Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Side 50
Linda Björk Guðrúnardóttir, verk-
efnisstjóri hjá Akraneskaupstað, hef-
ur verið önnum kafin síðustu vikur í
tengslum við komu 29 palestínskra
flóttamanna til landsins. Fjölmiðl-
ar, jafnt innlendir sem erlendir,
hafa sýnt flóttamönnunum mikinn
áhuga og segir Linda Björk að jafnvel
þótt ágangurinn hafi á köflum verið
nokkuð mikill, þá hafi það verið já-
kvætt fyrir konurnar að fá tækifæri til
að segja sögu sína. „Við undirbjugg-
um þær fyrir þetta á Heathrow-flug-
vellinum í London. Við spurðum
konurnar hvort þeim væra sama þó
fjölmiðlar tækju myndir þegar þær
kæmu hingað til lands. Þær sam-
þykktu það og þær hafa vijlað tala
því þær hafa aldrei haft rödd fyrr en
nú. Jákvæði kosturinn er að þær eru
að fá vettvang til að tjá sig og koma á
framfæri upplýsingum sem hafa ekki
fengið hljómgrunn áður,“ segir hún.
Linda Björk bendir einnig á að
fjölmiðlar séu vettvangur til að eyða
fordómum og hingað til hafi fjöl-
miðlaumfjöllunin verið mjög já-
kvæð.
Ánægð þrátt fyrir veðrið
Flóttamennirnir hafa þegar kom-
ið sér ágætlega fyrir á Akranesi, á
þeim tæpu þremur vikum sem liðn-
ar eru síðan þeir komu til hingað
til lands. Fulltrúar Rauða krossins
höfðu unnið í sjálfboðavinnu við að
standsetja íbúðir fyrir fjölskyldurnar
og segir Linda Björk að þær séu mjög
huggulegar. Aðspurð um hvernig
fólkinu hafi gengið að aðlagast líf-
inu á Íslandi svarar hún: „Ég held
að þeim líki mjög vel. Þeim finnst
Íslendingar reyndar tala mjög mik-
ið um veðrið. Ein konan sagði fyrir
nokkrum dögum að hún ætlaði ekki
út úr húsi fyrr en veðrið skánaði. Þá
svaraði kona hér í bænum að hún
færi þá bara ekkert út. Svona sé ein-
faldlega veðrið.“
Rigning og úfinn sjór eru mik-
il viðbrigði fyrir fólk frá Mið-Aust-
urlöndum, en það er ýmsu vant eft-
ir síðasta bústað. „Þau höfðust við í
tjöldum í flóttamannabúðum í eyði-
mörkinni á landamærum Íraks og
Sýrlands. Þar fer hitinn upp í 50 stig
og svo niður fyrir frostmark á vet-
urna. Sumar konurnar eru veikar í
öndunarfærunum eftir sandstorm-
ana sem þar geisa.
Mikið lagt á fólkið
Flóttamennirnir hafa allir geng-
ist undir hefðbundna læknis- og
tannlæknisskoðun eftir komuna til
landsins. Þá eru börnin, sem sum
eru á leikskólaaldri, þegar kom-
in í aðlögun á leikskóla í bænum.
„Það er heilmikið sem lagt er á þau
þessar fyrstu vikur,“ segir Linda
Björk. Þrátt fyrir að það geti verið
erfitt að hefja nýtt líf í nýju landi
er Linda Björk ánægð með hversu
vel hefur tekist til að búa fólkinu til
betra líf.
„Fyrirtæki hafa hjálpað okk-
ur með því að gefa afslátt af raf-
magnstækjum og húsbúnaði. Síð-
an höfum við einnig fengið gefins
sófa og húsgögn í íbúðirnar. Það
hefur gengið mjög vel að stand-
setja allt fyrir fólkið.“
fimmtudagur 25. september 200850 Vesturland
„Ein konan sagði fyrir nokkrum dögum að hún
ætlaði ekki út úr húsi fyrr en veðrið skánaði.“
„Þær hafa aldrei haft
rödd fyrr en nú“
Linda Björk Guðrúnardóttir, verkefnisstjóri hjá Akraneskaupstað, hjálpar palestínsku flóttamönnunum að aðlagast
lífinu á Íslandi. Hún segir þá miklu fjölmiðlaathygli sem fólkið hefur fengið hafa verið til góðs. Þær hafi aldrei haft tæki-
færi til að segja sögu sína áður. Aðlögunin hefur gengið vel, en íslenska veðurfarið hefur komið fólkinu nokkuð á óvart.
Linda Björk Guðrúnardóttir
„Þau höfðust við í tjöldum í
flóttamannabúðum í eyðimörkinni
á landamærum Íraks og sýrlands.“