Fréttablaðið - 14.01.2016, Page 60

Fréttablaðið - 14.01.2016, Page 60
Tommy Wis­ eau er sveipaður talsverðri dulúð og lítið vitað um líf hans. Í nokkrum viðtölum hefur hann gefið í skyn að hann sé fæddur 1968 eða 1969. Í ævisögu leikarans Gregs Sestero heldur hann því hins vegar fram að Wiseau hafi fæðst í kringum 1950 í Austur­Evrópu þó ekki sé farið nánar út í það í hvaða landi. Sjálfur hefur hann þó sagst hafa búið í Frakklandi um langt skeið og að hann hafi alist upp í New Orleans. Kvikmyndin The Room kom út árið 2003 og var sýnd við dræmar viðtökur í Los Angeles og eru sagðar af því sögur að helmingur gesta hafi viljað fá endurgreitt áður en hálftími var liðinn af sýningu myndarinnar. Athygli hefur vakið að Wiseau ber oft tvö belti sem er talsvert óvenju­ legt. Að hans sögn er annað til þess að halda uppi buxunum en hitt þjónar þeim tilgangi að halda uppi óæðri endanum. Hver er Tommy Wiseau? M yndin er alveg s t ó r k o s t l e g . Hún er svo léleg á svo ofsalega f l ó k i n n m át a , maður þarf eiginlega að sjá hana aftur og aftur, þannig uppgötvar maður snilld sem fór fram hjá manni við síðasta áhorf,“ segir Gunnar Tómas Kristófersson, kvikmyndafræðingur og kennari í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands. Gunnar Tómas mun ásamt Björgvin Franz Gíslasyni og Rakel Ósk Þorgeirsdóttur standa fyrir svokallaðri þátttökusýn- ingu á myndinni The Room sem hefur einna helst unnið sér það til frægar að skipa sér í flokk með lélegustu kvikmyndum sem gerðar hafa verið. „Þátttöku- sýning er í sjálfu sér það sem áhorfendur kjósa að segja og gera í kvikmyndasalnum,“ segir Gunn- ar Tómas um fyrirbærið en ekki hefur verið mikið um svokallaðar þátttökusýningar hér á landi. Rík hefð hefur skapast í kring- um þátttökusýningar á kvikmynd- inni The Room síðan hún kom út árið 2003. Sem dæmi um það sem fram fer á þátttökusýningu er að áhorfendur svara karakterum í myndinni, eiga við þá samtöl og eru í einhvers konar gagnvirkum samskiptum við myndina. Í kringum The Room hefur skapast fjöldinn allur af hefðum og segir Gunnar Tómas þremenningana ætla að notast við þægilegustu og þekktustu þátttökuhefðirnar og verða þær kynntar fyrir áhorf- endum áður en leikar hefjast. Óþægilegur og margslunginn „Meðal annars verður skeiðum og amerískum fótboltum kastað,“ segir Gunnar Tómas en ástæður skeiðakastsins má rekja til þess þegar verið var að setja sviðs- mynd kvikmyndarinnar upp. Tommy Wiseau, framleiðandi, handritshöfundur, leikstjóri og aðalleikari myndarinnar er að mörgu leyti sérstæður karakt- er og hafa margar af hefðunum spunnist út frá honum og hans sérkennilegheitum. „Hann er rosalega skrítinn og óþægilegur á margslunginn hátt,“ segir Gunn- ar Tómas og skellir upp úr þegar hann er beðinn um að gera betri grein fyrir Wiseau. „Hann var með puttana í öllu og réð öllu sem var gert. Settið var dálítið fátæklegt og hann sendi einhverja sem sáu um leikmyndina út og lét þá kaupa alls konar leikmuni. Meðal annars ramma og í þeim voru svona „stock-photos“ og í einum rammanum var mynd af skeið. Þegar leikmyndahönnuðirnir vildu skipta myndinni út neitaði hann því.“ Því er mynd af skeið í einum ramma í setti myndarinnar og í kringum það hefur ein þátt- tökuhefðin skapast. „Alltaf þegar hún kemur í mynd þá kasta áhorf- endur plastskeiðum í salinn. Þetta er svona til þess að fagna fárán- leikanum. Það er ekki hægt að útskýra neitt í þessari mynd, bara fagna því að hún hafi verið gerð,“ segir Gunnar Tómas hlæjandi og það er auðheyrt að hann hefur gaman af Tommy Wiseau. Fagna fáránleikanum með plastskeiðak asti Þau Gunnar Tómas, Rakel og Björgvin Franz verða vafalaust kræf í plastskeiðakastinu. FRéTTaBlaðið/anTonBRink Hér má sjá Tommy Wiseau með beltin tvö. allTaF þegar Hún kemur í mynd þá kasTa áHorFendur plasT- skeiðum í salinn. þeTTa er svona Til þess að Fagna Fáránleikanum. það er ekki HægT að úTskýra neiTT í þessari mynd, bara Fagna því að Hún HaFi verið gerð. Efnt verður til þátttökusýningar á kvikmyndinni The Room í Bíói Para- dís í næstu viku. Áhorfendur taka virkan þátt í sýningunni og kasta meðal annars amerískum fótbolta á milli sín á meðan á sýningu stendur. 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r48 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð 1 3 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 2 6 -5 9 1 0 1 8 2 6 -5 7 D 4 1 8 2 6 -5 6 9 8 1 8 2 6 -5 5 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.