Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Page 12
fimmtudagur 25. september 200812 Fréttir Paulson vill ráða öllu einn Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, fær algjört vald yfir öllum björgunaraðgerðum í efnahagsmálum samþykki Banda- ríkjaþing tillögur hans. Paulson kynnti á dögunum hugmyndir sín- ar um innspýtingu metfjárhæða in í bandarískt fjármálakerfi til að auðvelda mönnum baráttuna við kreppuna. Nú er hins vegar kom- ið í ljós að hann vill ekki aðeins dæla fé út í atvinnulífið. Hann vill líka ráða öllu um hvaða aðgerðir er ráðist í og að hvorki sé hægt að bera það undir aðrar ríkisstofnanir, þing né dómstóla. Barneignir utan hjónabands eru mikið áhyggjuefni segir breski próf- essorinn John Ermisch við Institute of Social and Economic Research. Ef sama þróun og átt hefur sér stað und- anfarin ár heldur áfram má búast við því að um miðjan næsta áratug fæðist meirihluti breskra barna utan hjóna- bands. Í dag fæðast 55 prósent barna í norðausturhluta Englands utan hjónabands. Hlutfallið er litlu lægra í Wales þar sem 52 prósent foreldra eru ógift þegar börn þeirra fæðast. Nú er svo komið að 44 prósent barna fæðast utan hjónabands og er það hátt í sex- falt hærra hlutfall en árið 1971 þegar aðeins tólfta hvert barn fæddist utan hjónabands. Ermisch segir að börn sem alast upp án þess að búa með báðum for- eldrum séu mun líklegri til að lenda í vandræðum síðar á lífsleiðinni en þau börn sem alast upp hjá báðum for- eldrum sínum. Börn sem fæðast inn á heimili þar sem foreldrarnir eru gift- ir búa að öllum líkindum hjá báðum foreldrum þar til þau flytjast að heim- an. Slík börn búa að meðaltali 1,6 ár af fyrstu sextán æviárunum hjá einstæðu foreldri. Ef foreldrarnir eru einung- is í sambúð þegar barn fæðist en ekki giftir verja börnin hins vegar tæplega þriðjungi þessa fyrsta hluta ævi sinnar með aðeins öðru foreldri sínu. Fæðist barn hins vegar einstæðu foreldri má búast við að það búi á heimili með að- eins einu foreldri helminginn af fyrstu sextán æviárum sínum. Þetta skilar sér í lakari einkunn- um, verri heilsu og takmarkaðri at- vinnumöguleikum þegar barnið vex úr grasi, segir Ermisch og byggir það á opinberum tölum. Bretar hafa áhyggjur af því að fleiri eignast börn utan hjónabands: Sífellt fleiri lausaleiksbörn InterPol tIl varnar fInnsku lögreglunnI Í kjölfar morðanna í Jokela-framhaldsskól- anum í Tuusula í Finnlandi í nóvember var ákveðið að hækka aldur til byssueign- ar úr fimmtán árum í átján, sú ákvörðun hefur ekki orðið að veruleika. Atburðirnir í Tuusula endurtóku sig á mánudaginn í iðnskóla í Kauhajoki og sleginn finnskur almenningur spyr hvort ekki hefði verið hægt að komast hjá því. Lögreglan hefur verið sökuð um handvömm fyrir að hafa ekki handtekið Matti Saari þegar hann var yfirheyrður sólarhring áður en hann varð tíu skólafélögum sínum að bana. Sú spurning brennur á mörgum af hverju finnska lögreglan gerði ekki neitt í ljósi myndskeiðsins sem Matti Saari setti á YouTube og hún hefur verið sökuð um handvömm fyrir að hafa ekki í það minnsta gert skotvopn hans upptæk. Það er gott að vera vitur eftir á og í ljósi þeirra atburða sem skóku Kauha- joki innan við sólarhring eftir að lög- reglan yfirheyrði Saari vegna mynd- brotsins segja margir að ákvörðun lögreglunnar hafi verið afdrifarík. Atburðunum í Kauhajoki svipar óhugnanlega mikið til skotárásar í Tuusula í Finnlandi fyrir um tíu mán- uðum. Þá gekk Pekka-Eric Auvinen, átján ára nemandi við skóla í Jokela, berserksgang vopnaður skotvopnum og þegar yfir lauk lágu níu manns í valnum; átta voru myrt af Auvinen, sem síðan beindi byssunni gegn sér. Auvinen hafði, líkt og Saari, sett yfir- lýsingu á YouTube þar sem ýjað var að væntanlegum aðgerðum af hans hálfu. Eftir á að hyggja er engu líkara en Saari hafi horft til Auvinens með útfærslu að skotárásinni. Báðir settu myndskeið á YouTube, báðir gáfu upp fæðingardag sinn og báðir voru sjúklega hrifnir af fjölamorðunum sem framin voru í Columbine-skól- anum í Bandaríkjunum árið 1999. Matti Juhani Saari og Pekka-Eric Au- vinen höfðu gilt byssuleyfi. Lögreglumenn ekki ófreskir Nú hefur yfirmaður alþjóðalög- reglunnar, Ronald Noble, stigið fram fyrir skjöldu finnsku lögreglunni til varnar, og að hans mati er létt að líta til baka, en ómögulegt að segja til um atburði sem ekki hafa gerst. „Það er ósanngjarnt að ætla að lögreglan sé ófresk líkt og í kvikmyndinni Minority Report og að hún geti sagt af eða á um hvort sá sem gerir myndband ætli sér að framkvæma ódæði í anda mynd- bandsins,“ sagði Noble. Kvikmyndin sem Noble vísar til er frá 2002 og var leikstýrt af Steven Spielberg og fjallar um lögreglusveit sem getur séð fyrir glæpi áður en þeir eru framdir. „Fólk mun velta vöngum vegna málsins. Vitandi að hann [Matti Sa- ari] myrti þetta fólk, horfir fólk á myndbandið – og það er enn óhugn- anlegra. Og því spyr fólk: „Af hverju sleppti hún [lögreglan] honum? Af hverju tók hún hann ekki fastan? Af hverju var hann ekki settur á geðdeild til skoðunar í þrjá daga?““ sagði Ron- ald Noble. Vopnaleyfi afturkallað Skotvopnaeign meðal borgara í Finnlandi er með þeirri mestu í heimi og skotvopnalög þar í landi með þeim rýmstu sem þekkjast í Evr- ópu. Fimmtán ára krakkar geta fengið byssuleyfi og byssu til að æfa skotfimi eða veiða. Áform ríkisstjórnarinnar um að herða skotvopnalögin, í kjöl- far fjölamorðanna sem áttu sér stað í Jokela-framhaldsskólanum í Tuus- ula í nóvember á síðasta ári, hafa enn ekki orðið að veruleika. Ef þau áform ganga eftir mun aldur til byssuleyfis hækka úr fimmtán árum í átján. Tarja Halonen, forseti Finnlands, og forsætisráðherrann, Matti Van- hanen, eru sammála um nauðsyn hertra laga í ljósi fjöldamorða í tveim- ur skólum á innan við einu ári. Van- hanen viðraði í gær þá skoðun sína að til álita kæmi að banna skamm- byssur í einkaeign: „Hvað varðar skammbyssur er það einfalt mál, við verðum að íhuga hvort þær skuli vera aðgengilegar almenningi. Mín skoð- un er sú að þær tilheyri skotæfinga- svæðum.“ Að mati Ronalds Noble gæti hluti lausnarinnar falist í ákvæði sem heimilaði lögreglunni að afturkalla byssuleyfi þeirra sem sýndu einhver merki þess að öðrum stafaði hætta af þeim. Þá hefðu lyktir í Kauhajoki orðið aðrar, sagði Noble, og lýsti at- burðarásinni eins og hún hefði getað orðið þegar Matti Saari var yfirheyrð- ur af lögreglunni: „Þá getur lögregl- an sagt: „Okei, við höfum ekki næga ástæðu til að handtaka þig, en við munum vissulega leggja hald á skotvopn þín.““ Unnið undir ásökunum um handvömm Með skugga rannsóknar á ákvörðunum sínum eftir yfir- heyrsluna á Matti Saari vann finnska lög- reglan í gær við að bera kennsl á brunnin lík fórn- arlamba Saaris. Auk þess að vera vopn- aður Walther P22-skammbyssu, sem hann sýndi í myndskeið- inu á YouTube, hafði hann í far- teskinu bensínsprengjur sem hann notaði til að kveikja í fórnarlömbum sínum. Annars staðar í Finnlandi var fólk í áfalli og dagblöð endurspegl- uðu þær spurningar sem brunnu á fólki. Eitt helsta dagblað Finn- lands, Helsingin Sanomat, skipti út auglýsingu, sem á fastan sess á forsíðunni, fyrir ljós- mynd af konu sem kveikir á kerti til minningar fyrir framan skólann. Einnig er mynd af Matti Saari og fyrir ofan stendur „Hví?“ Í leiðara blaðsins segir að ekki sé hægt að skella skuldinni á netið, en það sé réttmætt að spyrja að hve miklu leyti netið næri dökkar hliðar mannlegs eðlis. Finnska þjóðin telur um fimm milljónir íbúa, skráð skotvopn eru um 1,6 milljónir og almenn skotvopna- eign er með þeirri mestu í heiminum. „Finnland er norðlægt land og býr að víðfeðmri náttúru og veiðar eru al- gengt áhugamál, og að sjálfsögðu eru þúsundir manna sem stunda þær löglega. Því má reikna með að stór hluti fólks eigi mörg skotvopn,“ sagði Tarja Halonen. Þrátt fyrir mikið magn skotvopna í einkaeign er glæpatíðni tiltölulega lág í Finnlandi. KoLbeinn þorSteinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is „Og því spyr fólk: „Af hverju sleppti hún [lögreglan] honum? Af hverju tók hún hann ekki fastan? Af hverju var hann ekki settur á geðdeild til skoðunar í þrjá daga?““ Hví? finnsk dagblöð endurspegluðu hugsanir finnsku þjóðarinnar. MYnD AFP Hjúskaparstaða foreldra mikilvæg ermisch segir að börn einstæðra og ógiftra foreldra komist mun verr af en börn hjóna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.