Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Qupperneq 54
„Ef við getum glatt eitt hjarta
erum við glaðir,“ segir Guðberg-
ur Garðarsson, en hann og In-
ácio Pacas da Silva Filho, betur
þekktir sem Beggi og Pacas, hafa
í þessari viku ferðast um Vestur-
land og haldið fyrirlestra á vegum
Símenntunarmiðstöðvar Vestur-
lands. Þeir Beggi og Pacas slógu
eftirminnilega í gegn í þáttunum Á
hæðinni sem sýndir voru á Stöð 2
síðasta vetur. Þeir hafa frætt íbúa
Vesturlands um hamingjuna, kær-
leikann, ástina og jákvæðnina sem
þeir segja að sé svo mikilvæg í allri
þeirri neikvæðu umræðu sem ein-
kennt hefur þjóðfélagsumræðuna
síðustu misseri.
Finna jákvæðnina
„Við eigum það til að gleyma
sjálfum okkur, hamingjunni og
kærleikanum sem er svo mikil-
vægur. Við höfum öll sól í hjart-
anu sem kemst ekki alltaf út og
við erum að hjálpa fólki að finna
þessa leið,“ segir Beggi. Aðspurð-
ur hvernig það hafi komið til að
þeir ákváðu að halda fyrirlestra
um þetta efni fyrir íbúa Vestur-
lands segir Beggi að Símenntunar-
stöð Vesturlands hafi beðið þá um
það. „Ég tala alltaf út frá hjartanu
við Pacas og það hefur komið okk-
ur langt. Við höfum verið að búa
til þetta kerfi og erum að reyna að
kenna fólki að lifa í núinu. Það veit
enginn hvað framtíðin ber í skauti
sér. Umfram allt er þetta kennsla í
jákvæðni sem er lykillinn að ham-
ingjunni.“
Vesturlandsbúar móttækilegir
En þeir Beggi og Pacas eru ekki
eingöngu að boða hamingjuboð-
skap því þeir kenna gestum fyrir-
lestranna að elda hollan og góðan
mat. „Jú, mikið rétt. Við reynum
að kenna fólki að elda út frá hjart-
anu. Við höfum til dæmis verið að
vinna með kjúklingabaunir, döðl-
ur, dressingar, pasta og fleiri nátt-
úrulega hluti. Það eru svo margir
sem ekki þora að prófa nýja hluti.
Við leyfum fólki að finna hvernig
það er að skapa matinn og hann
verður líka betri fyrir vikið,“ segir
Beggi og bætir við að íbúar Vest-
urlands hafi verið mjög móttæki-
legir fyrir þessum nýjungum. „Við
höfum fengið frábærar viðtökur
og íbúar í þessum landshluta hafa
verið tilbúnir að prófa nýja hluti.“
Framandi sviðakjammar
Það var á mánudagskvöld-
ið sem þeir riðu á vaðið með fyr-
irlestri í Búðardal. Beggi segir að
ferðin þangað hafi veitt honum
sérstaklega mikla ánægju vegna
þess að Pacas sá svolítið sem
hann hafði aldrei séð. „Ég er alltaf
að reyna að sýna honum eitthvað
framandi við Ísland en hann seg-
ist alltaf hafa séð allt. Ég náði hon-
um samt þarna í Búðardal því við
sáum þegar bændur voru að svíða
sviðakjamma. Þetta þótti hon-
um mjög framandi og hann hafði
aldrei á ævinni séð neitt þessu líkt.
Við tókum myndir af þessu og þær
fara beint til fjölskyldu Pacasar í
Brasilíu. Þetta er nokkuð sem mér
fannst mjög gjöfult og jákvætt,“
segir Beggi og endar samtalið á
einfaldan hátt. „Ef við getum glatt
eitt hjarta erum við glaðir.“
einar@dv.is
fimmtudagur 25. september 200854 Vesturland
Hollur og góður heimilismatur í hádeginu:
Réttur dagsins
Súpa og brauð
Salatbar
Pizza
Keyrum einnig út matarbakka til fyrirtækja í hádeginu.
Tökum að okkur veislur fyrir öll tilefni (stórar sem smáar)
Pinnaveislur
Brúðkaupsveislur
Jólahlaðborð
Þorrahlaðborð
Árgangsmót..ofl
Fortuna - Mánabraut 20 - Sími 431-3737
fortuna@simnet.is
Kenna fólki að
finna hamingjuna
Þeir Guðbergur Garðarsson og Inácio Pacas hafa ferðast um Vesturland undandarna daga og haldið fyrirlestra. Þeir
kenna fólki meðal annars að finna hamingjuna og jákvæðnina sem er svo mikilvæg í allri neikvæðu þjóðfélagsumræð-
unni sem einkennt hefur síðustu misseri. Beggi segir að ferðin um Vesturland hafi veitt honum sérstaka ánægju
Hamingjusamir Lykillinn að hamingjunni er
jákvæðni og bjartsýni. Þeir hafa ferðast um
Vesturland undanfarna daga þar sem þeir hafa
kennt íbúum að finna hamingjuna, bjartsýnina
og hvernig eigi að láta sólina skína úr hjartanu.