Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1929, Blaðsíða 22
18*
Mannfjöldaskýrslur 1921 —1925
Ef borin eru saman fímabilin sjest, að þrjú fyrsfu tímabilin hafa
giftingarlíkur yngri aldursflokkanna (innan þrífugs) farið mjög vaxandi,
en eldri aldursflokkanna heldur minkandi og gildir það bæði um karla
og konur, en síðan hafa giftingarlíkur kvenna innan þrítugs ekki aukist
og karlmanna á þeim aldri farið töluvert minkandi, einkum á síðasta
tímabilinu, enda hefur meðalaldur brúðguma og brúða hækkað aftur.
Á töflu XIII (bls. 36) sjest aldursmunur brúðhjóna 1921—25. Til
þess að fá ljósara yfirlit um aldursmuninn hefur verið reiknaður út
meðalgiftingaraldur kvenna, er giftast mönnum í hverjum aldursflokki og
ennfremur meðalgiftingaraldur karla, sem giftast konum í hverjum ald-
ursflokki. Sjest það á eftirfarandi yfirliti.
Meöalgiftingaraldur
Meöalgiftingaraldur brúöa brúðguma
Aldur brúöguma 1916-20 1921-25 Aldur brúöa Innan 20 ára .... 1916-20 27.5 ár 1921—25 26.9 ár
Innan 25 ára . . . . 24.3 ár 24.2 ár 20-24 ára 27.5 — 27.6 —
25 - 29 ára 25.6 - 25.4 — 25-29 — 29.5 — 30.o —
30—34 — 27.6 — 27.7 -- 30-34 — 32.2 — 33.2 —
35-39 - 29.5 - 30.8 — 35 -39 — C4.8 — 36.0 —
40-44 — 30.6 — 31.7 — 40—44 — 40.5 — 38.6 —
45-49 — 35.8 — 35.5 - 45-49 — 41.6 — 42.9 —
50—54 — 36.2 — 36.9 — 50-54 — 54.8 - 43.3 —
55-59 — 41.4 — 42.5 — 55-59 — 57.5 — 50.o —
Karlmenn, sem giftast innan 25 ára, ganga venjulega að eiga konur,
sem eru heldur eldri en þeir sjálfir. Annars gildir sú regla um karla, að
á hvaða aldri sem þeir giftast, taka þeir sjer venjulega konur, sem eru
yngri en þeir sjálfir. Þegar þeir giftast innan við þrítugt, er aldursmun-
urinn venjulega ekki mikill, en vex eftir því sem þeir giftast seinna.
Konur, sem giftast innan þrítugsaldurs, ganga venjulega að eiga menn,
sem eru eldri en þær sjálfar og því yngri sem þær eru því meiri er
aldursmunurinn. Um þrítugt giftast þær venjulega jafnöldrum sínum, en
eftir það venjulega mönnum, sem eru yngri en þær og aldurs-
munurinn verður því meiri sem þær giftast eldri. Meðalgiftingaraldur
brúðguma, er giftust konum á sextugsaldri 1916—20, virðist reyndar fara
í bága við þessa reglu, en þar sem þar er aðeins um mjög fáar hjóna-
vígslur að gera, þá má telja það tilviljun, að brúðgumarnir hafa að
meðaltali orðið jafngamlir eða jafnvel eldri en brúðirnar á þessum árum.
5. Atvinna brúðguma.
Profession du marié.
I töflu XIV (bls. 37) eru upplýsingar um atvinnu brúðguma í sam-
bandi við aldur brúðhjóna. Upplýsingar um atvinnu fengust fyrst eftir að