Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Blaðsíða 40
fimmtudagur 25. september 200840 Vesturland Við hjónin keyptum reksturinn hér í Baulunni þegar ég hafði ver- ið rekinn af togara sem ég var stýri- maður á heima í Grundarfirði,“ segir Kristberg Jónsson verslunarmaður. Kristberg, sem jafnan er kallaður Kibbi, hefur staðið vaktina í Baul- unni með stuttum hléum frá árinu 1999. „Ég velti því aldrei fyrir mér af hverju ég missti plássið á sjónum. Ég var þegar byrjaður að svipast um eft- ir vinnu, þannig að þarna kom eitt- hvert tækifæri til mín,“ heldur hann áfram. Kibbi tekur á móti blaðamanni í bílskúrnum í nýja húsinu í Borgar- firðinum. Þetta er ekki hefðbund- inn bílskúr, heldur einhvers konar musteri dellukarlsins. „Það er varla hægt að segja að hér hafi nokkurn tímann komið bíll inn fyrir dyr.“ Inni er þó mótorfákurinn, sem er í aug- ljósu uppáhaldi, ásamt byssuskáp og nokkru magni af alls kyns veiði- tólum. Á hárréttum tíma „Fyrri eigandi var kominn með reksturinn í þrot. Við gátum í raun- inni keypt þrotabúið og nutum að- stoðar Kristjáns Snorrasonar, sem þá var útibússtjóri Búnaðarbankans í Borgarnesi. Kristján er alveg fanta- góður drengur, jafnvel þótt hann sé framsóknarmaður,“ heldur Kibbi áfram. Hann hallast að því að þau hjón- in hafi eignast söluskálann á hár- réttum tíma. Hvalfjarðargöngin hafi verið opnuð fyrir umferð árinu áður. „Fróðir menn eru sammála um að umferð ferðamanna um Borgarfjörð- inn og Vesturlandið hafi náð nýjum hæðum eftir tilkomu ganganna, en þó ekki fyrr en í kringum árið 2000.“ Samningurinn um kaupin á Baul- unni gekk saman á réttri viku. Þau hjónin fluttu svo snarlega inn í sum- arbústað sem þau áttu í næsta ná- grenni. „Frúin er ættuð héðan úr sveitinni og við vorum búin að koma okkur upp sumarhúsi sem hentaði ágætlega. Þar bjuggum við svo í sjö ár, þangað til við byggðum okkur þetta hús í hitteðfyrra,“ segir Kibbi. Endalaus vakt „Reksturinn hefur gengið alveg ágætlega hjá okkur. En þetta er þess eðlis að maður verður alltaf hreint að standa vaktina sjálfur. Það má aldrei líta af þessu.“ Hjónin hafa því skipt á milli sín vöktunum í þau níu ár sem þau hafa rekið staðinn. Kibbi segir þó að með nokkurri skipulagningu hafi hann náð að sinna áhugamálunum inni á milli. „Ég kemst hæglega í gæsaveiði hérna í næsta nágrenni sem er ágætt. Ég get þá skroppið í morgunveiði ef frúin er á þeirri vaktinni.“ Mótorfákinn dregur svo Krist- berg reglulega fram. Hann fagnaði því meðal annars í vor að hafa verið reyklaus í ár með því að aka hringinn í kringum landið, nánast í einum rykk. „Ég get ekki alveg gefið nákvæmlega upp hve lengi ég var. Ég var lagður af stað klukkan sex að morgni hérna frá Baulunni. Ég var svo kominn aft- ur heim áður en dagurinn var liðinn. En ég stoppaði bæði sjaldan og stutt í einu. Þetta var ljúfur túr.“ Frá Grundarfirði Kibbi er fæddur og uppalinn í Grundarfirði í átta systkina hópi. „Mamma átti okkur öll á tólf ára tímabili og var hætt þessu þegar hún stóð á þrítugu. Þetta er glæsilegur systkinahópur að sjá, þegar maður skoðar myndir. Systurnar giftust og fluttu hingað og þangað um landið. Þegar ég flutti frá Grundarfirði, árið 1999, var staðan sú að allir bræðurn- ir voru enn fyrir vestan.“ Kibbi gekk í Stýrimannaskólann og stundaði sjómennsku af krafti. „Ég var á ísfisktogara. Við veiddum fyrst og fremst bolfisk og seldum allt „Fyrir vestan varð ég svo sósíalisti, nánast um leið og ég hafði ald- ur til.“ Verslunareigandinn, veiðimaðurinn og sjómaðurinn fyrrverandi Kristberg Jónsson í Norðurárdal tekur á móti við- skiptavinum sem koma á þyrlu og býður upp á pylsur. Hann furðar sig á því að Davíð Oddsson sé nánast orðinn fullkomlega samstíga vinstri-grænum í viðhorfum sínum til viðskiptamanna og Evrópumála. Kibbi segir frá. Í musteri dellukarlsins Systkinahópurinn Kristberg til vinstri, svo Laufey og Ásrún. Vilborg er í miðju og Ágúst við hlið hennar. Neðst eru rakel, Heimir og svala. Fákurinn mótorhjólið fær að dvelja í skúrnum með sérstakri undanþágu. Kibbi ók hringinn í vor. Í einum rykk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.