Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1953, Side 124
Hagstofa Islands
gefur út eftirtaliu rit:
I. Ilagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau efni, sem Hag-
stofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálfstœðum heftum, og
fást þau keypt einstök. Menn geta líka gerzt áskrifendur að Hagskýrslimum
með því að snúa sér beint til Hagstofunnar, Arnarhvoli, Reykjavík. Sími
2802. — Áskrifendur að Hagskýrslunum fá þær sendar jafnóðum og þær koma
út, en vegna óvissu um, hvaða hefti og hve mörg, koma út árlcga, er ekki um
að ræða fast áskriftargjald, heldur greiða áskrifendur jafnóðum hið ákveðna
verð skýrslnanna, eða fleiri hefti í einu, eftir því sem henta þykir.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um innflutning og
útflutning, flskafla, hag bankanna, framfærsluvísitölu og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í scrstöku hefti af Hagskýrslum. Enn fremur bráða-
birgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ýtarlegri skýrslur. Áskriftar-
gjald er 15 krónur um árið.