Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Síða 52
BAULAN Veitingarstaðurinn Baulan á sínum stað við þjóðveg 1, aðeins 20 km norður frá Borgarnesi. Kjörinn áningarstaður fyrir fjölskylduna og ferðamanninn. Eldsneyti á sjálfsafrgreiðsluverði með þjónustu. Erum með mikið úrval af vörum fyrir grillið. Bílavörur í góðu úrvali, veiðivörur, garðáhöld, leikföng, matvörur, veitingar s,s pizzur, hamborgarar, samlokur, steikur, kótilettur og margt fleira. Ekki má gleyma hinum vinsælu SS pylsum og kjörísnum. Og rúsínan í pylsuendanum - Við erum með afgirtan garð þar sem fjölsky- ldan getur notið sín. Verið hjartanlega velkomin, tökum á móti ykkur með bros á vör. :) Starfsfólk Baulunnar fimmtudagur 25. september 200852 Vesturland „Þetta snýst um að kenna fólki að vera svolítið sjálfbjarga í eldhúsinu,“ segir Dóra Svavarsdóttir, matreiðslu- meistari og eigandi Á næstu grösum, sem ætlar að halda matreiðslunám- skeið í grunnskólanum í Borgarnesi 6. október. Námskeiðið er á vegum Símenntunarmiðstöðvar Vestur- lands og er ein kvöldstund. „Námskeiðið, sem ber heit- ið Grænmetisfæði, er fjölbreyttara en flesta grunar og er einmitt til að sýna fólki nýjar og ferskar hugmynd- ir. Ég mæti með fullt af góðu hráefni og mikið úrval frábærra uppskrifta sem fólk getur valið úr. Það mun því væntanlega enginn elda það sama,“ segir Dóra og bendir á að námskeið- ið sé eingöngu verklegt, þannig læri fólk mest. Að sögn Dóru er alltaf að verða algengara að fólk eignist maka, tengdasyni eða tengdadætur sem eru grænmetisætur. Þetta gerir fólki oft svolítið erfitt fyrir og því tilvalið að skella sér á námskeið sem þetta og fá nýjar hugmyndir að hollu fæði. „Það sem ég legg hvað mesta áherslu á er meðlæti, við borðum jú fisk, kjöt og fleira mjög reglulega en það sem við erum orðin leið á er meðlætið. Möguleikarnir eru endalausir,“ legg- ur Dóra áherslu á. Dóra hefur haldið fjölda nám- skeiða bæði í Reykjavík sem og úti á landi. Hún viðurkennir að oft myndist sérstök stemning úti á landi. „Þarna kemur fólk á öllum aldri saman sem hefur ákveðið að fjárfesta í þessu kvöldi og gera eitthvað fyrir sjálft sig. Ekki sakar að oft þekkist fólk innbyrð- is og þá verður þetta allt svo létt og skemmtilegt.“ Þegar allir hafa eldað og prófað sig áfram í eldhúsinu ber- um við alla réttina fram sem geta orð- ið allt upp í tuttugu og höldum helj- arinnar matarboð,“ segir Dóra hress að lokum og minnir áhugasama á að skráning á námskeiðið fer fram á si- menntun.is kolbrun@dv.is Fjölbreyttara en flesta grunar Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari og eigandi Á næstu grösum, ætlar að gefa fólki nýjar hugmyndir að hollu meðlæti og grænmetisréttum á matreiðslunámskeiði í Borgarnesi. Góð stemning úti á landi dóra svavarsdóttir matreiðslumeistari segir sértaka stemningu myndast á mat- reiðslunámskeiðum hennar úti á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.