Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Side 27
fimmtudagur 25. september 2008 27Vesturland Brauð og kökur í miklu úrvali Verið velkomin! Harðarbakarí - Kirkjubraut 54 - 300 Akranes - Sími: 431 2399 H ild ur H lín Jó ns dó tt ir / h ild ur @ dv .is synir hafi verið ráðnir. Þeir hafi gef- ið upp ákveðin merki um að áhugi væri hjá þeim að snúa aftur til liðs- ins en ákvörðun um ráðningu þeirra hafi ekki verið tekin fyrr en Guðjón var farinn. „Það voru fleiri kostir í stöðunni en þetta var sá kostur sem við töldum gáfulegastan. Þeir höfðu unnið kraftaverk áður árið 2006 þeg- ar þeir sneru gengi liðsins við. Sem leikmenn hafa þeir einnig burði til að breyta stíl liðsins og auka mönn- um sjálfstraust. Það tókst ekki að breyta stöðunni að þessu sinni en það er meiri bragur á leik liðsins.“ Bjarni fer og Guðjón tjáir sig Það olli mikilli reiði meðal stuðn- ingsmanna að Bjarni Guðjónsson, fyrirliði liðsins, skyldi ganga til liðs við erkifjendurna í KR, en ekki síð- ur ummæli sem Guðjón, faðir hans, hafði uppi í samtali við útvarp KR- inga. Var hann þar spurður um hvað hefði farið úrskeiðis hjá ÍA og lát- ið hafa eftir sér að „maður býr ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít“ sem margir litu á sem aðför að leik- mönnum liðsins. Gísli segir það til- viljun eina að Bjarni skuli hafa yfir- gefið herbúðir liðsins á sama tíma og Guðjón fór. „Félagaskiptaglugg- inn hafði verið opinn og var að lok- ast, þrjú félög höfðu lýst yfir áhuga á að fá hann til sín. Það var vilji okk- ar að halda Bjarna, en niðurstaðan varð sú eftir að menn settust niður að hann leitaði á önnur mið. Þannig er fótboltinn, leikmenn og þjálfarar koma og fara. Það sem er sérstakt í þessu máli er auðvitað að hann er sonur þjálfarans sem var að fara og einn af burðarásum liðsins, það er ekki oft sem leikmenn af þeim gæð- um færi sig milli liða á miðju sumri.“ Hvað athugasemd Guðjóns varð- ar segir Gísli hana hafa skiljanlega farið í margan stuðningsmann ÍA, en sem slík hafi orð hans ekki truflað stjórnina mikið, oft þétti hópurinn raðirnar við slíkt. Og það var reynt. Gífurlegt áfall að falla Þegar Gísli er beðinn um að taka saman tímabilið segir hann það fyrst og fremst markast af gríðarlegum vonbrigðum í ljósi þess að liðið hafi fallið. „Þótt öll merki hafi verið á lofti um að þetta gæti gerst var bragðið mjög beiskt. Skaginn er ekki vanur að standa í fallbaráttu eða að ná ekki helstu markmiðum, þannig að þetta var verulegt áfall. Það þýðir ekki að horfa framhjá því að þótt lítið hafi fallið með okkur hvort heldur sem er hjá dómurunum eða annað, stend- ur eftir að liðið spilaði ekki vel. Það á enginn áskrift að efstu deild. Við þökkum fyrir þegar menn segja að þeir vilji hafa Skagann í efstu deild, en ég segi jafnframt að það á eng- inn sæti í efstu deild nema að verð- leikum. Þar vorum við undir pari og þess vegna erum við í þessari stöðu,“ segir Gísli. Framtíðin í fyrstu deild Gísli segir undirbúningsvinn- una fyrir næsta tímabil vera vel á veg komna og hafna fyrir nokkru. „Á þessum dökku dögum verður samt að segja að birtan í því er sá stuðn- ingur sem liðið hefur fengið á síð- ustu vikum. Það var mjög gott að finna það. Við horfum líka á það að við erum með unga stráka sem eru að verða fótboltamenn, 2. flokkur stóð sig með mikilli prýði þar sem Ólafur og Steinar Adolfssynir unnu mikið og gott verk sem þjálfarar,“ segir Gísli og bætir við að stefnan sé tekin rakleiðis upp aftur, án þess þó að vanmeta 1. deild. Beint upp aftur Gísli segir að ekki verði miklar breytingar á leikmannahópi Skaga- manna þrátt fyrir fallið þar sem meirihluti núverandi leikmanna sé samningsbundinn til lengri tíma. Einhverjir af eldri leikmönnum liðs- ins munu væntanlega leggja skóna á hilluna eftir langa og dygga þjón- ustu. Mál þeirra skýrast eftir helgi. Gísli segir að viðræður standi yfir um að Arnar og Bjarki haldi áfram með liðið, enda sé áhugi beggja að svo verði. Verið sé að gera ákveðnar ráðstafanir varðandi það að tryggja þeim nauðsynleg leyfi og réttindi. „Stefnan er sett á að ná samning- um við þá bræður auk Steinars og Ólafs Adolfssona og Þórðar Þórð- arsonar, sem er með öll réttindi til þjálfunar í öllum deildum. Þetta er það fimm manna teymi sem við ætl- um að treysta á fyrir meistaraflokk og annan flokk. Og teljum að við séum með toppmenn í höndunum til að fylgja þessu eftir. Þó svo að við séum í fyrstu deild verður því ekki mætt öðruvísi en að við ætlum að vera með lið á Landsbankadeildar- mælikvarða. Og stefnan er sett beint upp aftur, það er ljóst. Það er þó ekki sjálfgefið, enda góð lið í fyrstu deild. Skaginn fer ekki niður í fyrstu deild til að vera þar. Við sameiginlega skuldum samfélaginu það eftir sum- arið,“ segir Gísli Gíslason, formaður ÍA, bjartsýnn að lokum. mikael@dv.is Knattspyrnulegt gjaldþrot á sKaganum Mikið áfall að falla gísli gíslason segir fótboltasumarið hafa verið vonbrigði og fall um deild áfall.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.