Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Blaðsíða 58
fimmtudagur 25. september 200858 Vesturland „Við erum alltaf með opið alla daga og bæði Brák og Mr. Skallagrímsson verða áfram hjá okkur fram eftir vetri enda ekkert lát á aðsóknina á þær. En við erum að sjálfsögðu líka að und- irbúa nýjar sýningar sem eru enn á vinnslustigi,“ segir Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands. Sigríður og eiginmaður hennar Kjartan Ragnarsson opnuðu Land- námssetrið í maí árið 2006 og er ætíð mikið um að vera hjá þeim hjónum. „Við seldum húsið okkar í Reykja- vík og keyptum okkur hús hér í Borg- arnesi og það er æðislegt. Við kunn- um mjög vel við okkur hér og okkur finnst þetta land tækifæranna. Hér er mjög margt spennandi að gerast og við búin að kynnast frábæru fólki.“ Sérsniðnar heimsóknir á Landnámssetrið Mikið er um það að fyrirtæki komi í hópeflisferðir á Landnámssetrið og skelli sér meðal annars í vinsælan ratleik um svæðið. Að sögn Sigríð- ar er lögð áhersla á það að sérsníða heimsóknir eftir þörfum hópanna. „Fólk sem er til dæmis að skipuleggja vinnustaðaferðir getur sérsniðið þær svolítið eftir sínum þörfum. Ef fólk vill fá leiðsögn getur það fengið ým- ist hálftíma eða klukkutíma leiðsögn en það er alltaf best að hafa bara samband við okkur og láta okkur vita hvað fólk vill gera og þá getum við vonandi orðið við óskunum. Svo er líka einstaklega skemmtilegt um- hverfið í kringum Landnámssetrið. Það er til dæmis stutt að fara í sund og er gaman að flétta það inn í ferð- ina.“ Áhersla lögð á hollustufæði Á Landnámssetrinu er einnig að finna huggulegan veitingastað þar sem er bæði boðið upp á mat í há- deginu fyrir fólk á ferðinni og eins fyrir sýningar á kvöldin. „Við erum að leggja alltaf meiri og meiri áherslu á hollustufæði. Þetta verður þó ekki beinlínis grænmetisstaður heldur leggjum við áherslu á að vera með al- veg rosalega fersk hráefni og spenn- andi matreiðslu,“ segir Sigríður. Aðspurð hvort mikið sé um það að Íslendingar leggi leið sína á Land- námssetrið svarar Sigríður: „Íslend- ingar hafa komið mjög mikið til okkur og útlendingarnir líka. Bæði Íslendingar sem eru á ferðalagi og eru á leiðinni norður í land en vilja stoppa og fá sér hollan og góðan mat í fallegu umhverfi og eins til að fara á sýningarnar. Það er ekki nema þrjár mínútur sem það tekur að keyra frá gatnamótunum og niður í Borgar- nes. Það eru alltaf fleiri og fleiri sem taka þessa vinstri beygju og koma alveg niður í gamla bæinn að heim- sækja okkur. Ég finn það líka núna þegar það er ekki eins gott veður að fólki finnst gott að koma inn í hlýj- una og fá sér heitt kakó og jafnvel vöfflur og skoða sýningarnar sem eru opnar daglega frá klukkan ellefu yfir vetrartímann.“ Vel heppnuð saga til næsta bæjar Í sumar voru gerðar tilraunir til að vera með sagnamannakvöld á sunnu- dögum í Landnámssetrinu sem köll- uðust saga til næsta bæjar og heppn- uðust gríðarlega vel. Kvöldin voru tekin upp í samvinnu við Ríkisútvarp- ið og unnir voru hálftíma þættir upp- úr sögunum sem sagðar voru. „Við vorum rosalega metnaðar- gjörn og ákváðum að fá fólk alls stað- ar af á landinu til okkar. Við fengum til dæmis Hákon Aðalsteiðsson aust- an af fjörðum, Frey Ejólfsson úvarps- mann, alþingismenninga Kolbrúnu Sérsniðnar heimsóknir og úrval Sýninga Hjónin Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Kjartan Ragnars- son opnuðu Landnámssetrið í maí 2006. Þar hafa þau byggt upp fjölbreytta starfsemi jafnt fyrir einstaklinga sem og hópa og er skemmst frá því að segja að leiksýningar sem settar hafa verið upp á Söguloftinu hafa slegið í gegn. Í vetur verður að venju mikið um að vera í Land- námssetrinu, tónleikar, leiksýningar, ratleiki, sagnamannakvöld og óhefðbundin jólahlað- borð svo fátt eitt sé nefnt. Landnámssetur Íslands „Það er ekki nema þrjár mínútur sem það tekur að keyra frá gatnamótunum og niður í borgarnes. Það eru alltaf fleiri og fleiri sem taka þessa vinstri beygju og koma alveg niður í gamla bæinn að heimsækja okkur. “ Sigríður fyrir utan Landnáms- setrið Í Landnámssetrinu ráða hjónin sigríður margrét og Kjartan ragnarsson ríkjum og er fjöbreytt vetrardagskrá framundan í setrinu. DV mynd: Einar Ólason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.