athygli hefur vakið að Wiseau ber
oft tvö belti sem er talsvert óvenju
legt. Að hans sögn er annað til þess
að halda uppi buxunum en hitt
þjónar þeim tilgangi að halda uppi
óæðri endanum.
Hver er Tommy Wiseau?
M yndin er alveg s t ó r k o s t l e g . Hún er svo léleg á svo ofsalega f l ó k i n n m át a ,
maður þarf eiginlega að sjá hana
aftur og aftur, þannig uppgötvar
maður snilld sem fór fram hjá
manni við síðasta áhorf,“ segir
Gunnar Tómas Kristófersson,
kvikmyndafræðingur og kennari
í kvikmyndafræði við Háskóla
Íslands.
Gunnar Tómas mun ásamt
Björgvin Franz Gíslasyni og
Rakel Ósk Þorgeirsdóttur standa
fyrir svokallaðri þátttökusýn-
ingu á myndinni The Room sem
hefur einna helst unnið sér það
til frægar að skipa sér í flokk
með lélegustu kvikmyndum sem
gerðar hafa verið. „Þátttöku-
sýning er í sjálfu sér það sem
áhorfendur kjósa að segja og gera
í kvikmyndasalnum,“ segir Gunn-
ar Tómas um fyrirbærið en ekki
hefur verið mikið um svokallaðar
þátttökusýningar hér á landi.
Rík hefð hefur skapast í kring-
um þátttökusýningar á kvikmynd-
inni The Room síðan hún kom út
árið 2003. Sem dæmi um það sem
fram fer á þátttökusýningu er að
áhorfendur svara karakterum í
myndinni, eiga við þá samtöl og
eru í einhvers konar gagnvirkum
samskiptum við myndina. Í
kringum The Room hefur skapast
fjöldinn allur af hefðum og segir
Gunnar Tómas þremenningana
ætla að notast við þægilegustu
og þekktustu þátttökuhefðirnar
og verða þær kynntar fyrir áhorf-
endum áður en leikar hefjast.
Óþægilegur og margslunginn
„Meðal annars verður skeiðum
og amerískum fótboltum kastað,“
segir Gunnar Tómas en ástæður
skeiðakastsins má rekja til þess
þegar verið var að setja sviðs-
mynd kvikmyndarinnar upp.
Tommy Wiseau, framleiðandi,
handritshöfundur, leikstjóri og
aðalleikari myndarinnar er að
mörgu leyti sérstæður karakt-
er og hafa margar af hefðunum
spunnist út frá honum og hans
sérkennilegheitum. „Hann er
rosalega skrítinn og óþægilegur á
margslunginn hátt,“ segir Gunn-
ar Tómas og skellir upp úr þegar
hann er beðinn um að gera betri
grein fyrir Wiseau. „Hann var með
puttana í öllu og réð öllu sem var
gert. Settið var dálítið fátæklegt
og hann sendi einhverja sem
sáu um leikmyndina út og lét þá
kaupa alls konar leikmuni. Meðal
annars ramma og í þeim voru
svona „stock-photos“ og í einum
rammanum var mynd af skeið.
Þegar leikmyndahönnuðirnir
vildu skipta myndinni út neitaði
hann því.“ Því er mynd af skeið í
einum ramma í setti myndarinnar
og í kringum það hefur ein þátt-
tökuhefðin skapast. „Alltaf þegar
hún kemur í mynd þá kasta áhorf-
endur plastskeiðum í salinn. Þetta
er svona til þess að fagna fárán-
leikanum. Það er ekki hægt að
útskýra neitt í þessari mynd, bara
fagna því að hún hafi verið gerð,“
segir Gunnar Tómas hlæjandi og
það er auðheyrt að hann hefur
gaman af Tommy Wiseau.
Fagna fáránleikanum með
plastskeiðak asti
Þau Gunnar Tómas, Rakel og Björgvin Franz verða vafalaust kræf í plastskeiðakastinu. FRéTTaBlaðið/anTonBRink
Hér má sjá
Tommy
Wiseau
með beltin
tvö.
allTaF þegar Hún
kemur í mynd þá
kasTa áHorFendur plasT-
skeiðum í salinn. þeTTa er
svona Til þess að Fagna
Fáránleikanum. það er ekki
HægT að úTskýra neiTT í
þessari mynd, bara Fagna
því að Hún HaFi verið gerð.
Efnt verður til þátttökusýningar á kvikmyndinni The Room í Bíói Para-
dís í næstu viku. Áhorfendur taka virkan þátt í sýningunni og kasta
meðal annars amerískum fótbolta á milli sín á meðan á sýningu stendur.
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r48 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
2
6
-5
9
1
0
1
8
2
6
-5
7
D
4
1
8
2
6
-5
6
9
8
1
8
2
6
-5
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K