Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 21
Tvær bandarískar bíó-myndir um hrunið hafa vakið heimsathygli. Fyrri myndin, Inside Job, birtist 2010 og vann til Óskarsverð- launa í flokki heimildarmynda auk sjö annarra verðlauna og 25 tilnefninga til verðlauna eins og sjá má á kvikmyndavefsetrinu góða, www.imdb.com. Höfundur myndarinnar er dr. Charles Ferguson. Hann er stjórnmála- fræðingur og fv. háskólakennari og lauk doktorsprófi sínu frá tækniháskólanum í Massachu- setts, MIT. Myndinni fylgdi bók Fergusons, Predator Nation: Corporate Criminals, Political Corruption, and the Hijacking of America (2012). Þar er efni myndarinnar rakið í miklu lengra máli en hægt er á hvíta tjaldinu. Þetta er engin utangarðsmynd heldur styðst handritið við athuganir margra kunnra fræði- manna og annarra sem gerþekkja málavexti. Í þeim hópi er Willam Black prófessor í hagfræði og lögum í Kansas City og einnig fv. fjármálaeftirlitsmaður. Hann er Íslendingum að góðu kunnur af heimsóknum sínum hingað og kom m.a. fram í Silfri Egils meðan það var og hét. Stórleikarinn Matt Damon er þulur í myndinni og beitir seiðandi rödd sinni eins og við séum að horfa á hugþekka náttúrulífsmynd. Taglhnýtingar eða móralskir slæpingjar? Eins og nafnið Inside Job ber með sér í tveim orðum lýsir myndin bankahruninu í Bandaríkjunum sem ráni innan frá. Fyrr nefndur William Black hefur sagt og skrifað: „Bezta leiðin til að ræna banka er að eiga banka“ sem er heitið á þekktri bók hans frá 2005. Hrunið hófst eins og menn muna með falli Lehman Brot- hers 2008. Hefði bankinn heitið Lehman Sisters, segi ég stundum, væri hann trúlega ennþá uppi standandi þar eð rannsóknir sýna að konur fara jafnan betur með fé en karlar, en það er önnur saga. Charles Ferguson hefur lýst því í sjónvarpsviðtölum, m.a. við Charlie Rose og Katie Couric, að einn hluti myndarinnar hafi vakið meiri viðbrögð og von- brigði áhorfenda en aðrir. Það eru viðtöl Fergusons við nokkra vel þekkta bandaríska háskólapró- fessora sem urðu sér svo ræki- lega til minnkunar í myndinni að mig og marga aðra sundlaði. Flestir fóru þeir undan í flæmingi þegar Ferguson spurði þá hvort þeir teldu að bankarnir hefðu gert eitthvað af sér. Einn þeirra hótaði að fleygja Ferguson út af skrifstofu sinni í miðju viðtali. Annar stóð ljúgandi frammi fyrir myndavélinni og bar skjálfandi lygina utan á sér. Ferguson rekur fjárhagstengslin milli prófessor anna og hrunverja skv. opinberum heimildum, engin smátengsl. Eru þessir prófessorar taglhnýtingar eða bara móralskir slæpingjar? Það er álitamál, býst ég við. Í frumgerð myndarinnar sem Ferguson forsýndi völdum áhorf- endum var meira sýnt af viðtöl- um hans við prófessorana. Áhorf- endur réðu honum að stytta þessi viðtöl þar eð annars gætu menn haldið að honum væri mest í mun að auðmýkja prófessorana frekar en að fræða áhorfendur um tildrög hrunsins. Ferguson fór að þessum ráðum. Nokkrir aðrir hagfræðingar eru sjálfum sér og stéttinni til sóma í myndinni, þar á meðal Paul Volcker, fv. seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Dominique Strauss-Kahn, þá forstjóri AGS (hann hrökklaðist nokkru síðar frá AGS, en gagn- rýni hans á bankana í myndinni er varla minna virði fyrir því) og Gylfi Zoëga, prófessor í Háskóla Íslands; hans er einnig að góðu getið á www.imdb.com. The Big Short Nú er nýkomin út önnur hrun- mynd, The Big Short, byggð á samnefndri sannsögulegri bók bandaríska rithöfundarins og blaðamannsins Michaels Lewis frá 2011. Myndin segir frá fjórum mönnum sem sáu hrunið fyrir 2007 og hugðust græða á því. Þeir trúðu varla sínum eigin augum í fyrstu þegar þeim varð ljóst umfang undirmálslánanna sem Kvikmyndir um hrunið Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag bankar og aðrar fjármálastofnan- ir höfðu veitt til húsnæðiskaupa. Þegar þeir kynntust súlu dansmey í Flórída sem hafði verið lánað fé til að kaupa sex íbúðir og þetta var ekki einstakt tilvik heldur yfirgripsmikið mynztur, þá létu þeir sannfærast. Þeir ákváðu að veðja á hrun húsnæðisverðs og banka – að bólan myndi springa! – og hættu til þess miklu fé sem þeim hafði verið trúað fyrir. Myndin rekur gang málsins og er óvenjuleg fyrir þá sök að stundum er gert hlé á frásögn- inni, myndin fryst, til að skýra flókna fjármálagerninga og hag- fræðihugtök fyrir áhorfendum. Eini hagfræðingurinn sem kemur fram í myndinni er þv. forseti Bandaríska hagfræðingafélags- ins, Richard Thaler, prófessor í Chicago-háskóla. Framganga hans er honum sjálfum og stétt- inni til sóma. Thaler er stundum kallaður meðhöfundur hagsálar- fræðinnar  eða atferlishagfræð- innar (e. behavioral economics), þeirrar sérgreinar hagfræðinnar sem sækir sér fyrirmyndir í sálar- fræði lifandi fólks frekar en í eðlisfræði dauðra hluta. Það er efni í aðra grein. Ferguson rekur fjárhag- stengslin milli prófessoranna og hrunverja skv. opinberum heimildum, engin smátengsl. Eru þessir prófessorar tagl- hnýtingar eða bara móralskir slæpingjar? Það er álitamál, býst ég við. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F i M M T u d a g u R 1 4 . j a n ú a R 2 0 1 6 1 3 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 2 6 -6 2 F 0 1 8 2 6 -6 1 B 4 1 8 2 6 -6 0 7 8 1 8 2 6 -5 F 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.