Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Qupperneq 4
fimmtudagur 25. september 20084 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Gunnar Stefán Wathne vann áfangasigur fyrir bandarískum dómstólum í vikunni þeg- ar dómari úrskurðaði að hann hefði aldrei þurft að snúa aftur til Bandaríkjanna svo hægt væri að rétta yfir honum. Hann gæti því sloppið við frekari fangelsisvist. Verði hann fund- inn sekur um peningaþvættið sem hann er ákærður fyrir, á hann yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Bandarísk dagblöð fylgjast mjög náið með málaferlunum yfir Gunnari. LAGAFLÆKJUR BJARGA WATHNE Gunnar Stefán Wathne, sem nú berst fyrir framtíð sinni fyrir dómstólum í Kaliforníu, vann í vikunni áfanga- sigur í málaferlunum þegar dómari úrskurðaði að handtaka Gunnars Stefáns á flugvelli á Indlandi síðasta haust hafi ekki verið með lögmætum hætti. Þessi niðurstaða getur þýtt að Gunnar Stefán sleppi við fangelsis- vist í Bandaríkjunum, en að öðrum kosti getur hann átt yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Gunnar Stefán, sem er íslensk- ur ríkisborgari, er gjarnan kallaður sonur hinna frægu Wathne-systra, Bergljótar, Þórunnar og Soffíu. Móð- ir hans og systur hennar tvær hafa efnast mjög á sölu á tískufatnaði. Bandarísk dagblöð og netmiðlar um allt land hafa fylgst náið með máli Gunnars Stefáns, enda velta margir vöngum yfir því að erfingi milljarða króna viðskiptaveldis skuli flækjast í risastórt peningaþvætti sem tengd- ist einni umfangsmestu LSD-fram- leiðslu sem komist hefur upp á síð- ari árum. Lögmannateymi til bjargar Gunnar sat í fangelsi á Indlandi í tvo mánuði síðasta haust eftir að hann var handtekinn við komuna til landsins frá Rússlandi, þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Bandarísk yfirvöld létu lýsa eftir honum hjá alþjóðalögreglunni, Int- erpol, eftir að hann yfirgaf Bandarík- in þegar ásakanir á hendur honum um gríðarlega umfangsmikið pen- ingaþvætti komu upp. Gunnar Stef- án hefur verið ákærður fyrir peninga- þvætti á um 330 milljónum króna. Stjörnum prýtt lögmannateymi hans hefur haldið uppi vörnum á þeim forsendum að handtaka hans á Ind- landi og síðar framsalskrafa á hend- ur honum hafi verið ólögmæt, þar sem peningaþvættið sem hann er sakaður um hafi ekki verið ólöglegt á Indlandi þegar meint brot áttu sér stað. Jafnvel þótt fjárglæpirnir teng- ist Indlandi ekki á nokkurn hátt er ólöglegt samkvæmt indverskum lög- um að framselja menn sem hafa ekki gerst brotlegir við sams konar lög og gilda þar í landi. Gæti verið frjáls á Íslandi Úrskurðurinn þýðir að Gunn- ar hefði aldrei þurft að snúa aftur til Bandaríkjanna svo hægt væri að rétta yfir honum. Hann er þó ekki alveg sloppinn því ákærunni hef- ur ekki verið vísað frá dómi. Karen Snell, lögmaður hans, sagði þó við bandaríska fjölmiðla að dómarinn hafi nú fulla ástæðu til að vísa mál- inu frá dómi. Réttarhöldunum verð- ur haldið áfram á næstu dögum. Með þessum úrskurði gæti Gunn- ar sem fyrr segir sloppið við fangels- isvist með því að setjast að á Indlandi og í öðrum löndum sem hafa ekki framsals- samn- inga við Bandarík- in. Sam- kvæmt ís- lenskum lögum gæti hann einnig strokið um frjálst höf- uð á Íslandi þar sem yf- irvöld hér á landi fram- selja ekki íslenska rík- isborgara til annarra landa. Úrskurðurinn þýðir að Gunnar hefði aldrei þurft að snúa aftur til Bandaríkjanna svo hægt væri að rétta yfir honum. Hann er þó ekki alveg sloppinn því ákærunni hefur ekki verið vísað frá dómi vaLGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is Gunnar Stefán Wathne gunnar sat í fangelsi á indlandi í tvo mánuði síðasta haust eftir að hann var handtekinn við komuna til landsins frá rússlandi þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Heita vatnið hækkar Orkuveita Reykjavíkur til- kynnti í gær að verðhækkana á heitu vatni sé að vænta nú um mánaðamótin. Um er að ræða 9,7 prósenta hækkun sem iðn- aðarráðherra hefur staðfest. Íbúar á veitusvæði OR mega því reikna með að hitareikning- ur meðalíbúðar hækki um 300 krónur á mánuði frá 1. október. Í tilkynningu Orkuveitu Reykja- víkur segir að hækkun kostnaðar og fjárfesting í nýrri hitaveitu frá Hellisheiði séu ástæður hækk- unarinnar.Segir í tilkynning- unni að hækkunin nú sé fyrsta verðbreytingin frá því fyrirtækið lækkaði verð á heitu vatni árið 2005. Lést af slysförum Bráðabirgðaniðurstaða krufningar hefur leitt í ljós að maðurinn sem fannst lát- inn í Fossvogi í Kópavogi á sunnudagsmorgun hafi látist af slysförum. Maðurinn féll um þrjá metra niður í fjöruna og lést af áverkum sínum. Gangandi vegfarendur fundu manninn sem var látinn þeg- ar að var komið. Hann var 61 árs. Vöknuðu við óboðinn gest Fjölskylda í Ásgarði í Reykja- vík vaknaði í fyrrinótt við að drukkinn og ókunnugur maður var kominn inn í íbúð hennar. Þegar sá drukkni varð var við hreyfingu í íbúðinni lagði hann á flótta og hvarf út í nóttina. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra lögreglunnar er mað- urinn ófundinn en íbúðin sem maðurinn fór inn í reyndist hafa verið ólæst. Rafmagnsbruni í Hnífsdal Lögreglan á Ísafirði hefur lokið rannsókn á upptökum bruna í einbýlishúsi í Hnífsdal í gærmorgun. Er það mat lögreglu að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni í timburmillivegg. Þeg- ar slökkvilið kom á vettvang var mikill eldur í húsinu. Íbúar voru ekki heima þegar eldurinn kom upp en þeir höfðu farið til vinnu og í skóla um klukkustund áður en eldsins varð vart. Nágrannar urðu varir við reyk sem lagði frá húsinu og höfðu samband við Neyðarlínuna í kjölfarið. Tölu- vert tjón varð á húsinu, sem var út timbri, vegna elds og reyks. Lögreglan rannsakar enn lát Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur: Þrír handteknir vegna morðsins Þrír menn hafa verið handteknir í smábænum Cabarete í Dóminíska lýðveldinu vegna morðsins á Hrafn- hildi Lilju Georgsdóttur. Lögreglan telur að um ástríðuglæp sé að ræða, en í gærkvöldi varðist lögreglan frétta af málinu. Stofnaður hefur verið styrktar- reikningur til handa fjölskyldu Hrafn- hildar. Harmur fjölskyldunnar og vina er gríðarlegur. „Það er ekkert verra en að missa svona yndislega og lífsglaða manneskju og ætti enginn að þurfa að hafa áhyggjur af neinu öðru en að komast í gegnum daginn,“ stendur skrifað á bloggsíðu hennar. Yfir tut- tugu manns hafa vottað fjölskyldu hennar og vinum samúð sína á blogg- síðu hennar, estrella.bloggar.is. Hrafnhildur fannst látin á baðher- berginu í íbúð sinni á Extreme-hótel- inu í Cabarete, þar sem hún gegndi stöðu rekstrarstjóra. Krufning leiddi í ljós að hún hefði látist af þungu höf- uðhöggi, en einnig hafði hún ver- ið stungin með eggvopni í öxl, hönd, bringuna og höfuðið. Talið er að morðið hafi verið framið á sunnudag- inn, en hún fannst síðdegis á mánu- dag. Cabarete er í Puerto Plata-hérað- inu á norðurströnd Dóminíska lýð- veldisins. Svæðið er vinsælt meðal ferðamanna og bjóða Heimsferðir upp á dvöl í um hálftíma fjarlægð frá Cabarete. Á vefsíðu Heimsferða er bænum lýst sem „skemmtilegum smábæ“. Mikið er af ungu fólki í bæn- um og er hann frábrugðinn íslenska ferðamannasvæðinu að því leytinu til. Margir veitingastaðir og barir eru við ströndina. Bærinn er þekktur fyr- ir mikið sjóbrettalíf og stunda marg- ir þar sjósport sér til afþreyingar. Þó nokkrir Íslendingar hafa dvalið í Cab- arete. Lögreglan í Dóminíska lýðveldinu segir rannsókn málsins vera á við- kvæmu stigi. Visir.is greindi frá því í gærkvöldi að meðal hinna handteknu í málinu væri kærasti Hrafnhildar. Það fékkst þó ekki staðfest hjá lög- reglu þegar eftir því var leitað í gær- kvöldi. Hrafnhildur Lilja styrktarreikningur fyrir fjölskyldu hennar hefur reikningsnúmerið 0537- 14-609973 og kennitöl- una 081079-5879.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.