Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1953, Page 10

Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1953, Page 10
6* Xðnaðarskýrslur 1950 fjölmörg fyrirtæki ekki fengizt til að skila skýrslu. Þar við bætist, að þörf er ýtar- legri og nákvæmari skýrslna en mögulegt er að fá með þeirri tilhögun, sem höfð hefur verið á söfnun skýrslnanna. Raunar á allt þetta ekki aðeins við iðnaðar- skýrslurnar, lieldur einnig við skýrslugerðina um atvinnuvegi landsmanna i heild, sem mikil þörf er á, að verði komið í viðunandi horf. Niðurstaðan af athugunum Hagstofunnar á þessum málum er sú, að almennt verði tekið upp líkt fyrirkomulag um öflun frumskýrslna um atvinnuvegina og notað hefur verið síðan 1946 við búnaðarskýrslurnar, samkvæmt lögum nr. 38/1946. Er þá frumgagnanna aflað með aðstoð skattyfirvaldanna, þannig að atvinnurek- endur gefi, á sérstökum fylgiskjölum með framtölum sínum, upplýsingar þær um rekstur sinn og hag, sem óskað er eftir til skýrslugerðar. Til þess að koma þessu á fót, mundi þurfa nýja löggjöf. Ógerlegt mundi vera, að minnsta kosti fyrst í stað, að safna slíkum heildarskýrslum árlega fyrir hvern aðalatvinnuveg, og er því gert ráð fyrir að haga skýrslugerð þessari þanuig, að eitt árið komi út búnaðarskýrslur, annað árið skýrslur um fiskveiðar og siglingar og þriðja árið skýrslur um iðnað, verzlun og aðrar atvinnugreinar, sem ekki eru hafðar með landbúnaði eða fisk- veiðum ásamt siglingum. Þau tvö árin, sem samkvæmt þessu mundu ekki verða gerðar skýrslur fyrir, mætti áætla veigamestu atriðin — enda mundi það verða fullnægjandi í langflestum tilfellum. Hætt er við því, að einhver dráttur verði á framkvæmd þessara áforma, vegna þess að verkið við að koma á fót spjaldskrá yfir alla landsmenn verður að ganga fyrir öðrum nýjum verkefnum Hagstofunnar. En áherzla verður lögð á að flýta því sem mest, að skýrslugerð Hagstofunnar um atvinnuvegi landsmanna komist í viðunandi liorf, og er ýmissa hluta vegna ekki sízt þörf á því, að iðnaðar- skýrslurnar verði auknar og endurbættar verulega frá því, sem er í þessum fyrstu skýrslum Hagstofunnar um iðnað landsmanna. Það, að ekki hafa verið til viðhlítandi skýrslur um iðnaðarstarfsemina í land- inu, hefur verið stöðugt umkvörtunarefni iðnrekenda, handiðnaðarmanna og þeirra opinberra aðila, sem um iðnaðarmál fjalla. Af liálfu Hagstofunnar er sú von látin í ljós, að iðnaðarskýrslurnar 1950 bæti að einhverju leyti úr þeim tilfinnanlega upplýsingaskorti, sem liér hefur verið fyrir hendi, — þrátt fyrir ágalla þeirra, og þó að útgáfa þeirra liafi tekið lengri tíma en æskilegt liefði verið. Hagstofa íslands, í maí 1953. Klemens Tryggvason.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Hagskýrslur um iðnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um iðnað
https://timarit.is/publication/1130

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.